Leyniskyttur á þökum við Höfða

Mikill við­bún­aður er vegna komu Mike Pence, vara­for­seta Banda­ríkj­anna, til Íslands.

Leyniskyttur á þökum við Höfða
Skyttur Menn vopn­aðir rifflum hafa tekið sér stöðu uppi á þaki Advania. Myndin er aðsend.

Leyniskyttur eru uppi á hús­þökum við Borg­ar­tún. Sést hefur til manna með riffla á þökum hús­næðis Advania ann­ars vegar og Arion banka hins vegar sitt hvoru megin við Höfða, þar sem Mike Pence, vara­for­seti Banda­ríkj­anna, fundar nú með ráða­mönnum og for­sprökkum íslensks við­skipta­lífs.

Mikill við­bún­aður er vegna komu Pence til Íslands. Vopnaðir full­trúar frá banda­rísku leyni­þjón­ust­unni eru með honum í fylgd, en íslenskir lög­reglu­menn og sér­sveit Rík­is­lög­reglu­stjóra eiga einnig í sam­starfi um öryggi hans. Hann dvelur á land­inu í aðeins 7 klukku­stundir, en hann fundar nú í Höfða með Guðna Th. Jóhann­essyni, for­seta Íslands, og Elizu Reid for­seta­frú.

Bíða PenceÍslenska við­skipta­sendi­nefndin bíður þess í þögn að Mike Pence mæti á fund hennar.

Meðal þeirra sem funda með Pence eru Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka, Bogi Nils Bogason, for­stjóri Icelandair, Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, og Sigurður Hann­es­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðn­að­ar­ins.

Advania og Efling hafa flaggað regn­boga­fánum við hús­næði sín sitt hvoru megin við Höfða. Þá hefur regn­boga­fánum einnig verið flaggað á fánastangir í Borg­ar­túni sem til­heyra Reykja­vík­ur­borg.

Flaggað við Borg­ar­túnKomu Mike Pence er mót­mælt með regn­boga­fánum.

Pence hefur sætt gagn­rýni vegna and­stöðu sinnar við rétt­indi sam­kyn­hneigðra. Hefur hann verið and­vígur því að sam­kyn­hneigðir þjóni í banda­ríska hernum og kosið gegn auknum rétt­indum LGBT+ fólks. Hann er einnig and­vígur hjóna­böndum tveggja aðila af sama kyni. „Við erum bara að fagna fjöl­breyti­leik­anum eins og alla daga,“ sagði Þóra Tóm­as­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi Advania, í sam­tali við Stundina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár