Áhyggjur af einræðistilburðum í Bandaríkjunum: Aðalráðgjafi Trumps segir forsetann æðri dómstólum

„Völd for­set­ans verða ekki dregin í efa,“ full­yrðir Stephen Miller, aðal­ráð­gjafi í Hvíta hús­inu. Hann gefur í skyn að Donald Trump Banda­ríkja­for­seti sé haf­inn yfir dóms­valdið. Sjálf­stæði dóm­stóla er grund­vall­ar­stoð lýð­ræð­is­ríkja.

Stephen Miller
Stephen Miller Er fyrr­ver­andi upp­lýs­inga­full­trúi Jeff Sessions, sem hefur verið skip­aður dóms­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna í kjöl­far þess að for­veri hans var rek­inn í skyndi fyrir að mæl­ast gegn því að ferða­bann gegn íbúum sjö múslima­ríkja yrði inn­leitt. Mynd:

Einn helsti ráð­gjafi Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta afneitar heim­ild dóm­stóla í Banda­ríkj­unum til að dæma ferða­bann Trumps gegn íbúum sjö múslima­ríkja ólög­legt. 

„Það sem dóm­ar­arnir gerðu... var að taka völd til sín, sem á ein­göngu heima í höndum for­seta Banda­ríkj­anna,“ sagði hann í þætt­inum Face the Nation á CBS. „Við erum með dóms­vald sem hefur tekið alltof mikið vald og orðið á margan hátt æðsta grein rík­is­valds­ins ... And­stæð­ingar okkar, fjöl­miðlar og allur heim­ur­inn mun brátt sjá okkur grípa til frek­ari aðgerða, að völd for­set­ans til að vernda landið okkar eru veru­lega mikil og verða ekki dregin í efa.“

Sjálf­stæði dóms­valds­ins gagn­vart fram­kvæmda­vald­inu er ein af burð­ar­stoðum lýð­ræð­is­ríkja og kemur í veg fyrir valda­sam­þjöppun og spill­ingu. Það er hluti af hug­mynd­inni um þrí­skipt­ingu rík­is­valds­ins, sem er kjarna­kenn­ing í lýð­ræði.

Borgarar sjö landa útilokaðir á fölskum forsendum

Trump und­ir­rit­aði for­seta­til­skipun sína 27. jan­úar síð­ast­lið­inn, sem kvað á um að rík­is­borg­arar Írans, Íraks, Líbýu, Sómalíu, Súdans, Sýrlands og Jemen væri óheim­ilt að ferð­ast til Banda­ríkj­anna frá und­ir­ritun til­skip­un­ar­innar. Mikil ringul­reið fylgdi í kjöl­farið. Alrík­is­dóm­ari í Seattle, James Robart, dæmdi komu­bannið ólög­legt á grund­velli þess að engar sann­anir hefðu verið gefnar fyrir því að nokkur rík­is­borg­ari frá lönd­unum sjö hefði framið hryðju­verka­árás í Banda­ríkj­unum.

„Við erum að reyna allar mögu­legar aðgerðir til þess að vernda landið okkar frá hryðju­verkum.“

Miller vís­aði til hryðju­verkaógnar þar sem hann rök­studdi að dóm­stólar hefðu ekki völd til að dæma ferða­bannið brot á stjórn­ar­skrá Banda­ríkj­anna. „Það mik­il­væga er að við erum að reyna allar mögu­legar aðgerðir til þess að vernda landið okkar frá hryðju­verkum.“ 

Enginn hefur lát­ist í Banda­ríkjum í hryðju­verka­árás af hendi fólks frá múslima­lönd­unum sjö sem ferða­bannið nær yfir.

Fjallað var um afstöðu ráð­gjafa Trumps í þætt­inum Morning Joe á NBC í gær. Þátt­ar­stjórn­endur lýstu því að um væri að ræða hug­mynda­fræði ein­ræðis.

Forsetinn hrósaði Miller fyrir að endurtaka ósannindi

Trump hefur sér­stak­lega hrósað Miller fyrir fram­komu sína í fjöl­miðlum und­an­farið. Miller hefur end­ur­tekið afhjúpaðar og falskar ásak­anir Trumps um kosn­inga­svik, sem hefðu falist í því að fjöldi fólks án kosn­inga­réttar hefði kosið í for­seta­kosn­ing­unum í nóv­em­ber, en Trump hefur haldið því fram að það útskýri að hann fékk tæp­lega þremur millj­ónum atkvæða færri en Hillary Clinton.

Þrátt fyrir að sýnt hafi verið fram á ósann­indi brást Miller harka­lega við og full­yrti að for­set­inn hefði rétt fyrir sér. „Ég er til­bú­inn að fara í hvaða þátt sem er, hvar sem er, hvenær sem er og end­ur­taka að for­seti Banda­ríkj­anna hefur 100 pró­sent rétt fyrir sér.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetatíð Donalds Trump

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár