Brot Björns Braga varða við hegningarlög

Björn Bragi Arnarson, sjón­varps­maður og grínisti, játar ósæmi­lega snert­ingu á 17 ára stúlku í til­kynn­ingu í nótt. Slík snert­ing „innan klæða sem utan“ getur varðað allt að tveggja ára fang­elsi sam­kvæmt lögum.

Brot Björns Braga varða við hegningarlög
Játar kyn­ferð­is­legt áreiti Björn Bragi hefur játað að hafa áreitt 17 ára stúlku kyn­ferð­is­lega með því að hafa snert hana á ósæmi­legan hátt um liðna helgi.

Björn Bragi Arn­ars­son, sjón­varps­maður og grínisti, játar að hafa snert 17 ára stúlku „á ósæmi­legan hátt“ og biðst afsök­unar í til­kynn­ingu á Facebook í nótt. Myndband sem sýnir atvikið fór á dreif­ingu á sam­fé­lags­miðlum í gær­kvöldi.

Samkvæmt 199. gr. almennra hegn­ing­ar­laga skal hver sá sem ger­ist sekur um kyn­ferð­is­lega áreitni sæta fang­elsi allt að 2 árum. „Kyn­ferð­is­leg áreitni felst m.a. í því að strjúka, þukla eða káfa á kyn­færum eða brjóstum ann­ars manns innan klæða sem utan, enn fremur í tákn­rænni hegðun eða orð­bragði sem er mjög meið­andi, ítrekað eða til þess fallið að valda ótta,“ segir í grein­inni. Þá segir í 99. gr. barna­vernd­ar­laga að van­virð­andi hátt­semi gagn­vart barni skuli sæta sektum eða fang­elsi allt að þremur árum.

Atvikið átti sér stað aðfar­arnótt sunnu­dags. Mynd­bandið sýnir Björn Braga káfa á klofi 17 ára stúlku utan klæða. Samkvæmt til­kynn­ingu hans í nótt þekkt­ust þau ekki fyrir.

„Við áttum stutt sam­skipti og ég snerti hana á ósæmi­legan hátt,“ skrifar hann. „Þessi hegðun mín var algjör­lega óásætt­an­leg og ég er miður mín yfir því að hafa hagað mér með þessum hætti. Það að ég hafi verið undir áhrifum áfengis er engin afsökun.“

Í til­kynn­ing­unni seg­ist Björn Bragi hafa sett sig í sam­band við stúlk­una og fjöl­skyldu hennar á mánu­dags­kvöld. „Ég bað hana ein­lægrar afsök­unar á fram­komu minni. Ég gekk of langt og tek fulla ábyrgð á þessu atviki. Ég átti gott sam­tal við móður stúlkunnar. Hún sagði mér að fjöl­miðlar hefðu reynt að ná sam­bandi við bæði sig og stúlk­una. Hún vildi koma á fram­færi ósk um að þau yrðu látin í friði. Það vil ég líka gera. Ég ber alla ábyrgð hér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár