Lögregla: Fullyrðingar um vanrækslu jafnréttisverkefna eiga ekki lengur við

Ný fræði­grein sem Stundin vitn­aði í byggir á eldri rannsóknar­nið­ur­stöðum, en lög­regla segir mikið hafa áunn­ist í jafn­rétt­is­málum síðan rann­sóknin var gerð. Meðal ann­ars liggi nú fyrir jafn­rétt­is­á­ætlun sem Jafn­rétt­is­stofa hafi hrósað lög­reglu fyrir.

Lögregla: Fullyrðingar um vanrækslu jafnréttisverkefna eiga ekki lengur við

Lög­reglu­stjór­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu segir að gagn­rýni sem kemur fram á stöðu jafn­rétt­is­mála innan lög­reglu í nýút­komnu jún­í­hefti tíma­rits­ins Stjórn­mál og stjórn­sýsla eigi ekki lengur við, enda hafi fram­farir orðið síðan rann­sóknin var gerð.

Þetta kemur fram í bréfi sem Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir lög­reglu­stjóri sendi starfs­mönnum emb­ætt­is­ins á dög­unum. Stundin birti nýlega frétt þar sem vitnað var í rann­sókn tveggja kynja­fræð­inga á stöðu jafn­rétt­is­mála hjá emb­ætt­inu, en þar er gagn­rýnt að lög­reglan hafi ekki sett sér jafn­rétt­is­á­ætlun og aðgerða­bundna fram­kvæmda­á­ætlun í sam­ræmi við ákvæði jafn­rétt­islaga og ábend­ingar Jafn­rétt­is­stofu. Þá hafi áhættu­mat og heilsu­vernd­ar­á­ætlun sam­kvæmt reglu­gerð um aðgerðir gegn ein­elti og kyn­ferð­is­legri áreitni á vinnu­stöðum ekki kom­ist til fram­kvæmda innan emb­ætt­is­ins.

Í bréfi Sigríðar Bjarkar til starfs­manna segir hún að ný jafn­rétt­is­á­ætlun hafi einmitt verið sam­þykkt hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í árs­byrjun 2019 og Jafn­rétt­is­stofa hrósað emb­ætt­inu. 

„Í umfjöllun í nýjasta tölublaði Stund­ar­innar um stöðu þess­ara mála hjá okkur er ekki byggt á nýjustu tölum eða upplýsingum frá okkur. Þetta skýrist af því að í nýútkomnu júníhefti tímarits­ins Stjórnmál og stjórnsýsla birt­ist grein eftir Kristínu Önnu Hjálmarsdóttur og Gyðu Margréti Pétursdóttur, um nið­ur­stöður rannsóknar þeirra tveggja á stöðu jafnréttismála hjá Lögregl­unni á höfuð­borg­ar­svæð­inu,“ segir í bréf­inu. „Rannsóknin fór fram árin 2016 og 2017 og voru nið­ur­stöður hennar birtar opin­ber­lega í ársbyrjun 2018. Grein þeirra Gyðu og Kristínar er þannig vissu­lega ný en hún byggir, sem áður segir, á eldri rannsóknar­nið­ur­stöðum sem búið var að kynna ítar­lega og fjalla um.“ 

Fram kemur í bréf­inu að því sé rang­lega haldið fram í frétt Stund­ar­innar að greina megi ráða­leysi og upp­gjöf í jafn­rétt­is­málum lög­reglu. „Þetta á sér hvorki stoð í rannsókninni sjálfri né þegar horft er á stöðu jafnréttismála hjá emb­ætt­inu í dag.“

Þetta er ekki rétt, því í umræddri rann­sókn segir orð­rétt að víða heyr­ist orð­ræða innan lög­reglu sem „birt­ist sem ráðaleysi eða hálfgerð upp­gjöf lyk­il­starfsfólks lögregl­unnar í jafnréttismálum“. Er eft­ir­far­andi haft eftir Sigríði Björk, lög­reglu­stjór­anum sjálfum, í rann­sókn­inni: „Þú breytir ekki við­horfi í 85% karla­menn­ingu, það er bara ekki hægt því þeir sem eru á annarri skoðun þeir bara eru undir.“ 

Upp­lýs­inga­full­trúi lög­regl­unnar sendi fjöl­miðlum til­kynn­ingu í dag þar sem vakin er athygli á því að margt hafi áunn­ist á sviði jafn­rétt­is­mála innan emb­ætt­is­ins. „Í þessu sam­hengi má nefna að í heild­ina fjölg­aði konum á meðal lög­reglu­manna úr 19% árið 2016 í 24% árið 2018 og í maí 2019 voru konur 28% lög­reglu­manna hjá emb­ætt­inu. Kynja­hlut­föll hafa því batnað, en þess má enn fremur geta að kynja­hlut­föll eru nú jöfn á lög­reglu­stöð­inni á Vín­lands­leið 2-4 í Reykja­vík.“ Þá bendir hann á að nú sé starf­andi sér­stakur jafn­rétt­is­full­trúi hjá Lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og nú sé unnið að verk­efni með Capacent sem nefn­ist Jafn­rétt­is­vísir, um stefnu­mótun og vit­und­ar­vakn­ing í jafn­rétt­is­málum. „Að þessu sögðu er ljóst að mikil vinna á sér stað í mála­flokknum og um það eru starfs­menn Lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vel með­vit­aðir og taka fullan þátt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár