Meiðyrðamál meints eltihrellis fyrir dóm

Meið­yrða­mál Jóns Hjartar Sig­urðs­sonar, sem áreitti barns­móður sína árum saman, þing­fest í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur.

Meiðyrðamál meints eltihrellis fyrir dóm
Á gægjum Jón Hjörtur ónáð­aði barns­móður sína ítrekað við heim­ili hennar.

Meið­yrða­mál Jóns Hjartar Sig­urðs­sonar gegn barns­móður hans var þing­fest í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur þriðju­dag­inn 12. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Málið höfð­aði Jón Hjörtur vegna þess að barns­móðir hans sagði hann vera bæði ofbeld­is­mann og elti­hrelli. Stundin greindi frá mál­inu í júlí síð­ast­liðnum.

Jón Hjörtur stefndi kon­unni einkum fyrir ummæli sem féllu í lok­uðum umræðu­hópum kvenna á Facebook, meðal ann­ars í hóp­unum Aktí­vismi gegn nauðg­un­ar­menn­ingu og Ein­stæðar mæður. Þar kall­aði barns­móðir Jóns Hjartar hann „skrímsli“ og „ofbeld­is­mann“ og sagði hann stór­hættu­legan. Telur Jón Hjörtur að ummælin öll hafi falið í sér ólög­mæta mein­gerð og valdið sér miklum miska. 

Jón Hjörtur var úrskurð­aður í nálg­un­ar­bann gagn­vart kon­unni 15. júní 2012, í sex mán­uði, eftir að hafa verið stað­inn að því að ónáða hana ítrekað við hús hennar yfir þriggja ára …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár