Hefja fjársöfnun fyrir lektorinn sem var rekinn vegna ummæla um konur

„Hér er atvinnu­laus ein­stak­lingur að berj­ast fyrir rétti sínum gegn ofurefli.“

Hefja fjársöfnun fyrir lektorinn sem var rekinn vegna ummæla um konur

Vinir og frændur Kristins Sig­ur­jóns­sonar, fyrr­ver­andi lekt­ors við tækni- og verk­fræði­deild Háskól­ans í Reykja­vík, hafa efnt til fjár­söfn­unar vegna mála­ferla Kristins gegn háskól­anum. 

Kristni var sagt upp eftir að DV greindi frá ummælum sem hann hafði látið falla um konur á lok­uðum Facebook-hóp. Orðrétt skrif­aði Kristinn: Það á að aðgreina vinnu­staði karla og kvenna. Vandinn er bara að konur reyna alltaf að troða sér þar sem karl­menn vinna, og um leið og þær eru komnar inn, þá byrja þær að eyði­leggja hann, því allir kal­menn­irnir eiga þá að fara að tala, hugsa og hegða sér eins og kerl­ingar, allt annað er áreiti og ef sagður en neð­an­belt­is­brand­ari, svo ég nefni ekki klám­brand­ari, þá er það kyn­ferð­is­of­beldi.

Kristinn hefur krafið Háskól­ann í Reykja­vík um tæp­lega 57 millj­ónir króna vegna ólög­mætr­ar upp­sagn­ar og 5 millj­ónir í miska­bætur. 

„Hér er atvinnu­laus ein­stak­lingur að berj­ast fyrir rétti sínum gegn ofurefli, sem fær um 3 milj­arða af skatt­greiðslum rík­is­ins,“ skrifar Úlfar Nathana­els­son, vinur Kristins, á Facebook. Fram kemur að nú standi frændur Kristins fyrir fjár­söfnun til að styðja hann í því að sækja rétt sinn. Í ljósi þess að Kristinn hefur barist gegn umgengni­stálm­unum hefur verið ákveðið að ef mis­munur verði á fjár­stuðn­ingi til Kristins og nettó útgjalda muni afgang­ur­inn renna til Félags um for­eldra­jafn­rétti. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár