Mettekjur hjá Nvidia á meðan greinendur óttast gervigreindarbólu

Jensen Huang, for­stjóri og einn stofn­enda Nvidia, blæs á ótta grein­enda um að gervi­greind­ar­bóla sé að mynd­ast á mörk­uðum.

Mettekjur hjá Nvidia á meðan greinendur óttast gervigreindarbólu
Stjórinn Jensen Huang er for­stjóri og einn stofn­enda Nvidia. Mynd: Jung Yeon-je / AFP

Hluta­bréf í Nvidia hækk­uðu í gær eftir að fyr­ir­tækið skil­aði af sér betri rekstr­ar­nið­ur­stöðum en gert hafði verið ráð fyrir. Hagn­að­ur­inn er knú­inn áfram af gríð­ar­legri eft­ir­spurn eftir sér­hæfðum flögum sem knýja gervi­greind­ar­hug­búnað.

Nið­ur­stöð­urnar birt­ust á sama tíma og sífellt fleiri mark­aðs­grein­endur velta fyrir sér hvort að það sé að mynd­ast gervi­greind­ar­bóla á mark­aði. Athyglin bein­ist öll að Nvidia, sem er lyk­il­fyr­ir­tæki í grein­inni, og getu þess til að stand­ast vax­andi efa­semdir.

„Það hefur verið mikið talað um að gervi­greind­ar­bóla sé í vændum,“ sagði Jensen Huang, for­stjóri Nvidia, í árs­hluta­upp­gjör­inu. „Frá okkar sjón­ar­horni, sjáum við allt annað.“

Að sögn Huang eru fyr­ir­tæki um allan heim að færa sig frá hefð­bundnum tölvu­kerfum sem byggja á örgjörvum (CPU) yfir í AI-inn­leidd kerfi sem treysta á skjá­kortsör­gjörva (GPU), sem er sér­grein Nvidia.

Auk þess eru hug­bún­að­ar­lausnir að aðlag­ast hratt gervi­greind og nú fjölgi svoköll­uðum AI-„umboðs­mönnum“ sem geta …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    Why is it that Sundar Pichai, CEO Google, warns that AI will not meet expectations!? Why is it that Peter Thiel, Silicon Valley Oligarch, sells all his NVIDIA shares !? Signs are in abundance that - like in 2000 the dot-com bubble - the current global multi-billion dollar AI hysteria will explode with very serious - much graver than 2000 -consequences for the global economy! Couldn’t and shouldn’t we all have known that “Artificial Intelligence” is exactly that: artificial or synthetic like plastic, and intelligent without inherent intellect or consciousness!?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár