„Sæll Bóbó“: Svona selur Samherji sér fisk frá Íslandi til útlanda

Tölvu­póst­sam­skipti á milli Krist­jáns Vil­helms­sonar, útgerð­ar­stjóra Samherja, og tveggja und­ir­manna hans um kaup­verð á karfa milli félaga innan sam­stæð­unnar „orka tví­mælis“ segir for­maður Sjó­manna­sam­bands Íslands. Verðið sem greitt var fyrir karf­ann var hins vegar yfir við­mið­un­ar­verði og því getur Sjó­manna­sam­bandið ekki fett fingur út í við­skiptin sem slík.

„Sæll Bóbó“: Svona selur Samherji sér fisk frá Íslandi til útlanda
Verðið gott en sam­skiptin óeðli­leg Verðið sem Samherji greiddi fyrir karfa sem ætl­aður var til útflutn­ings til Þýska­lands var gott en sam­skiptin þar sem verðið var ákveðið, þar sem Kristján Vil­helms­son var milli­liður, voru óeðli­leg segir for­maður Sjó­manna­sam­bands Íslands. Kristján sést hér taka á móti nýjum tog­ara, BaldvinNC 100, ásamt Þor­steini Má Bald­vins­syni.

„Sæll Bóbó. Hérna eru póst­arnir okkar Simma. Hann er að bjóða allt að 250 kr. fyrir 700 [grömm] + sem mér finnst vera mjög gott verð,“ segir Kristján Vil­helms­son, útgerð­ar­stjóri og annar stærsti eig­andi Samherja á Íslandi, í tölvu­pósti til Sig­tryggs Gísla­sonar, þáver­andi skip­stjóra á tog­ar­anum Björgvin EA-311 og núver­andi skip­stjóra á tog­ar­anum Kaldbaki, í apríl árið 2011. Sig­tryggur gengur undir gælu­nafn­inu „Bóbó“ og er þekktur sem slíkur.  „Simmi“ sem nefndur er í tölvu­póst­inum er Sig­mundur Andr­és­son, fram­kvæmda­stjóri dótt­ur­fyr­ir­tækis Samherja í Þýska­landi, Icefresh Gmbh.  

Í tölvu­póst­unum eru menn­irnir þrír, sem allir starfa innan Sam­herj­a­sam­stæð­unnar, að ákveða verð á ferskum karfa, sem vinna átti í Þýska­landi, í við­skiptum innan sam­stæð­unnar. Björgvin EA-311 veiðir fisk­inn og Icefresh Gmbh vinnur karf­ann í fisk­vinnslu sinni í Frank­furt í Þýska­landi og selur hann.

Æ algeng­ara hefur orðið að stór­út­gerðir eins og Samherji, Ísfé­lagið í Vest­manna­eyjum, HB Grandi eða Vísir eigi sjálf mörg eða jafn­vel öll fyr­ir­tækin sem koma að veiðum, vinnslu og sölu á þeim fiski sem veiddir eru á tog­urum þeirra. Sökum þessa er mik­il­vægt að við­skiptin með fisk­inn innan sam­stæðn­anna fari  fram á við­skipta- og mark­aðs­legum for­sendum. Erfitt getur hins vegar verið að vita hvort svo er þar sem öll virð­is­keðjan í fisk­vinnsl­unni er á sömu hendi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár