„Konur eru ekkert minna áberandi en karlkyns höfundar í dag – nema síður sé“

Konur eru teknar alvar­lega sem skáld í dag, ólíkt því sem var þegar Soffía Auður Birg­is­dóttir var að stíga sín fyrstu skref sem bókarýnir fyrir rúm­lega þrjá­tíu árum. Í nýrri bók sem kemur út í til­efni af sex­tíu ára afmæli Soffíu bregður hún upp fjöl­breyttri mynd af konum í íslenskum bók­menntum.

„Konur eru ekkert minna áberandi en karlkyns höfundar í dag – nema síður sé“
Reynslu­mik­ill rýnir Soffía Auður hefur mark­visst rýnt í íslenskar bók­menntir í á fjórða ára­tug. Í nýrri bók hennar varpar hún upp fjöl­breyttri mynd af konum, í gegnum verk höf­unda á borð við Halldór Laxness, Svövu Jak­obs­dóttur, Vigdísi Gríms­dóttur, Kristínu Ómars­dóttur, Elísa­betu Kristínu Jök­uls­dóttur og marga fleiri. Mynd: Heiða Helgadóttir

Í á fjórða ára­tug hefur Soffía Auður Birg­is­dóttir verið virkur gagn­rýn­andi íslenskra bók­mennta. Hún hefur þar að auki gefið íslenskum skáld­konum sér­stakan gaum og lagt sig eftir að rýna í verk þeirra, nokkuð sem margir kollega hennar hafa van­rækt, í það minnsta hér áður fyrr. Nýlega kom út á vegum Háskóla­út­gáf­unnar bók hennar Maddama, kerl­ing, fröken, frú en í henni er að finna 31 grein eftir Soffíu, þar sem rýnt er í kven­lýs­ingar íslenskra nútíma­bók­mennta. Þannig varpar Soffía upp fjöl­breyttri mynd af konum, í gegnum verk höf­unda á borð við Halldór Laxness, Svövu Jak­obs­dóttur, Vigdísi Gríms­dóttur, Kristínu Ómars­dóttur, Elísa­betu Kristínu Jök­uls­dóttur og marga fleiri. 

Soffía fagnar sex­tugs­af­mæli sínu í ár. „Kannski var það afmæl­is­gjöf til sjálfrar mín að gefa út hluta af þessum greinum sem ég hef skrifað um konur í bók­menntum og kven­lýs­ingar í bók­menntum. Þó að meiri­hluti þeirra fjalli um kven­rit­höf­unda eru þarna líka greinar um bækur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár