Vill slátra „skrifræðisskrímsli“ Evrópusambandsins

Friedrich Merz, kansl­ari Þýska­lands, kallar eftir sjálf­stæðri Evrópu í upp­hitun fyrir leið­toga­fund ESB, þar sem þrýst verður á við­skipta­vænna umhverfi.

Friedrich Merz
Friedrich Merz Kristi­legi demókrat­inn boðar aðgerðir til ein­föld­unar við­skiptaum­hverf­is­ins dag­inn fyrir leið­toga­fund Evr­ópu­sam­bands­ins. Mynd: AFP

Friedrich Merz, kansl­ari Þýska­lands, kall­aði í dag eftir „sjálf­stæð­ari“ Evrópu og rót­tækum umbótum á innri mark­aði Evr­ópu­sam­bands­ins, sem hann sagði hafa orðið að „skrifræð­is­legu skrímsli“.

„Við verðum að verða full­valda, sjálf­stæð­ari á ýmsum póli­tískum og efna­hags­legum sviðum,“ sagði hann á mál­þingi á vegum dag­blaðs­ins Süddeutsche Zeitung.

„Við getum ekki lengur reitt okkur á að Ameríka verji okkur, að Kína útvegi okkur hrá­efni og að Rússland verði aftur reiðu­búið til friðar ein­hvern tím­ann,“ sagði Merz.

Merz tal­aði dag­inn fyrir leið­toga­fund í Berlín þar sem hann og Emmanuel Macron, for­seti Frakk­lands, munu þrýsta á um aukið staf­rænt full­veldi Evrópu og að draga úr ósjálf­stæði gagn­vart banda­rískum tæknirisum.

Hann minnt­ist þess að hafa „tekið þátt í stofnun innri mark­að­ar­ins“ á níunda ára­tugnum en harm­aði jafn­framt að hann væri orð­inn „að mörgu leyti skrifræð­is­legt skrímsli,“ þvert á áform stofn­enda hans.

Mörg fyr­ir­tæki víðs vegar um Evrópu hafa á til­finn­ing­unni að innri mark­að­ur­inn „geri ekki svo mikið til að auka frelsi heldur tak­marki það ítrekað“, sagði Merz.

„Við verðum að breyta þessu saman.“

Í febr­úar verður hald­inn sér­stakur fundur leið­toga ESB þar sem rætt verður um leiðir til að draga úr skrifræði og auka sam­keppn­is­hæfni iðn­aðar í álf­unni.

Fyrr á þessu ári köll­uðu Merz og Macron eftir því að evr­ópsk lög sem krefj­ast þess að stór fyr­ir­tæki bæti fyrir „nei­kvæð áhrif á mann­rétt­indi og umhverfi“ í aðfanga­keðjum sínum um allan heim yrðu afnumin.

Í síð­ustu viku sam­ein­uð­ust mið-hægri og öfga­hægri flokka­hópar á Evr­ópu­þing­inu um að styðja veik­ingu laga­setn­ing­ar­innar, sem olli mik­illi óánægju meðal miðju- og vinstri sinn­aðra þing­manna.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Endurnýjun Evrópu

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár