Árið á Stundinni

Stundin fjall­aði um fjöl­breytta mála­flokka á öðru ári sínu.

Árið á Stundinni

Öðru ári Stund­ar­innar er nú að ljúka. Um leið og Stundin, aðstand­endur og starfs­fólk, þakkar fyrir stuðn­ing áskrif­enda á árinu eru færðar auð­mjúkar þakkir fyrir þau verð­laun og til­nefn­ingar sem Stundin hefur hlotið á stuttum starfs­tíma.

Í byrjun árs var frétta­vefur Stund­ar­innar val­inn „vef­mið­ill árs­ins“ af Samtökum vef­iðn­að­ar­ins.

Stundin hlaut þrjár af tólf til­nefn­ingum til blaða­manna­verð­launa Íslands, flestar til­nefn­ingar allra rit­stjórna lands­ins. Til­nefn­ing­arnar voru í þremur flokkum: Rann­sókn­ar­blaða­mennska árs­ins, blaða­manna­verð­laun árs­ins og við­tal árs­ins.  

Loks hlaut Stundin flest verð­laun allra miðla fyrir bestu ljós­myndir árs­ins á sýn­ingu Blaða­ljós­mynd­ara­fé­lags Íslands. Myndir úr Stund­inni hlutu verð­laun í þremur flokkum af sjö, frétta­mynd árs­ins, dag­legt líf mynd árs­ins og mynda­röð árs­ins.

Umfjall­anir Stund­ar­innar á árinu snertu á víðu sviði sam­fé­lags­ins. Hér eru nokkrar þær helstu.

Stóra blekkingin

Í fyrstu for­síðu­út­tekt Stund­ar­innar á þessu ári fjöll­uðum við um það hvernig álfyr­ir­tækin sleppa við að borga skatta á Íslandi. Umfjöll­unin leiddi meðal ann­ars í ljós að öll álfyr­ir­tækin þrjú beita ýmsum aðgerðum til að eiga í sem mestum við­skiptum við móð­ur­fé­lög sín og önnur tengd fyr­ir­tæki til þess að kom­ast hjá því að borga skatta. 

Uppgjör sérstaks saksóknara

Ólafur Þór Hauksson var í ítar­legu við­tali hjá Stund­inni í byrjun árs þar sem hann gerði upp starfið sem eng­inn vildi, lær­dómana, dómana og hvers vegna dæmdir menn í efna­hags­brotum vegna hruns­ins sýna ekki iðrun. 

Stríðið í löggunni

Stundin fjall­aði um umdeilda stjórn­un­ar­hætti Sigríðar Bjarkar Guð­jóns­dóttur, lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, og síend­ur­teknar stöðu­veit­ingar án aug­lýs­inga sem hafa valdið ólgu og van­líðan meðal starfs­fólks emb­ætt­is­ins. Lög­reglu­menn töl­uðu um bræðisköst, und­ir­róður, nið­ur­lægj­andi fram­komu og sam­ráðs­leysi. Síðar á árinu kom í ljós að lög­reglu­menn sem höfðu lög­reglu­full­trúa í fíkni­efna­deild fyrir rangri sök voru hækk­aðir í tign, fengu óaug­lýsta stöðu og hlutu ann­ars konar fram­gang í starfi. Þeir sem stóðu með lög­reglu­full­trú­anum fengu hins vegar að kenna á því. Aldís Hilm­ars­dóttir, fyrr­ver­andi yfir­maður fíkni­efna­deildar, var meðal ann­ars færð til og svipt öllum manna­for­ráðum skömmu eftir að mál lög­reglu­full­trú­ans rataði í fjöl­miðla. Hún hefur nú stefnt íslenska rík­inu vegna fram­göngu Sigríðar Bjarkar gagn­vart sér. Þá hafa tveir lög­reglu­menn, sem töldu ásak­anir á hendur lög­reglu­full­trú­anum til­hæfu­lausar og gagn­rýndu fram­göng­una gagn­vart honum, verið reknir af vett­vangi fíkni­efna­rann­sókna.

Sjúklegt ástand spítalans

Heil­brigð­is­mál voru fyr­ir­ferð­ar­mikil í umræð­unni fyrri part árs, einkum vegna und­ir­skrift­ar­söfn­unar Kára Stef­áns­sonar sem kall­aði á eftir end­ur­reisn heil­brigð­is­kerf­is­ins. Blaða­maður Stund­ar­innar varði degi á Land­spít­al­anum og komst að því að sjúk­lingar eru hafðir í ein­angrun á sal­ernum, í sturtu­klefum og geymslum sökum pláss­leysis, en rúm­lega 30 sjúk­lingar láu á göngum spít­al­ans þann dag­inn. 

Sveinn Andri og ungu stúlkurnar

Umfjöllun Stund­ar­innar um lög­mann­inn Svein Andra Sveins­son vakti athygli á árinu. Stundin ræddi við ungar stúlkur sem hafa reynslu af sam­skiptum við Svein Andra og birti brot úr sam­skiptum hans við ólög­ráða stúlku. 

Forsetakosningar 2016

Í mars kann­aði Stundin, í sam­starfi við MMR, hvern Íslend­ingar vildu fá sem næsta for­seta Íslands. Örfáir ólík­legir fram­bjóð­endur höfðu til­kynnt fram­boð sitt á þeim tíma og enn voru tveir mán­uðir í að Guðni Th. Jóhann­es­son kynnti ákvörðun sína. Nið­ur­staðan var afger­andi, en lang­flestir vildu sjá Katrínu Jak­obs­dóttur, for­mann VG, á Bessa­stöðum. Nokkrum dögum síðar til­kynnti Katrín að hún hyggð­ist ekki bjóða sig fram. 

Wintris-málið

Í miðjum mars­mán­uði til­kynnti Anna Sig­ur­laug Páls­dóttir, eig­in­kona Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, skyndi­lega á Facebook að hún ætti félagið Wintris sem héldi utan um fjöl­skyldu­arf­inn hennar. Síðar kom í ljós að félagið væri aflands­fé­lag á Bresku-Jóm­frú­areyj­unum, ætti hálfs millj­arðs króna kröfur í föllnu bank­ana og var í helm­ing­seigu Sig­mundar Davíðs fram á gaml­árs­dag 2009 en þá seldi Sig­mundur eig­in­konu sinni sinn hlut á einn doll­ara. Daginn eftir tóku í gildi lög sem höfðu verið sett til höf­uðs aflands­fyr­ir­tækjum. 

Panamaskjölin

Stundin vann í vor fjöl­margar fréttir og ítar­legar úttektir upp úr Panama­skjöl­unum svoköll­uðu í sam­starfi við Reykja­vik Media. Fyrsta stóra úttektin fjall­aði um skatta­skjóls­tengsl Bjarna Bene­dikts­sonar og Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, en báðir tengj­ast þeir skatta­skjólum og lág­skatta­svæðum með bæði beinum og óbeinum hætti. Næst var millj­arða­slóð hjón­anna Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar og Ingi­bjargar Pálma­dóttur rakin í skatta­skjól, en Jón Ásgeir hafði í gegnum árin ætíð neitað því að eiga eignir á aflandseyjum. Benedikt Sveins­son, faðir Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra, átti einnig félag á Tortóla en Bjarni átti sjálfur fyr­ir­tæki í skatta­skjól­inu Seychelles-eyjum. Panama­skjölin vörp­uðu einnig ljósi á ótrú­lega umfangs­mikil við­skipti feðganna Björg­ólfs Guð­munds­sonar og Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar í skatta­skjólum fyrir og eftir hrunið 2008, en feðgarnir voru tengdir meira en 50 félögum. Félag sem Björgólfur eldri stýrði fékk millj­arð í lán hjá Lands­bank­anum sem aldrei fékkst greitt til baka og nær öll fyr­ir­tæki Björg­ólfs Thors eru beint eða óbeint í skatta­skjóli. Þá fjall­aði Stundin að lokum um við­skipti fjár­fest­anna Sigurðar Bolla­sonar og Magnúsar Ármanns, en sá fyrr­nefndi lét dags­gam­alt barn sitt lána 300 millj­ónir króna til aflands­fé­lags. 

Plott Davíðs

Davíð Oddsson, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri, for­sæt­is­ráð­herra og seðla­banka­stjóri, til­kynnti um for­seta­fram­boð sitt í byrjun maí. Blaða­maður Stund­ar­innar skráði sig sem sjálf­boða­liða hjá kosn­ingateymi Davíðs og kynnti sér aðferðir umdeildasta stjórn­mála­manns síð­ustu ára­tuga. Sjálf­boða­lið­arnir voru meðal ann­ars hvattir til að vera virkir á sam­fé­lags­miðlum við að svara gagn­rýni á Davíð. 

Karlaklíka dómaranna

Stundin rýndi í ný lög um dóm­stóla sem festa í sessi kerfi þar sem dóm­ara­stéttin hefur eft­ir­lit með sjálfri sér og mætir ekki kröfum um gagn­sæi og virkt aðhald. Staða kenna í dóm­stóla­kerf­inu er áfram veik en rétt­ur­inn er sam­an­settur að miklu leyti af körlum með svip­aðan bak­grunn og reynslu. 

„Ég rændi barninu“

Helena Brynj­ólfs­dóttir sagði frá því í við­tali við Stundina í lok júlí­mán­aðar hvernig hún stakk af með fimm ára gam­alt barna­barn sitt eftir að norsk yfir­völd ákváðu að setja það í fóstur hjá ókunn­ugum til 18 ára ald­urs. Málið átti eftir að vekja tölu­verða athygli og komust bæði hér­aðs­dómur og Hæsti­réttur að þeirri nið­ur­stöðu að senda þyrfti barnið aftur til Noregs. Nýjustu fréttir herma hins vegar að barnið fái að alast upp á Íslandi, en fer mögu­lega í fóstur hér á landi.

Flúðu helvítið til Íslands

Eitt stærsta frétta­mál árs­ins á alþjóða vísu er straumur flótta­manna til Evrópu og síharðn­andi átök í Sýrlandi. Stundin sagði sögu Mahers og Hibu sem sáu heim­kynni sín í Sýrlandi umbreyt­ast í hel­víti, en það reynd­ist þeim mikil eldraun að kom­ast í öryggið á Íslandi. Ísland völdu þau því hér er ekki vopnuð lög­regla og engin her. 

Samsærið gegn samkeppninni

Stundin rak hvernig Mjólk­ur­sam­salan og Kaup­fé­lag Skag­firð­inga öðl­uð­ust yfir­burða­stöðu á íslenskum mjólk­ur­mark­aði á grund­velli umdeildra laga­breyt­inga sem und­an­skilja fyr­ir­tækin sam­keppn­is­lögum og bitna bæði á sam­keppn­is­að­ilum og neyt­endum. Ný búvöru­lög, sem sam­þykkt voru í haust, festu í sessi ein­ok­un­ar­stöðu MS og Kaup­fé­lags Skag­firð­inga og hækka veru­lega tolla á inn­flutta osta og mjólk­ur­duft. 

Sölumenn óttans

Á síð­ustu árum hefur það færst í auk­ana að stjórn­mála­menn nota þjóð­ern­ispopúl­isma og hræðslu­á­róður til að auka fylgi sitt. Stundin skoð­aði mál­flutn­ing stjórn­mála­manna og fjöl­miðla­fólks sem ala á andúð á útlend­ingum. 

Ósýnilegu börnin

Stundin kynnti sér aðstæður barna sem koma hingað til lands í leit að alþjóð­legri vernd, ýmist í fylgd for­eldra eða ein á ferð. Við komumst að því að börn eru radd­laus og ekki álitin aðilar að málum er varða fram­tíð þeirra og öryggi og að brotið er á fylgd­ar­lausum börnum með umdeildum ald­urs­grein­ingum og óvið­un­andi aðbún­aði. 

Alþingiskosningar 2016

Þing­kosn­ingum var flýtt í kjöl­far mót­mæla eftir að Panama­skjölin leiddu í ljós að þrír ráð­herrar í rík­is­stjórn Íslands hefðu átt félög í skatta­skjólum. Stundin ræddi við for­menn allra flokka í aðdrag­anda kosn­ing­anna 29. októ­ber síð­ast­lið­inn, nema Bjarna Bene­dikts­son, for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem hafn­aði því að svara spurn­ingum Stund­ar­innar. 

„Þjóðin getur ekki átt neitt“

Stundin fjall­aði um ham­skipti íslenskra útgerð­ar­manna og ræddi meðal ann­ars við Heiðrúnu Lind Mart­eins­dóttur, nýjan fram­kvæmda­stjóra SFS, sem trúir því að skattar séu ofbeldi og segir að þjóð geti ekki átt neitt. 

„Ég læt ekki bjóða mér þetta“

Guð­mundur Guð­munds­son sagði frá því, í per­sónu­legu við­tali í Stund­inni, hvers vegna hann ákvað að hætta sem lands­liðs­þjálf­ari Dan­merkur í hand­bolta stuttu eftir að hafa fært Dönum gull­verð­laun á Ólymp­íu­leikum. Hann tal­aði einnig um lær­dóma fer­ils­ins, hvað þarf til að ná árangri og mik­il­vægi þess að ástunda hrein­skiptin sam­skipti, í heimi þar sem heið­ar­leiki virð­ist vera á und­an­haldi. 

Saga Friðriks Kristjánssonar

Fyrr í þessum mán­uði sagði Stundin sögu Friðriks Krist­jáns­sonar sem hvarf spor­laust í Paragvæ árið 2013. Umfjöll­unin varp­aði ljósi á hrylli­lega atburða­rás sem end­aði á því að vitni gaf sig fram við íslensku lög­regl­una og sagði ónefndan Íslend­ing hafa sýnt sér afskorið höfuð Friðriks á Skype.

Ástin á barmi hyldýpisins

Stefán Karl Stef­áns­son leik­ari greind­ist með krabba­mein á árinu. Í síð­asta tölu­blaði Stund­ar­innar er rætt við Stefán og eig­in­konu hans, Stein­unni Ólínu Þor­steins­dóttur, óviss­una, lífið og tím­ann sem þau ætla að nota vel. Þau segja frá því hvernig er að vakna til lífs­ins á skurð­borð­inu, hver til­gangur lífs­ins er, hvernig maður segir börn­unum sínum að maður sé með sjúk­dóm sem getur leitt til dauða og hvernig við­brögð fólks við veik­ind­unum eru hluti af lækn­ing­unni. 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár