Litlar breytingar á fylgi flokka

Engar mark­tækar breyt­ingar eru á stuðn­ingi við stjórn­mála­flokka milli kann­ana MMR utan að Flokkur fólks­ins bætir mark­tækt við sig. Vinstri græn mæl­ast með minnst fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna.

Litlar breytingar á fylgi flokka
Óveru­lega breyt­ingar Litlar breyt­ingar eru á fylgi flokka milli kann­ana MMR. Mynd: Pressphotos

Litlar breyt­ingar mæl­ast á fylgi stjórn­mála­flokka milli mæl­inga mark­aðs­rann­sókna­fyr­ir­tæk­is­ins MMR. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með mest fylgi flokka, 21,1 pró­sent, sem er 1,3 pró­sentu­stigum hærra en í síð­ustu könnun fyr­ir­tæk­is­ins frá 9. októ­ber. Fylg­is­breyt­ingin er innan skekkju­marka, rétt eins og breyt­ingar á fylgi allra ann­arra flokka en Flokks fólks­ins, sem bætir mark­vert við sig milli mæl­inga.

Sam­fylk­ingin nýtur stuðn­ings 15,3 pró­senta aðspurðra og er það hækkun um 1,2 pró­sentu­stig. Þriðji stærsti flokkur lands­ins mæld­ist Mið­flokk­ur­inn með 13,5 pró­senta fylgi en hann mæld­ist síð­ast með 14,8 pró­senta fylgi. Þá mæl­ast bæði Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Viðreisn með 10 pró­senta stuðn­ing, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn stendur því sem næst í stað en Viðreisn mælist einu pró­sentu­stigi lægri en í síð­ustu könnun.

Vinstri græn mæl­ast nú minnst rík­is­stjórna­flokk­anna, þó ekki mark­tækt minni en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn. Flokk­ur­inn mælist með 9,7 pró­senta stuðn­ing en mæld­ist síð­ast með 10,3 pró­senta stuðn­ing. Píratar njóta fylgis 8,9 pró­senta aðspurðra, því sem næst sama fylgis og síð­ast.

Flokkur fólks­ins bætir hins vegar við sig 2,4 pró­sentu­stigum og nýtur nú fylgis 8 pró­senta aðspurðra. Sós­í­alista­flokkur Íslands nýtur stuðn­ings 2,6 pró­senta en mæld­ist með 3,1 pró­senta fylgi síð­ast. Fylgi ann­arra flokka mæld­ist 0,9 pró­sent. Þá mæld­ist stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina 42,2 pró­sent, því sem næst hið sama og í síð­ustu könnun.

972 svör­uðu könn­un­inni dag­ana 21. til 25. októ­ber. Þeir sem gáfu upp afstöðu til flokka voru 80,5 pró­sent, 5,6 pró­sent sögð­ust óákveðnir, 6,4 pró­sent sögð­ust myndu skila auðu, 2,7 pró­sent að þau myndu ekki mæta á kjör­stað og 4,8 pró­sent gáfu ekki upp afstöðu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár