Í sumar hafa hellst yfir okkur fréttir af milljarða framkvæmdum á Keflavíkurflugvelli. Íslenska ríkið hyggst leggja 400 milljónir króna til framkvæmda NATÓ sem snúa að viðhaldi á mannvirkjun og ratsjárstöðvum. Á sama tíma var þróunaraðstoð skorin niður eins og til að undirstrika furðulega forgangsröðun utanríkisráðuneytisins.
Uggvænlegri eru þó framkvæmdir Bandaríkjahers, þær fyrstu umtalsverðu frá því að herinn fór árið 2006. Fyrst ber að nefna endurbætur á flugskýli og þvottastöð fyrir kafbátaleitarvélar. Þetta hefur verið á borði utanríkisráðuneytisins í nokkur ár en nú eru framkvæmdirnar komnar í útboð svo að örugglega verði hægt að leika hér kaldastríðsleiki á íslensku hafssvæði með tilheyrandi hættu á slysum og truflun fyrir lífríki. Einnig má nefna nýtt svæði fyrir flugvélar með hættulegan farangur, fyrst og fremst þá sprengjur sem flytja á um völlinn þó að reynt sé að telja til möguleg not fyrir almenna flugumferð.
Það sem er hinsvegar nýtt í þessum fréttum í sumar eru áætlanir um gámaíbúðir fyrir meira en 1000 hermenn. Það hefur reyndar komið í ljós að þrátt fyrir að herinn eigi að heita farinn þá hefur herlið verið staðsett hér samfleytt í meira en þrjú ár en með þessum gámaíbúðum á greinilega að stórauka þessa viðveru eða gera liðsflutninga um Ísland auðveldari.
Allt er þetta partur af stefnu núverandi Bandaríkjastjórnar um að hervæða Norður-heimskautið eins og Mike Pompeo utanríkisráðherra útlistaði í heimsókn sinni hingað nýlega og birtist okkur í hinni klaufalegu Trident Juncture heræfingu á síðasta ári. Það var ekki traustvekjandi að hætta þurfti við landgöngu á Suðurnesjum vegna veðurs og seinna rakst herskip á olíuskip undan strönd Noregs.
Yfirlýstur vilji forsætisráðherra er að hernaðarumsvifum verið haldið í lágmarki á norðurslóðum en þessar framkvæmdir ganga þvert gegn honum. Það þjónar ekki hagsmunum Íslands að dragast inn í vígvæðingarkapphlaup Bandaríkjanna, hvað þá þegar stjórnvöld þar standa gegn öllum þeim málum sem íslensk stjórnvöldu kveðast munu setja á oddinn í formennskutíð sinni í Norðurheimskautsráði.
Ríkisstjórnin og allir flokkar á Alþingi ættu að hafna þessari hernaðaruppbyggingu á Keflavíkurflugvelli og taka varnarsamninginn við Bandaríkin til endurskoðunar. Það dugar heldur ekki fyrir Vinstri-græn að skýla sér á bak við ríkistjórnarsetu og viljayfirlýsingar ef herinn snýr aftur á þeirra vakt. Þá er lítið að marka þá sérstöðu sem flokkurinn kveðst hafa í utanríkismálum á þingi.
Höfundur er formaður Samtaka hernaðarandstæðinga
Athugasemdir