„Dapurlegt til þess að hugsa að Ísland eigi þar hlut að máli“

Atl­ants­hafs­banda­lagið hefur lýst yfir stuðn­ingi við hern­að­ar­að­gerðir Tyrk­lands gegn ISIS og Kúrdum. Þingmenn Vinstri grænna, Katrín Jak­obs­dóttir og Ögmundur Jónasson, gagn­rýna þetta harð­lega en beðið er eftir við­brögðum frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu.

„Dapurlegt til þess að hugsa að Ísland eigi þar hlut að máli“
Konur hafa verið áber­andi í bar­áttu Kúrda gegn ISIS. Mynd: Shutterstock

Atl­ants­hafs­banda­lagið (NATO) lýsti yfir stuðn­ingi við loft­árásir Tyrk­lands sunnan landamæra við Sýrland og Írak eftir neyð­ar­fund allra aðild­ar­ríkja í Brussel á þriðju­dag. Fullyrti Jens Stol­ten­berg, fram­kvæmda­stjóri NATO, í fjöl­miðlum að náðst hefði algjör sam­staða allra banda­lags­þjóð­anna um að lýsa yfir stuðn­ingi við Tyrki. 

Loft­árásir Tyrkja bein­ast ekki aðeins gegn Íslamska rík­inu (ISIS) heldur einnig gegn Kúrdum, þ.e. liðs­mönnum Verka­manna­flokks Kúrda (PKK), sem borið hafa hit­ann og þung­ann af bar­átt­unni gegn ISIS. Tyrkir hafa varpað sprengjum á skýl­i, birgða- og stjórn­stöðvar og hell­a sem liðs­menn PKK halda til í og í dag var jafn­framt ráð­ist á bæki­stöðvar þeirra í norð­ur­hluta Írak. 

Stundin hefur óskað eftir upp­lýs­ingum frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu um afstöðu Íslands til loft­árása Tyrk­lands gegn Kúrdum og hvort full­trúi Íslands hafi komið athuga­semdum á fram­færi á neyð­ar­fund­inum. 

Erdogan
Erdogan for­seti Tyrk­lands

Samstarfsflokkur Sjálfstæðisflokksins

Framfara- og rétt­læt­is­flokkur Tyrk­lands er við völd í land­inu, en um er að ræða sam­starfs­flokk Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Evr­ópu­sam­tökum íhalds­manna og umbóta­sinna (AECR). Eins og Stundin greindi frá í júní er Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, vara­for­maður AECR, og með honum í stjórn situr meðal ann­ars full­trúi frá tyrk­neska stjórn­ar­flokknum.

Flokk­ur­inn, og ekki síður Recep Tayyip Erdogan, for­seti og fyrrum for­sæt­is­ráð­herra Tyrk­lands, hafa sætt harðri gagn­rýni vegna for­ræð­is­hyggju, þjösna­legra aðgerða gegn blaða­mönnum og mót­mæl­endum og lokun á sam­fé­lags­miðl­unum Twitter og Youtube. Ofan á allt þetta bæt­ist harkan gagn­vart Kúrdum. 

Kúrdar í fremstu víglínu

„Hermenn Kúrda eru smám saman að ná yfir­lýstum mark­miðum Obama-stjórn­ar­innar, um að berja niður og ganga milli bols og höf­uðs á ISIS, jafn vel og jafn­vel betur en nokkur annar her,“ skrifar blaða­mað­ur­inn Lee Fang á miðl­inum The Intercept.

Þá bendir hann á, líkt og rit­höf­und­ur­inn David Graeber hefur áður gert, að Kúrdum í norð­ur­hluta Sýrlands hefur tek­ist að koma á fót sam­fé­lags­gerð þar sem menn og konur, kristnir, jat­sítar og múslimar lifa saman í sátt og sam­lyndi á grund­velli þátt­töku- og sam­ræðu­lýð­ræðis. Nú sé hætt við því að þessi árangur verði að engu vegna yfir­gangs tyrk­neskra stjórn­valda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stríðið gegn ISIS

FréttirStríðið gegn ISIS

Sýrlensk börn reyna að koma í veg fyrir loft­árásir með því að kveikja í dekkjum

Síðan borg­ara­styrj­öldin í Sýrlandi hófst árið 2011 hafa allt að 470 þús­und manns látið lífið og 4 millj­ónir flótta­manna hafa flúið stríðs­á­tökin í land­inu. Loft­árásir hafa verið dag­legt brauð und­an­farin miss­eri fyrir marga íbúa lands­ins, en börnin í borg­inni Aleppo hafa nú tekið upp á því að brenna bíldekk til þess að koma í veg fyrir að sprengjum sé sleppt á borg­ina.

Mest lesið

2
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár