Svona blekktu þau síðast

Fimm dæmi um hvernig Sjálfstæðis­menn hagræddu sann­leikanum fyrir Alþingis­kosningarnar 2016.

1. „Einn best rekni ríkissjóður í heimi“ 

Sjálfstæðis­flokkurinn keyrði síðustu kosninga­baráttu á full­yrðingum um sterka fjárhags­stöðu ríkisins, halla­lausan rekstur „eins best rekna ríkis­sjóðs í Evrópu“ eins og formaðurinn orðaði það í kosninga­þætti.

Rétt eftir kosningarnar, þann 16. nóvember, birti Seðla­banki Íslands rit sitt um Peningamál þar sem bent var á að halli á ríkis­sjóði hefði numið tæpum 6 milljörðum á árinu 2015 og yrði enn meiri á árinu 2016 þegar horft væri framhjá einskiptis­áhrifum stöðugleika­framlaga á ríkis­búskapinn (þetta stangast auðvitað á við orð Bjarna í leiðtoga­umræðunum í gærkvöldi þegar hann sagðist aldrei hafa skilað ríkis­sjóði með halla).

Svo virðist sem jafnvel leiðtogar annarra flokka hafi látið gabbast fyrir kosningarnar í fyrra. „Menn höfðu talað býsna fjálg­lega um hvað staða rík­is­sjóðs væri góð en svo kem­ur í ljós að hún er þrengri en menn áætluðu,“ sagði Benedikt Jóhannesson, þáverandi formaður Viðreisnar, þegar fimm­flokka­viðræðurnar stóðu yfir í lok nóvember 2016. 

Nokkrum vikum síðar benti Fjármálaráð á að rekstur ríkis­sjóðs væri í járnum þegar litið væri til afkomu af reglu­legum rekstri hins opinbera og hún leiðrétt fyrir hagsveiflunni. Slík hagsveiflu­jöfnun er almennt viðurkennd sem gagnleg leið til að gefa raunsanna mynd af rekstri ríkis­sjóðs. 

Í fjár­laga­frumvarpi fráfar­andi ríkis­stjórnar er viðurkennt að veiking tekju­stofna hins opinbera á undan­förnum árum sé farin að segja til sín. Þunginn sé orðinn mikill á megin­skattstofna eins og virðis­aukaskatt, tekju­skatt einstaklinga og trygginga­gjald. „Það felur í sér að þegar um hægist í efnahags­lífinu taka tekjurnar mun stærri dýfu en útgjöldin með tilheyrandi áhrifum á afkomu til hins verra og skulda­söfnun hefst að nýju,“ segir í greinar­gerð frum­varpsins.

Hagdeild ASÍ tekur undir þetta og dregur þá ályktun í nýjustu hagspá sinni að tekjur ríkis­sjóðs muni tæpast duga til að fjármagna núverandi útgjalda­stig þegar hægir á í efnahags­lífinu. Þá muni niður­skurður eða aukin skatt­heimta blasa við, þvert á hagsveifluna. „Einn best rekni ríkis­sjóður í heimi“ er nefnilega ekki betur rekinn en svo. 

2. Sagði fæsta borga tekjuskatt.

Þann 27. október síðastliðinn fullyrti Bjarni Benediktsson ranglega í stöðu­uppfærslu á Facebook að einungis tekju­hæstu 30 prósent fram­teljenda stæðu undir tekjum ríkis­sjóðs af tekjuskatts­kerfinu. 

Ummælin voru hrakin og sýnt fram á að a.m.k. tekju­hæstu 50 prósent fram­teljenda standa undir kerfinu. Þannig varð ljóst að formaður stærsta stjórn­málaflokks landsins hafði haldið því ranglega fram að drjúgur hluti vinnandi fólks í landinu greiddi í raun og veru ekki tekju­skatt.

Hin röngu ummæli Bjarna, sem kunna að hafa sprottið af misskilningi, voru nær eina framlag hans til umræðunnar um misskiptingar­áhrif skatta­stefnu þáverandi ríkis­stjórnar í aðdrag­anda síðustu þing­kosninga.

Fjórir nýkjörnir þingmenn Sjálfstæðis­flokksins deildu rang­færslunni á samfélags­miðlum og tóku þannig þátt í að dreifa villandi upplýsingum til kjósenda þar sem ýjað var að því að fámennur fjár­sterkur hópur tæki á sig allar byrðar tekju­skatt­kerfisins og þáttaka lágtekju- og milli­tekjuhópa í fjár­mögnun samneyslunnar þurrkuð út.

Eins og áður hefur verið bent á minntu ummæli Bjarna dálítið á orð sem forseta­fram­bjóðandinn Mitt Romney lét falla á lokuðum fundi með styrktar­aðilum Repúblikana­flokksins árið 2012, þegar hann sagði 47 prósent bandarískra kjósenda ekki greiða tekju­skatt; vera eins konar bagga á samfélaginu. Ummæli Romneys, sem voru grodda­lega sett fram en virðast þó hafa byggt á réttum tölum, gerðu allt vitlaust Vestanhafs, rötuðu í flesta fjölmiðla, þóttu til marks um veruleika­firringu Romneys og skort á samhygð, og voru e.t.v. ein af ástæðum þess að hann varð aldrei forseti. Ummæli Bjarna, sem voru beinlínis röng, vöktu hins vegar litla athygli og hann þurfti aldrei að svara fyrir þau. 

3. Afvegaleiddi umræðu um uppboðsleiðina

Í aðdrag­anda síðustu þing­kosninga fór fram mikil og hávær umræða um uppboð fisk­veiði­heimilda og gjaldtöku í sjávar­útvegi.

Þegar Bjarni sat fyrir svörum í Forystu­sætinu á RÚV þann 11. október 2016 gaf hann villandi mynd af uppboði Færeyinga á fisk­veiði­heimildum til að rökstyðja þá skoðun sína að óæskilegt væri fyrir Íslendinga að fara slíka leið. 

„Þú ert að tala um heimildirnar sem voru seldar útlendingunum, sem fóru til eins fyrir­tækis,“ sagði Bjarni þegar spyrill minntist á reynslu Færeyinga af uppboði í tilrauna­skyni. 

Hið rétta er að fisk­veiði­heimildirnar í Færeyjum voru ekki seldar einu fyrirtæki heldur mörgum auk þess sem aðeins færeysk fyrirtæki, það er félög í meirihluta­eigu Færeyinga, gátu tekið þátt í uppboðinu.

Bjarni sagði einnig: „Eru menn í alvörunni að tala um það að við eigum núna að taka þessa fiskveiði­auðlind sem skapar störf úti um allt land og bjóða hana til útlendinga?“

Raunin er hins vegar sú að á Íslandi eru í gildi lög um fjár­festingar erlendra aðila í atvinnu­rekstri sem setja aðkomu útlendinga að fisk­veiðum og vinnslu sjávar­afurða mjög þröngar skorður. Enginn af tals­mönnum uppboðs­leiðar á Íslandi hefur mælst til þess að þessar reglur verði afnumdar eða að fiskveiði­auðlindin verði sérstak­lega boðin útlendingum. 

4. Samgönguáætlunin var ófjármagnað kosningaplagg

Á lokadögum þingsins 2016 var kosninga­baráttan í algleymingi. Athygli vakti þegar þáverandi stjórnar­flokkar, Sjálfstæðis­flokkurinn og Framsóknar­flokkurinn, véku í veiga­miklum atriðum frá fjármála­áætlun sinni og samþykktu umtals­verðar útgjalda­skuld­bindingar sem ekki hafði verið gert ráð fyrir þar, meðal annars samgöngu­áætlun þar sem mælt var fyrir um viðbótar­fjár­festingar upp á hátt í 20 milljarða. 

Kjósendur, t.d. íbúar í kjördæmum þar sem vegir og samgöngu­mannvirki eru að niður­lotum komin, fengu þannig skýr skilaboð um að Sjálfstæðis­flokkurinn væri viljugur til að ráðast í veglegar samgöngu­bætur og finna fjármagn til að standa undir þeim. Þetta skipti máli í kosninga­baráttu þar sem talað var um fátt annað en uppbyggingu innviða og Sjálfstæðis­flokkurinn lá undir ámæli fyrir að hafa ekki sýnt nægilegan metnað í mála­flokknum. Samgöngu­áætlunin var merki um að samgöngu­innviðir yrðu efldir, sama hvort við tæki við vinstri­stjórn eða stjórn undir forystu Sjálfstæðis­flokksins. 

Strax varð þó ljóst að lítill vilji var til að fjármagna áætlunina. Sjálfstæðis­flokkurinn myndaði ríkis­stjórn með Viðreisn og Bjartri framtíð, flokkum sem einnig höfðu lofað tugmilljarða innviða­uppbyggingu í kosninga­baráttunni, en samt reyndist lífsins ómögulegt að fylgja samgöngu­áætluninni eftir og finna fjármuni til verk­efnanna. Í staðinn var sett af stað vinna við að skoða kosti ólíkra fjár­mögnunar­leiða, svosem vegtolla. Allt að einu verður ekki betur séð en að breytingarnar á samgöngu­áætlun haustið 2016, og atkvæði Sjálfstæðis­manna með þeim, hafi verið kosningastönt frekar en raun­veruleg vilja­yfirlýsing um innviða­uppbyggingu.

5. Sagðist ranglega hafa staðið við loforðin

Þann 23. september 2016 sakaði Bjarni Benediktsson Sigríði Hagalín Björns­dóttur, umsjónar­mann leiðtoga­umræðna Ríkis­útvarpsins, um rang­færslu þegar hún benti á að hann hefði ekki staðið við loforð sem hann gaf öldruðum um afnám tekju­tengingar elli­lífeyris í aðdrag­anda þing­kosninganna 2013.

Sigríður vísaði til bréfs Bjarna til eldri borgara þar sem fram kom að Sjálfstæðis­flokkurinn ætlaði að „aftur­kalla kjara­skerðingu elli­lífeyrisþega, sem komið var á árið 2009“ en jafnframt að flokkurinn myndi „afnema tekju­tengingar elli­lífeyris“. Bjarni svaraði: „Þetta er bara alrangt hjá þér. Við þessi loforð var staðið.“

Hið rétta er að tekju­tenging elli­lífeyris er enn hluti af lífeyris­kerfi Trygginga­stofnunar og grunn­lífeyrir lífeyris­trygginga skerðist ennþá vegna atvinnu­tekna. Þetta vita auðvitað eldri borgarar manna best. Við loforðin var aldrei staðið. 

Nú gefur Sjálfstæðis­flokkurinn eldri borgurum aftur loforð, að þessu sinni um að hækka frítekju­markið sem hann lækkaði eftir að hafa verið kosinn til valda í krafti loforða um að afnema hvers kyns tekju­tengingar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár