Björn Bragi með „persónulegt grín“ eftir kynferðislega áreitni

Björn Bragi Arn­ars­son uppi­stand­ari snýr aftur með sýn­ingar eftir að hafa játað áreiti gagn­vart stúlku undir lög­aldri. Hann þén­aði 1,5 millj­ónir á mán­uði í fyrra og tók þátt í sýn­ingum Mið-Íslands í jan­úar, tveimur mán­uðum eftir atvikið.

Björn Bragi með „persónulegt grín“ eftir kynferðislega áreitni
Myndir Björns Braga og Kathy Griffin Grínist­inn Kathy Griffin mætti miklu mót­læti vegna myndar af blóð­ugum haus Banda­ríkja­for­seta.

Björn Bragi Arn­ars­son uppi­stand­ari lofar „per­sónu­legra gríni en áður“ í nýrri sýn­ingu. Í lok októ­ber í fyrra ját­aði hann að hafa áreitt 17 ára stúlku kyn­ferð­is­lega.

„Síðasta haust var ég að spá í að flytja úr landi og koma aldrei aftur,“ skrif­aði hann á Facebook á fimmtu­dag. „Í stað­inn fáið þið uppi­standið Björn Bragi Djöf­uls­son, föstu­dag­inn 13. sept­em­ber í Gamla bíói. Anna Svava verður með mér og hitar upp. Vil þakka Leoncie fyrir að hafa komið með heitið á sýn­ing­unni en hún kall­aði mig þessu geggj­aða nafni í kommenta­kerfi DV.“

Björn Bragi flutti hins vegar ekki úr landi heldur tók aftur þátt í sýn­ingum Mið-Íslands í Þjóð­leik­hús­kjall­ar­anum sem byrj­uðu á ný í jan­úar á þessu ári. Sýn­ing­arnar hafa verið ein helsta tekju­lind með­lima hóps­ins, en sam­kvæmt álagn­ing­ar­skrá rík­is­skatt­stjóra þén­aði Björn Bragi tæp­lega 1,5 millj­ónir á mán­uði á síð­asta ári. Þá var Björn Bragi einnig spyrill í Gettu betur, en hann sagði starfi sínu lausu vegna máls­ins.

Nýja sýn­ingin hefur vakið hörð við­brögð á sam­fé­lags­miðlum. „Þetta mál var alla­vega upp­spretta margra brand­ara á Mið-Ísland uppi­standi sem ég fór á í jan­úar (bæði hjá honum og öðrum),“ skrifar Twitter-not­and­inn Þóra Sif Guð­munds­dóttir. „Fannst það mjög óvið­eig­andi. Enn fremur skil ég ekki hvernig sú stað­reynd að hann káf­aði á 17 ára stúlku telj­ist sem gott efni í grín.“

Björn Bragi bað stúlk­una opin­ber­lega afsök­unar og sendi hún frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hún sagði sig og for­eldra sína taka afsök­un­ar­beiðn­inni. Í kjöl­farið steig önnur kona fram og sagði Björn Braga hafa áreitt sig og vin­konur sínar.

„Ég á tvær litlar dætur, ég vil ekki að þær alist upp í þjóð­fé­lagi þar sem það telst eðli­legt og sam­þykkt að skemmti­kraftar á fer­tugs­aldri eru að káfa á og reyna við ungar stelpur,“ skrifar Guðný Thoraren­sen á Twitter. „Hættið að kóa með þessum mönnum! Þetta er ekki eðli­leg hegðun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár