Stálu rafmagni fyrir milljarða til að grafa eftir rafmyntum

Mala­sískt orku­fyr­ir­tæki segir ólög­legan raf­mynta­gröft grafa undan efna­hags­legum stöð­ug­leika og auka hættu fyrir almanna­ör­yggi. Fyr­ir­tækið hefur kort­lagt 13.827 staði þar sem grunur leikur á að ólög­legur raf­mynta­gröftur fari fram.

Stálu rafmagni fyrir milljarða til að grafa eftir rafmyntum

Rafveita Malasíu tap­aði raf­magni að verð­mæti 143 millj­arða króna vegna ólög­legs raf­mynta­námu­graftrar frá árinu 2020. Orku­mála­ráðu­neytið sagði þjófn­að­inn vera „alvar­lega ógn við orku­veitu­kerfi lands­ins“.

Rík­is­raf­veitan Tenaga Nasional Berhad (TNB) fann einnig 13.827 staði sem grun­aðir voru um að vera mið­stöðvar ólög­legs raf­mynta­námu­graftrar, sagði ráðu­neytið í svari til þings­ins sem lagt var fram á þriðju­dag.

„Þessi starf­semi ógnar ekki aðeins öryggi not­enda, heldur stofnar hún efna­hags­legum stöð­ug­leika þjóð­ar­innar í hættu, eykur áhættu fyrir almanna­ör­yggi ... og er alvar­leg ógn við orku­veitu­kerfi lands­ins,“ sagði í svar­inu.

Raf­mynta­námu­gröftur er ekki ólög­legur í Malasíu en rekstr­ar­að­ilar verða að fara eftir reglum stjórn­valda, þar á meðal skrán­ingu, umhverf­is­mati og orku­nýtni­skoð­unum.

TNB hefur komið á fót gagna­grunni með skrám yfir eig­endur og leigj­endur sem grun­aðir eru um að stela raf­magni til að knýja bitcoin-námu­gröft, sagði ráðu­neytið, og vinnur með lög­gæslu­yf­ir­völdum að því að sporna við ólög­legum námu­greftri.

Mala­síska lög­reglan …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár