MS borgaði Íslandi í dag fyrir að fjalla jákvætt um sig

Stöð 2 braut mögu­lega lög með umfjöllun um MS, sem reynd­ist vera keypt án þess að greint væri frá því. Aug­lýs­inga­stjóri Stöðvar 2 segir það hafa verið mis­tök hjá þátta­stjórn­endum að kynna ekki keyptu umfjöll­un­ina. Hann segir að stefnt sé á að selja umfjall­anir í auknum mæli.

MS borgaði Íslandi í dag fyrir að fjalla jákvætt um sig

Umfjöllun Íslands í dag um aug­lýs­inga­her­ferð Mjólk­ur­sam­söl­unnar (MS) 28. maí síð­ast­lið­inn var unnin gegn greiðslu MS til 365. Þetta stað­festir Guðný Steins­dóttir, mark­aðs­stjóri MS, í sam­tali við Stundina. Í lista sem Stundin hefur undir höndum sem sendur var til Gallup yfir efn­is­þætti Íslands í dag, magasín­þáttar Stöðvar 2, er innslagið um fyr­ir­tækið kallað „MS plögg“.  Kjarninn vakti fyrst athygli á þessu orða­lagi í Gallup-list­anum en útskýrði ekki hvernig á því stæði.

Svanur Val­geirs­son, aug­lýs­inga- og mannauðs­stjóri 365, stað­festir í sam­tali við Stundina að greitt hefði verið fyrir „plög­gið“. Hann segir að mis­tök hafi átt sér stað við vinnslu efnis og því hafi ekki verið tekið fram að um kynn­ingu að ræða. Í gær birti Neyt­enda­stofa leið­bein­ingar til fjöl­miðla um hvernig gera skuli aug­lýs­ingar auð­þekkj­an­legar frá sjálf­stæðu rit­stjórn­ar­efni. Þar kemur skýrt fram að duldar aug­lýs­ingar sé ólög­legar.

„MS plögg“
„MS plögg“ Áhorfs­tölur frá Capacent.
 

Fyrirtækið örvar umræðu

Innslagið sem keypt var fjallar um aug­lýs­inga­her­ferð MS sem nefn­ist Örnefni á Íslandi. Hægt er að horfa á kynn­ing­una hér. Viðtal er við Guðný Steins­dóttur, mark­aðs­stjóra MS, þar sem hún kynnir Örnefni á Íslandi sem er sagt vera nýjasta átak MS á mjólk­ur­fernum. „Þetta er létt og skemmti­leg nálgun og gerir fólk áhuga­samt um landið í leið­inni,“ segir Guðný. Því næst segir Ásgeir Erlends­son, dag­skrár­gerð­ar­maður í Íslandi í dag, frá því hvernig mjólkin sé pökkuð á Selfossi. „Það var spenna í loft­inu í véla­salnum í gær, enda eru fyrstu fern­urnar með nýja örnefna átak­inu að koma í búðir um þessar mundir,“ segir Ásgeir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Duldar auglýsingar

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár