Valdatafl í Kaupfélaginu: Það sem ekki er sagt í Skagafirði

Þórólfur Gíslason, kaup­fé­lags­stjóri í Skaga­firði, trónir á toppnum með meira en tvö­falt hærri tekjur en næst­tekju­hæsti Skag­firð­ing­ur­inn. Uppsögn Kaup­fé­lags Skag­firð­inga á Hólm­fríði Sveins­dóttur hjá nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækj­unum Iceprotein og Protis, hefur vakið upp grun­semdir og óánægju með hvata kaup­fé­lags­stjór­ans. Við­mæl­endur Stund­ar­innar segja að við­hafn­ar­við­tal við Þórólf í Morg­un­blað­inu hafi verið birt til að lægja öld­urnar út af upp­sögn­inni og tryggja gott veður á aðal­fundi kaup­fé­lags­ins. „Það er þessi ofboðs­lega hræðsla við hann,“ segir við­mæl­andi Stund­ar­innar í Skaga­firði.

Valdatafl í Kaupfélaginu: Það sem ekki er sagt í Skagafirði

Þegar Þórólfur Gíslason, for­stjóri Kaup­fé­lags Skag­firð­inga á Sauð­ár­króki, steig fram í sjald­séðu við­tali við Morg­un­blaðið um miðjan apríl síð­ast­lið­inn hafði hann glímt við háværar óánægju­raddir heima í hér­aði um skeið. Ástæðan var sú að Kaup­fé­lag Skag­firð­inga, í gegnum dótt­ur­fé­lag sitt FISK Seafood, hafði fyr­ir­vara­laust rekið Hólm­fríði Sveins­dóttur, doktor í nær­ing­ar­fræði og fram­kvæmda­stjóra hjá nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækj­unum Protis og Iceprotein, úr starfi sínu í byrjun febr­úar, eftir að störf hennar höfðu hlotið mikla jákvæða athygli. Efast er um skýr­ing­arnar á brott­rekstr­inum í Skaga­firði.

Hrafn Mar­geirs­son, sendi­bíl­stjóri og bónda­sonur úr Skaga­firði, sem býr hluta úr ári í Skaga­firði og sinnir bústörfum á jörð for­eldra sinna, segir að ólgan í Skaga­firði út af brott­rekstri Hólm­fríðar hafi verið mikil. „Það varð mikið uppi­stand síð­asta vetur þegar Jón Eðvald [Frið­riks­son, fram­kvæmda­stjóri FISK-Seafood] hættir og hann [Þórólfur] rekur Hólm­fríði. Ólgan varð ofboðs­leg og það átti svo sann­ar­lega að setja karl­inn af [Þórólf Gíslason],“ segir Hrafn sem vísar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár