ESB frestar lögum til verndar skóglendi

Nestlé og fram­leið­andi Nutella eru ósátt við að fresta lög­unum. „Skrípa­mynd af van­hæfri stefnu­mótun ESB,“ segir tals­maður umhverf­is­vernd­ar­sam­taka.

ESB frestar lögum til verndar skóglendi
Skóg­areyð­ing Hér eru tré felld og skógur brenndur til að opna fyrir land­búnað og búfjár­rækt í Jamanxim í Brasilíu. Mynd: Shutterstock

Aðild­ar­ríki ESB studdu í dag frestun til eins árs á tíma­móta­reglum gegn skóg­areyð­ingu sem hafa mætt harðri and­stöðu frá fyr­ir­tækjum og við­skipta­löndum, að sögn erind­reka sem AFP ræddi við.

Inn­leið­ingu lag­anna, sem banna inn­flutn­ing á vörum sem valda eyð­ingu skógar og hefur þegar verið frestað um eitt ár, yrði frestað til loka árs 2026 sam­kvæmt áætl­unum sem meiri­hluti aðild­ar­ríkja styður. Þær þurfa enn sam­þykki Evr­ópu­þings­ins.

Undir for­ystu Þýska­lands og Aust­ur­ríkis studdu ESB-ríkin einnig að lög­gjöfin yrði end­ur­skoðuð í apríl á næsta ári, áður en hún tekur gildi.

Evr­ópu­sam­bandið hefur und­an­farið unnið að því að ein­falda reglu­verk og vinda ofan af ákvörð­unum um strang­ari kröfur varð­andi umhverf­is­vernd og mann­rétt­indi, til þess að hjálpa Evr­ópu­ríkjum í harðri sam­keppni við Kína og Banda­ríkin.

Nýja frest­unin gengur lengra en sex mán­aða aðlög­un­ar­tíma­bil fyrir stór fyr­ir­tæki sem fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins hafði þegar lagt til, en styður jafn­framt kröfu um að draga úr kröfum um skýrslu­gerðir, meðal ann­ars fyrir lítil fyr­ir­tæki.

Pierre-Jean Sol Brasier hjá umhverf­is­sam­tök­unum Fern sagði að þessi aðgerð sendi „hörmu­leg skila­boð á öllum sviðum“ og kall­aði hringl­anda­hátt­inn varð­andi lögin „skrípa­mynd af van­hæfri stefnu­mótun ESB“.

„Við erum að skapa óstöð­ug­leika fyrir fyr­ir­tæki sem hafa fjár­fest fyrir millj­ónir“ til að upp­fylla kröf­urnar, var­aði Sol Brasier við og sagði að nú væri opið fyrir „að lög­gjafar ESB tæmdu“ text­ann að innan.

Stórt skref í umhverfisvernd

Lögin gegn skóg­areyð­ingu, þekkt sem EUDR, voru sam­þykkt árið 2023 og voru lofuð af umhverf­is­sam­tökum sem stórt skref í bar­átt­unni fyrir verndun nátt­úr­unnar og gegn lofts­lags­breyt­ingum.

En lögin hafa mætt harðri and­stöðu frá við­skipta­löndum, þar á meðal Brasilíu og Banda­ríkj­unum, auk stjórn­valda í nokkrum ESB-ríkjum, sem halda því fram að fyr­ir­tæki muni líða fyrir skrif­finnsku og auknum kostn­aði.

Lögin banna vörur sem fram­leiddar eru á landi þar sem var eytt skógi eftir des­em­ber 2020, en meðal áhættu­vara eru allt frá kaffi til kakós, soja, timb­urs, pálma­olíu, naut­gripa, prent­papp­írs og gúmmís.

Fyr­ir­tæki sem flytja slíkar vörur til 27 ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins þurfa að leggja fram yfir­lýs­ingu ásamt stað­setn­ing­ar­gögnum og gervi­hnatta­gögnum til að sýna fram á að vör­urnar komi ekki frá eyðilögðu skóg­lendi.

Samkvæmt upp­haf­legu áætl­un­inni þurftu fyr­ir­tæki sem síðan kaupa, vinna og selja vör­urnar – til dæmis sæl­gæt­is­fram­leið­endur sem kaupa kakó til að búa til súkkulaði – einnig að leggja fram slík skjöl.

En fram­kvæmda­stjórnin ákvað síðar að auka­at­hug­unin gæti ofhlaðið upp­lýs­inga­tækni­kerfið sem hannað var til að styðja við regl­urnar – og kall­aði eftir því að krafan yrði felld niður fyrir alla nema fyrstu inn­flytj­endur.

Nestlé ósátt við frestun

Hringl­anda­háttur um lög­fest­ing­una hefur bæði truflað umhverf­is­vern­ar­sinna og svo sum fyr­ir­tæki sem hafa þegar fjár­fest til að upp­fylla þær.

Ítalski súkkulaði­fram­leið­and­inn Ferrero og sviss­neski mat­væl­aris­inn Nestlé eru meðal tveggja tuga fyr­ir­tækja sem vör­uðu við því í vik­unni að frek­ari eins árs frestun myndi „lengja laga­lega og mark­aðs­lega óvissu, refsa þeim sem eru fyrstir til að bregð­ast við og verð­launa aðgerða­leysi.“

„Við höfum lagt upp í þessa fjár­fest­ingu í góðri trú vegna þess að við héldum að það væri skýr stefna – og nú er varpað efa­semdum á hana,“ sagði Francesco Tramontin, hátt­settur stjórn­andi hjá Nutella-fram­leið­and­anum Ferrero, á blaða­manna­fundi á mánu­dag.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ESB

EfnahagsmálHorft til Evrópu

Efna­hags­legur ávinn­ingur „blasir við“

Hver er kostn­að­ur­inn við Evr­ópu­sam­bandið og hvað myndum við fá til baka? Gylfi Magn­ús­son, pró­fessor í hag­fræði, fer yfir efna­hags­leg áhrif af mögu­legri aðild að Evr­ópu­sam­band­inu. Áætlað er að nettófram­lag Íslands gæti verið á bil­inu sex til 15 millj­arðar á ári, en pró­fess­or­inn telur efna­hags­legan ávinn­ing meiri en útgjöldin.

9 mín. lestur

Mest lesið

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár