Nóg að lesa fyrir börn og ungmenni

Mikil gróska er í útgáfu barna- og ung­menna­bóka um þessar mundir, hvort sem er eftir íslenska eða erlenda höf­unda. Í Bóka­tíð­indum, sem Félag íslenskra bóka­út­gef­enda gefur út, kemur fram að rétt tæp­lega helm­ingur barna­bóka sem koma út nú fyrir jólin eru eftir íslenska höf­unda. Eft­ir­far­andi listi, sem tekið skal fram að er langt frá því að vera tæm­andi, sýnir nokkur þeirra verka sem gefnar hafa verið út eftir íslenska höf­unda sem skrifa fyrir börn eða ung­menni í ár.

Nóg að lesa fyrir börn og ungmenni
Nokkrar nýút­komnar Mikill fjöldi bóka fyrir börn og ung­menni kemur út fyrir jólin. Myndin sýnir nokkrar þeirra.

Nornasaga – Hrekkjavakan eftir Kristínu Rögnu Gunnarsdóttur

Aðal­sögu­hetja bók­ar­innar, Katla, opnar óvart galdra­gátt á hrekkja­vök­unni og inn um hana smýgur Gullveig, ævaforn norn í hefnd­ar­hug. Til að bjarga heim­inum, og lífi besta vinar síns, þarf hún að hafa hraðar hendur því tím­inn er naumur! Kristín Ragna Gunn­ars­dóttir er höf­undur bæði mynda og texta. Hún hefur mynd­skreytt fjölda bóka í gegnum tíð­ina og oft hlotið við­ur­kenn­ingar fyrir bækur sínar, meðal ann­ars Íslensku mynd­skreyt­inga­verð­launin í tvígang. 

Rauði hatturinn og Krummi eftir Ásgerði Búadóttur 

Lista­safn Íslands gefur nú út bók­ina Rauða hatt­inn og Krumma í annað sinn, í minn­ingu Ásgerðar Búa­dóttur, sem bæði skrif­aði og mynd­skreytti bók­ina, en hún var fyrst gefin út af Helga­felli árið 1961. Klippi­mynd­irnar í bók­inni eru ein­faldar að formi, lif­andi og fal­legar. Textinn er prent­aður á fimm tungu­málum, íslensku, ensku, þýsku, dönsku og frönsku. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár