Segja Pence hommahatara og að viðhlæjendur hans eigi að skammast sín

„Ég er ein­fald­lega að sinna skyldu minni sem rót­tæk queer-mann­eskja,“ segir Jón Múli, annar mann­anna sem hand­teknir voru fyrir að kveikja í banda­ríska fán­anum við Höfða. „Þeir íslensku ráða­menn sem afbera að vera í sama her­bergi og þessi maður eiga að skamm­ast sín.“

Segja Pence hommahatara og að viðhlæjendur hans eigi að skammast sín

Lögregla hafði afskipti af tveimur mönnum við Sæbraut skammt frá Höfða í dag þar sem þeir mót­mæltu komu vara­for­seta Banda­ríkj­anna með því að kveikja í banda­rískum fána. Menn­irnir, Benjamín Julian og Jón Múli, voru hand­teknir og fluttir á lög­reglu­stöð­ina við Hverf­is­götu fyrir þær sakir að hafa kveikt eld á almanna­færi og smánað fána erlends ríkis. 

„Þegar við sáum að hátt­settir Íslend­ingar ætl­uðu að taka þessum vonda manni opnum örmum, möglu­laust, sáum við okkur nauð­beygða til að mót­mæla því,“ segir annar þeirra, Benjamín Julian, í sam­tali við Stundina. „Við vildum með því mót­mæla að hér væri í boði vett­vangur fyrir þær hroll­vekj­andi og klígju­kenndu skoð­anir sem Mike Pence ber í brjósti, og það við­stöðu­lausa her­afl sem hann dregur með sér til að bera ógn og hryll­ing um alla velli.“

„Þeir íslensku ráða­menn sem afbera að vera í sama her­bergi og þessi maður eiga að skamm­ast sín“

Jón Múli seg­ist hafa búið lengi í Banda­ríkj­unum og kynnst því að þar í landi sé löng hefð fyrir því að kveikt sé í þjóð­fán­anum til að sýna ráða­mönnum van­þóknun. „Með þess­ari aðgerð vil ég sýna queer-fólki í Band­ar­ríkj­unum sam­stöðu, fólki sem þarf að þola við­bjóðs­legur homoph­obe fari um heim­inn í nafni banda­ríkj­anna til að þykj­ast vera boð­beri frelsis og mann­rétt­inda á meðan hann gerir ekk­ert nema að ala á hatri og ofsóknum gagn­vart hinsegin fólki í Banda­ríkj­unum. Ég er ein­fald­lega að sinna skyldu minni sem rót­tæk queer-mann­eskja. Þeir íslensku ráða­menn sem afbera að vera í sama her­bergi og þessi maður eiga að skamm­ast sín.“

Fram kemur í til­kynn­ingu frá lög­reglu að menn­irnir hafi verið hand­teknir fyrir brot á lög­reglu­sam­þykkt og færðir á lög­reglu­stöð til skýrslu­töku. Heimsókn vara­for­seta Banda­ríkj­anna í Höfða er nú lokið og hefur hann yfir­gefið höf­uð­borg­ar­svæðið. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár