Umsvif Bandaríkjahers gætu reynst VG erfið

Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur ætlar að fylgja þjóðar­ör­ygg­is­stefnu sem stang­ast á við yfir­lýsta stefnu Vinstri grænna.

Umsvif Bandaríkjahers gætu reynst VG erfið
Boða úrsögn úr NATO Vinstri hreyf­ingin grænt fram­boð hefur það á stefnu­skrá sinni að Ísland segi sig úr Atl­ants­hafs­banda­lag­inu. Aldrei hefur mynd­ast meiri­hluti fyrir slíkri stefnu á Alþingi. Mynd: Pressphotos

Banda­ríski flug­her­inn hefur farið fram á and­virði um eins og hálfs millj­arðs króna á fjár­lögum Banda­ríkj­anna á næsta ári til fram­kvæmda á Kefla­vík­ur­flug­velli. Þetta kom fram í frétt Foreign Policy í síð­ustu viku og greint var frá á RÚV, en fjár­veit­ingin verður notuð til fram­kvæmda við flug­skýli á Kefla­vík­ur­flug­velli svo hægt verði að koma þar fyrir fleiri P8 Poseidon kaf­báta­leit­ar­flug­vélum. Eins og nýlega var fjallað um í frétta­skýr­inga­þætt­inum Kveik hafa umsvif rúss­neskra kaf­báta við Íslands­strendur auk­ist umtals­vert að und­an­förnu. Samhliða hafa umsvif kaf­báta­leit­ar­sveita aðild­ar­ríkja Atl­ants­hafs­banda­lags­ins stór­auk­ist. 

Aukin umsvif Banda­ríkja­hers á Íslandi og Atl­ants­hafs­banda­lags­ins í haf­inu kringum Ísland gætu reynst Vinstri grænum erfið, en flokk­ur­inn er með það á stefnu­skrá sinni að Ísland skuli standa utan allra hern­að­ar­banda­laga og hafna víg­væð­ingu. „Ekki á að leyfa her­æf­ingar í land­inu eða innan lög­sögu þess. Ísland og íslenska lög­sögu á að frið­lýsa fyrir umferð með kjarn­orku-, sýkla- og efna­vopn í lofti, á láði og legi,“ segir meðal ann­ars í stefnu Vg. Þá eigi Ísland að segja sig úr Atl­ants­hafs­banda­lag­inu og biðj­ast afsök­unar á þátt­töku sinni í hern­að­ar­að­gerðum á þeirra vegum. Jafn­framt skuli standa í vegi fyrir komu her­skipa og her­flug­véla til Íslands.

Flokks­for­ysta Vinstri grænna þurfti að gefa tals­vert eftir í and­stöðu sinni við hernað og hern­að­ar­banda­lög þegar flokk­ur­inn átti í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi við Sam­fylk­ing­una á tíma­bil­inu 2009 til 2013. Á þeim árum juk­ust fram­lög hins opin­bera til Atl­ants­hafs­banda­lags­ins, auk þess sem Ísland varð, sem eitt af aðild­ar­ríkjum NATO, óbeinn þátt­tak­andi í hern­að­ar­að­gerðum banda­lags­ins í Líbíu. Á þessum árum fór Sam­fylk­ingin með utan­rík­is­ráðu­neytið auk þess sem mik­ill þing­meiri­hluti var og er enn fyrir áfram­hald­andi veru Íslands í NATO.  

„Atl­ants­hafs­banda­lagið verði áfram
lyk­il­stoð í vörnum Íslands“

Í stjórn­ar­sátt­mála nýrrar rík­is­stjórnar, undir for­ystu Katrínar Jak­obs­dóttur, kemur fram að „þjóðar­ör­ygg­is­stefna Íslands sem sam­þykkt var af Alþingi“ verði höfð að leið­ar­ljósi næstu ár. Í umræddri stefnu, sem sam­þykkt var í formi þings­á­lykt­unar þann 13. apríl 2016, kemur fram að „Atl­ants­hafs­banda­lagið verði áfram lyk­il­stoð í vörnum Íslands og meg­in­vett­vangur vest­rænnar sam­vinnu sem Ísland tekur þátt í á borg­ara­legum for­sendum til að efla eigið öryggi og ann­arra banda­lags­ríkja“. Þetta stang­ast á við stefnu Vinstri grænna en er í sam­ræmi við stefnu flestra ann­arra flokka á Alþingi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár