Styrkt af stórum aðilum í atvinnulífinu

Stjórn­mála­flokk­ur­inn Viðreisn var rek­inn með 15 milljón króna tapi í fyrra sem rekja má til óvæntra kosn­inga. Útgerð­irnar Brim, Síld­ar­vinnslan og Þorbjörn voru meðal helstu styrkt­ar­að­ila flokks­ins.

Styrkt af stórum aðilum í atvinnulífinu
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir Viðreisn fékk 29 millj­ónir í styrki frá ein­stak­lingum og lög­að­ilum í fyrra. Mynd: Golli

Viðreisn tap­aði 15 millj­ónum króna í fyrra eftir hagnað upp á rúma 41 milljón árið áður. Ástæðan var óvæntar Alþing­is­kosn­ingar en 29 millj­ónir í fjár­fram­lög komu frá ein­stak­lingum fyr­ir­tækjum, mikið til frá stórum aðilum í atvinnu­líf­inu.

Yfir­dráttur og aðrar skamm­tíma­skuldir í lok árs voru greiddar í upp­hafi árs 2025, að því segir í árs­reikn­ingi Við­reisnar vegna 2024 sem sam­þykktur hefur verið af Rík­is­end­ur­skoðun. Eigið fé flokks­ins var tæpar 8 millj­ónir í lok árs.

„Breyt­ingin á eigin fé og rekstr­ar­nið­ur­stöðu skýrist að mestu af kostn­aði vegna alþing­is­kosn­inga í lok nóv­em­ber 2024, í kjöl­far þing­rofs­beiðni for­sæt­is­ráð­herra í októ­ber sama ár,“ segir í árs­reikn­ingnum. „Eftir kosn­ing­arnar var Viðreisn þriðji stærsti flokkur lands­ins. Hann hlaut 15,8% atkvæða í kosn­ing­unum og 11 þing­sæti, sem var fjölgun um 6 þing­sæti. Þetta er í fyrsta sinn sem Viðreisn hefur þing­mann í öllum kjör­dæmum. Í des­em­ber mynd­aði Viðreisn rík­is­stjórn með Sam­fylk­ingu og Flokki fólks­ins og fer nú með ráðu­neyti utan­rík­is­mála, fjár­mála, atvinnu­vega og dóms­mála.“

„Breyt­ingin á eigin fé og rekstr­ar­nið­ur­stöðu skýrist að mestu af kostn­aði vegna alþing­is­kosn­inga“

Fram kemur að starfs­menn flokks­ins hafi verið tveir allt árið, sem er fjölgun frá árinu 2023 þegar einn starfs­maður var fyrstu átta mán­uð­ina. Skýrir þetta hækkun á launa­kostn­aði á árinu.

„Kostn­aður vegna Alþing­is­kosn­inga var alls 67.096.209 kr. á árinu 2024,“ segir í árs­reikn­ingnum. „Til sam­an­burðar var kostn­aður vegna Alþing­is­kosn­inga 2021 um 85 m.kr.“

Framlög frá stórum aðilum í atvinnulífinu

Viðreisn fékk 61 milljón króna í fjár­fram­lög úr rík­is­sjóði eins og í fyrra, tæpar 11 millj­ónir frá Alþingi og rúmar 3 frá sveit­ar­fé­lögum.

Fjár­fram­lög lög­að­ila námu 15 millj­ónum í fyrra og fjár­fram­lög ein­stak­linga 14 millj­ónum. Stærstu styrkt­ar­að­ilar Við­reisnar voru ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækið Kynn­is­ferðir, útgerðin Brim, fisk­eldið Kaldvík, heild­salan Egilsson, eign­ar­halds­fé­lagið Sigtún, HS Orka og Hof­garðar, sem er félag í eigu eins af stofn­endum Við­reisnar, Helga Magn­ús­sonar. Öll styrktu Viðreisn um 550.000 kr. Aðrir lög­að­ilar sem styrktu um háar upp­hæðir voru Arion banki,  Kvika, Ölgerðin, Stoðir, Mókollur, Linda­berg og sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækin Síld­ar­vinnslan og Þorbjörn.

Af ein­stak­lingum gáfu Bárður G Hall­dórs­son og Gunn­laugur A Jónsson báðir hámarks­upp­hæð, 550.000 kr., en kjörnir full­trúar flokks­ins voru á meðal ann­arra áber­andi ein­stak­linga.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár