Nýir skáldsagnahöfundar

Á hverju hausti spretta nýir skáld­sagna­höf­undar fram í dags­ljósið og demba sér í jóla­bóka­flóðið. Eft­ir­far­andi verk eru nýkomin í versl­anir og eiga það sam­eig­in­legt að vera fyrstu skáld­sögur höf­unda sinna.

Nýir skáldsagnahöfundar

Svínshöfuð eftir Bergþóru Snæbjörnsdóttur

Bergþóra Snæ­björns­dóttir, sem í fyrra hlaut til­nefn­ingu til bók­mennta­verð­launa fyrir ljóða­bók­ina Flórída, gefur nú út sína fyrstu skáld­sögu, Svíns­höfuð. Tit­ill­inn vísar til við­ur­nefnis aðal­per­són­unnar, eldri manns frá Breiða­firði. Hún segir einnig af kín­verskum mæðginum sem koma til Íslands um miðjan tíunda ára­tug­inn. Nýja fjöl­skyldan á sér gamlar sorgir, sárs­auk­inn liggur kyn­slóða á milli. Eins og strengur. Sagan flétt­ast frá upp­hafi seinni heims­styrj­ald­ar­innar með við­komu á lít­illi, breið­fir­skri eyju, suð­ur­hluta Kína. Og úthverfi Kópavogs.

Málleysingjarnir eftir Pedro Gunnlaug Garcia

Pedro Gunn­laugur Garcia hlaut nýrækt­ar­styrk Mið­stöðvar íslenskra bók­mennta árið 2017 með lof­sam­legri umsögn og eru því eflaust margir sem hafa beðið spenntir eftir fyrstu skáld­sögu Pedros. Sögusvið sög­unnar er Rúmenía árið 1989 og Ísland árið 2000. Hún segir af ungu fólki í flóknum og um sumt fjand­sam­legum heimi, en um leið er umbrota­skeiði lýst í fjör­mik­illi frá­sögn sem ein­kenn­ist í senn af frjóu ímynd­un­ar­afli og sterkri til­finn­ingu fyrir sér­kennum fólks og sögu.

Rannsóknin á leyndardómum Eyðihússins eftir Snæbjörn Arngrímsson 

Snæbjörn Arn­gríms­son er þekkt­astur fyrir störf sín sem bóka­út­gef­andi en hann gaf til að mynda út bæk­urnar um Harry Potter á sínum tíma. Hann hlaut Íslensku barna­bóka­verð­launin árið 2019 fyrir sína fyrstu skáld­sögu, Rann­sóknin á leynd­ar­dómum Eyði­húss­ins. Sagan segir af Guðjóni G. Georgs­syni sem er nýfluttur í Álftabæ og fær Eyði­húsið á heil­ann. Milla vin­kona hans sá aldrei Hrólf nágranna sinn, rík­asta mann þorps­ins, sem bjó í Eyði­hús­inu. Hann var víst skap­vondur ógæfu­maður sem sást sjaldan utandyra því senni­lega var honum illa við annað fólk. Dag einn birt­ist dul­ar­fullur tré­kist­ill á bóka­safn­s­tröpp­unum og bréf frá Hrólfi – þar sem bæj­ar­búar fá þrjár vís­bend­ingar, þrjá lykla að leynd­ar­dómum lífs hans og fjár­sjóðum. Lausnin er ekki ein­föld. Og sann­ar­lega ekki hættu­laus. En þá er gott að Guðjón G. Georgs­son og Milla eru saman í liði.

Ólyfjan eftir Díönu Sjöfn Jóhannsdóttur

Fyrsta skáld­saga Díönu Sjafnar Jóhanns­dóttur nefn­ist Ólyfjan. Í bók­inni tekst Díana á við eitr­aða karl­mennsku, sjálfs­myndir, sam­fé­lagið og skáld­sagna­formið. Í Ólyfjan segir af Snæja sem álítur lífið eitt stórt djók, eða að minnsta kosti sann­færir hann sjálfan sig um það. Með því hug­ar­fari nálg­ast hann sam­bönd, fjár­mál og vinnu. Á tímum er hann sann­færð­urum  að hann hljóti að vera hálf­gerður snill­ingur fyrir að finna upp á því­líkri lífs­speki en á öðrum stundum læð­ist nag­andi sjálfs­ef­inn að honum. Er það kannski hann sem er brand­ari bæj­ar­ins? Áður hefur Díana gefið út ljóða­bók­ina Freyja.

Austur eftir Braga Pál

Austur er fyrsta skáldsaga Braga Páls en áður hafa komið út eftir hann ljóða­bæk­urnar Full­komin ljóða­bók: ljóð, eða eitt­hvað (Til ham­ingju!) og HOLD, auk þess að hann hefur skrifað pistla um per­sónu­leg og sam­fé­lags­leg mál­efni. Austur segir frá Eyvindi, félags­lega ein­angr­uðum hag­fræð­ingi á fer­tugs­aldri. Í von­lausri leit Eyvindar að til­gangi sínum ferð­ast hann um hin þrjú dæmi­gerðu sögusvið íslenskrar sagna­hefðar; borg, sjó og sveit, með óvæntum brekkum og beygjum. 

Hefndarenglar eftir Eirík P. Jörundsson

Spennu­sagan Hefnd­ar­englar er fyrsta skáld­saga Eiríks P. Jör­unds­sonar en fyrir hand­rit hennar bar höf­und­ur­inn sigur úr býtum í sam­keppn­inni um Svart­fugl­inn 2019. Bókin fjallar um blaða­mann­inn Sölva sem er sendur til æsku­stöðva sinna, Súða­víkur, til að leita frétta af morði sem framið hefur verið í þorp­inu. Samhliða því að setja sig inn í ýmis mál sem tengj­ast hinum myrta er hann skikk­aður til að aðstoða unga og dug­mikla blaða­konu sem vinnur að frétt um mis­notkun á ungum stúlkum í und­ir­heimum Reykja­víkur. Bæði málin taka óvænta stefnu og varpa nýju ljósi á skelfi­lega atburði úr for­tíð­inni.

Ferðin á heimsenda – Leitin að vorinu eftir Sigrúnu Elíasdóttur

Fyrsta skáld­saga Sigrúnar Elí­as­dóttur, sem skrifuð er fyrir les­endur á aldr­inum átta til tólf ára, nefn­ist Ferðin á heimsenda – Leitin að vor­inu. Hún fjallar um Klaufa­bárð­inn Húgó og hörku­tólið Alex, sem leggja í lang­ferð til að graf­ast fyrir um hvernig stendur á því að ekk­ert bóli á vor­inu. Hættan bíður þeirra við hvert fót­mál og veitir ekki af bæði hug­rekki og hug­mynda­flugi í bar­áttu við ísdreka, sæpúka, aft­ur­gengna úlfa og veru­lega geð­vonda ein­hyrn­inga. Leitin að vor­inu er fyrsta bókin af þremur um vin­ina. Það er Sig­mundur Breið­fjörð sem mynd­skreytir sög­una.

Kokkáll eftir Halldór Halldórsson

Kokkáll er fyrsta skáld­saga Halldórs Hall­dórs­sonar sem alla jafna gengur undir nafn­inu Dóri DNA. Bókin fjallar um Örn, sem er sætur og vinnur á aug­lýs­inga­stofu, sem býður kærust­unni sinni, Hrafn­hildi, í helg­ar­ferð til Chicago til að fagna óvænt batn­andi skulda­stöðu sinni. Þar verður á vegi þeirra hinn hör­unds­dökki og stima­mjúki Tyrone og ekk­ert verður aftur samt. Þegar saman við bland­ast æsku­vinir Arnar, hin þroska­haml­aða Andrea og þver­haus­inn Hallur, verður úr eld­fimur kokk­teill sem hlýtur að springa með hvelli. 

Einfaldlega Emma eftir Unni Lilju Aradóttur

Ein­fald­lega Emma fjallar um Emmu, sem er 35 ára, ein­hleyp og sátt við líf sitt. En þegar hún verður ást­fangin af 19 ára syni bestu vin­konu sinnar breyt­ist líf hennar. Á sama tíma byrja löngu gleymdar minn­ingar úr æsku að ásækja hana. Óvæntir atburðir verða síðan til þess að umturna enn meir til­veru hennar og hún verður að sætta sig við að ekk­ert verður eins og áður. Ein­fald­lega Emma er fyrsta útgefan verk Unnar Lilju.  

Raunverulegt líf Guðbjargar Tómasdóttur eftir Þórarin Örn Þrándarson

Fyrsta skáld­saga Þórarins Arnar Þránd­ar­sonar, Raun­veru­legt líf Guð­bjartar Tóm­as­dóttur, segir af ljóð­skáld­inu Guð­björgu, nú fimm­tíu og fimm ára, sem hefur í gegnum árin skrifað niður sínar eigin minn­ingar og hug­renn­ingar. Við upp­rifjun á þessum skrifum tekst hún á við líf sitt og per­sónu. Hvernig sam­bandi hennar við fólkið í kringum hana var háttað. Hvernig hún tókst á við sam­band manns­ins síns við ungan nem­anda hans. Hversu upp­tekin hún var við að halda öðru fólki frá sann­leik­anum um líf hennar og líðan. Við upp­rifj­un­ina taka minn­ingar Guð­bjartar óvænta stefnu og varpa jafn­framt nýju ljósi á for­tíð­ina. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár