Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra starfaði sem ráðgjafi fyrir jarðvarmafyrirtækið Orku Energy meðan hann var kjörinn þingmaður, jafnvel þó hann segist einungis hafa gert það meðan hann var utan þings árið 2011. Svo segist Illugi hafa hætt að vinna fyrir fyrirtækið þegar hann settist aftur á þing um haustið það ár. Illugi verður svo ráðherra og um þremur og hálfu ári eftir að hann segist hafa hætt að vinna fyrir Orku Energy er fyrirtækið annað af tveimur sem er sérstaklega kynnt sem hluti af sendinefnd ráðherrans í heimsókn til Kína. Illugi segir reyndar að þetta hafi verið mistök; að fulltrúar frá Orku Energy hafi aldrei átt að vera í sendinefndinni heldur hafi þeir verið staddir í Kína og svo hafi hann fundað með þeim og kínverskum samstarfsaðila þeirra.
„Hvenær hætta áhrifamenn í viðskiptalífinu að vera fulltrúar fyrirtækja sinna og breytast í óbreytta flokksmenn?“
Er þetta eðlilegt? Af hverju var einmitt þetta fyrirtæki sem Illugi veitti ráðgjöf og fékk greitt frá sem var hluti af heimsókn hans til Kína? Hitt fyrirtækið sem kom að heimsókninni var Marel, eitt þekktasta fyrirtæki landsins á alþjóðavísu. Hver eru tengsl Illuga við þetta fyrirtæki og af hverju vann hann fyrir það til að byrja með? Var með vegna vina- og eða pólitískra tengsla eða eitthvað annað?
Hvenær hættir ráðgjafinn Illugi Gunnarsson að vera ráðgjafinn Illugi Gunnarsson og verður bara ráðherrann Illugi Gunnarsson svo lagt sé út frá orðum Agnesar Bragadóttur blaðakonu um styrkjamál Sjálfstæðisflokksins á sínum tíma? „Hvenær hætta áhrifamenn í viðskiptalífinu að vera fulltrúar fyrirtækja sinna og breytast í óbreytta flokksmenn? Er hægt að biðja sjálfstæðismanninn Þorstein M. Jónsson um fjárstyrk, án þess að biðja varaformann FL Group, Þorstein M. Jónsson, um styrk? Á ekki hið sama við um Steinþór Gunnarsson, sem var háttsetturstarfsmaður Landsbankans?“ Eru skilin þar á milli alveg skýr eða getur ráðherra verið í hlutverki ráðgjafherra ef hann aðstoðar einkafyrirtæki í opinberu starfi sínu sem hann hefur áður unnið fyrir sem ráðgjafi? Ég veit það ekki en spennan á milli þessara tveggja hlutverka Illuga eru óþægileg af því skilin eru svo óljós. Er Illugi hættur að bera hag þessa fyrirtækis fyrir brjósti eins og þegar hann vann hjá því af því hann er hættur að fá greitt frá því eða hyglir hann fyrirtækinu því sérstaklega? Skilin á milli ráðgjafans Illuga og ráðherrans eru óljós og því er aðkoma hans að viðskiptum Orku Energy í Kína á gráu svæði.
Illugi hefur meira að segja sagt að hann sjálfur hafi átt „frumkvæði“ að því Orka Energy kæmi að heimsókn hans til Kína án þess þó að hann hafi útskýrt af hverju hann hafði frumkvæði að því að nákvæmlega þetta fyrirtæki kæmi að heimsókn hans. Af hverju á ráðherra frumkvæði að því að tiltekið einkafyrirtæki sem hann hefur unnið fyrir komi að opinberri heimsókn ráðherra til annars lands? Illugi hefur sagt að ráðgjafavinna hans fyrir Orku Energy hafi meðal annars snúist um að tengja fyrirtækið við „fjárfesta í Singapúr“. Fjórum árum síðar fundar hann með sama fyrirtæki og kínverskum samstarfsaðila þess sem ráðherra.
Nú kann einhverjum að þykja mikið gert úr litlu. Hvað með það þó Illugi hafi fundað með íslensku og kínversku fyrirtæki í Kína? Það má hins vegar ekki gleymast að það að tengja sig við ráðherra í þjóðríki getur skipt máli fyrir ásýnd og ímynd fyrirtækja víða um heim þó hún skipti minna máli í fámenninu á Íslandi þar sem ráðherrar þykja vart merkilegri en hver annar. Slík tenging er verðmæt og flokkast sem gæði, sérstaklega í löndum eins og Kína þar sem búa um 1400 milljónir manna. Það að ráðherra ákveði að taka eitt fyrirtæki fram yfir önnur og tengja sig við það í slíkri opinberri heimsókn kallar á spurningar um hverju hann geri það, sérstaklega þegar hann hefur sjálfur unnið fyrir viðkomandi fyrirtæki við hin mjög svo teygjanlegu „ráðgjafastörf“. Ráðherrastaða er óefnisleg gæði sem hæglega er hægt að misnota og því þarf gagnsæi starfa ráðherra að vera algjört.
Illugi hefur enn ekki svarað nægilega skilmerkilega fyrir aðkomu Orku Energy að Kínaheimsókn hans og svör hans um frumkvæði og aðdraganda hennar voru loðin og óljós þó svo hann að viðurkenndi eigið frumkvæði í málinu. Þá hefur Illugi ekki viljað gefa upp hversu mikið hann fékk greitt frá fyrirtækinu þegar hann starfaði fyrir það. Illugi var vissulega í leyfi frá þingstörfum en hann var kjörinn fulltrúi almennings sem síðan settist aftur á þing í umboði þeirra sem kusu hann. Hann ætti því að gefa upp hversu mikið hann fékk greitt frá Orku Energy fyrir vinnu sína og hvenær því tenging hans og fyrirtækisins í Kínaheimsókninni kallar á að hann gefi upp hversu mikla fjárhagslega hagsmuni hann átti undir. Var þetta 1 milljón, 5, 10 eða 20?
Svör Illuga við fyrirspurnum um störf hans fyrir Orku Energy og Kínaferðina voru nokkuð sérstök á Alþingi á mánudaginn. Honum fannst óeðlilegt að þurfa að svara spurningum um málið þrátt fyrir að tenging hans við Orku Energy væri ljós. „Það er eins og verið sé að reyna að gera það tortryggilegt að menn vinni hjá einkafyrirtækjum.“ Í huga mínum rifjuðust upp fréttir af styrkjamálunum frá því fyrir hrunið og mér finnst merkilegt að stjórnmálamenn séu enn að setja fram svo einfeldnisleg sjónarmið: Auðvitað getur það skipt máli fyrir hæfi stjórnmálamanna í einstaka málum hvort þeir hafa unnið hjá tilteknum einkafyrirtækjum, sérstaklega ef þeir vinna hjá meðan þeir eru kjörnir fulltrúar.
Orð Illuga eru meðal annars sérstök í ljósi þess að þingmenn verða að gefa upp hagsmunatengsl sín við fyrirtæki með opinberum hætti. Slíkar upplýsingar eru bæði sjálfsagðar og nauðsynlegar svo störf þingmanna séu sem gagnsæust. Þar sem Illugi hefur ekki gefið nægilega góð svör um þessi störf sín er hann ennþá á gráa svæðinu.
Athugasemdir