Katastrófa fyrir danska jafnaðarmenn

Þrátt fyrir að vera stærstur eru stjórn­mála­skýrendur á einu máli um að sveita­stjórn­ar­kosn­ing­arnar í Danmörku hafi verið kata­st­rófa fyrir Jafn­að­ar­manna­flokk­inn. Venstre hefur þegar tryggt sér fleiri borgar- og bæj­ar­stjóra­stóla, þó fylgi hans hafi líka dreg­ist saman.

Katastrófa fyrir danska jafnaðarmenn
Barátta Borgir og bæir Kaup­manna­hafnar hafa und­an­farnar vikur verið skreyttar myndum fram­bjóð­enda. Mynd: Sergei GAPON / AFP

Þrátt fyrir að vera stærsti flokk­ur­inn á lands­vísu hafa danskir stjórn­mála­skýr­ingar lýst sveita­stjórn­ar­kosn­ing­unum sem kata­st­rófu fyrir Jafn­að­ar­manna­flokk Mette Frederik­sen. Stuðn­ingur við flokk­inn dróst saman um meira en fimm pró­sent frá því árið 2021. 

Jafn­að­ar­menn bjugg­ust við að tapa fylgi miðað við síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar en snemma í gær­kvöldi við­ur­kenndi for­maður flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra, Mette Frederik­sen, að útlitið virt­ist vera verra en búist hafði verið við.

Nú í morg­unsárið er ljóst að Jafn­að­ar­menn töp­uðu fylgi í 87 af 98 sveit­ar­fé­lögum.

Kaup­manna­höfn var vígi sem Jafn­að­ar­menn höfðu haldið í meira en 100 ár og átt yfir­borg­ar­stjóra allar götur síðan 1938, þegar það emb­ætti var fyrst skipað. Flokk­ur­inn missti einnig völd í Gladsaxe, Næstved, Hol­stebro, Køge og Fredericia – fimm sveit­ar­fé­lögum sem lengi hafa verið talin sterk vígi Jafn­að­ar­manna.

Hvergi var fylgis­tapið þó meira en í Frederiks­havn, þar sem Jafn­að­ar­menn töp­uðu meira en 31 pró­sent fylgi frá síð­ustu kosn­ingum. 

Hægri flokk­ur­inn Venstre hefur í nótt staðið í ströngu við myndun meiri­hluta víða um land og hefur þegar tryggt sér borgar- og bæj­ar­stjóra­emb­ætti í 39 sveit­ar­fé­lögum, þrátt fyrir að hafa tapað fylgi í kosn­ing­unum. Flokk­ur­inn er því í leið­toga­stöðu í fleiri sveit­ar­fé­lögum en nokkur annar flokkur.

Jafn­að­ar­menn hafa hins vegar náð að semja sig í 26 stóla, sem er langt frá þeim 44 sem flokk­ur­inn hafði síð­asta kjör­tíma­bilið. 

Enn er óljóst hver verður yfir­borg­ar­stjóri í Kaup­manna­höfn. Ein­inga­list­inn hlaut rúm 22 pró­sent, Sós­íal­íski þjóð­ar­flokk­ur­inn tæp 18 og Jafn­að­ar­menn 12,7 pró­sent. Bæði Ein­ing­ar­list­inn og Jafn­að­ar­menn töp­uðu fylgi á milli kosn­inga en vinstri flokk­arnir héldu þó meiri­hluta borg­ar­full­trúa. 

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þorkell Egilsson skrifaði
    Trump er víða…því miður kjósa fylgismenn hins ömurlegs leiðtoga USA með rassgatinu frekar en með hagsmunum heildarinnar. Heilbrigði er dýrmætari eign en Kronan í vasanum.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár