Sjálfstæðisflokkurinn minni en nokkru sinni áður

Samkvæmt könnun MMR er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stærsti flokkur lands­ins, en fylgi hans þó aðeins 18,3 pró­sent.

Sjálfstæðisflokkurinn minni en nokkru sinni áður
Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur Fylgi rík­is­stjórn­ar­innar hækkar frá síð­ustu könnun MMR. Mynd: Davíð Þór

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með mest fylgi allra stjórn­mála­flokka í nýrri könnun MMR. Flokk­ur­inn mælist með 18,3% fylgi, en það er minnsta fylgi sem hann hefur mælst með frá upp­hafi mæl­inga MMR.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks mælist 43,7 pró­sent í könn­un­inni, nokkuð meira en í síð­ustu könnun þegar það mæld­ist 38,8 pró­sent. Sam­fylk­ingin mælist næst­stærsti flokkur lands­ins með 14,8 pró­senta fylgi, tæpum tveimur pró­sentum minna en í síð­ustu könnun.

Vinstri­hreyf­ingin - grænt fram­boð mælist þriðji stærsti flokkur lands­ins með 12,8 pró­senta fylgi. Píratar mæl­ast með 12,4 pró­senta fylgi, Mið­flokk­ur­inn 12 pró­sent og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn 11,8 pró­sent. Þá mæld­ist fylgi Við­reisnar 10,2 pró­sent, fylgi Flokks fólks­ins 4 pró­sent, en fylgi Sós­í­alista­flokks Íslands 2 pró­sent.

Allar breyt­ingar frá síð­ustu könnun MMR í ágúst mæld­ust innan vik­marka og því ekki töl­fræði­lega mark­tækur munur á fylg­is­breyt­ing­unum. Könnunin var fram­kvæmd 9. - 16. sept­em­ber 2019 og var heild­ar­fjöldi svar­enda 1045 ein­stak­lingar, 18 ára og eldri.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár