Arabíska vorið færði fjölmiðlum ekki frelsi

Stundin birtir frá­sagnir og upp­lif­anir blaða­manna víðs vegar að úr heim­inum í tengslum við umfjöllun um fjöl­miðla­frelsi og við­tal við Kristinn Hrafns­son. Imad Alrawashdeh er jórdanskur blaða­maður sem starfar sem ráð­gjafi svæð­is­bund­inna miðla.

Arabíska vorið færði fjölmiðlum ekki frelsi
Frétta­menn eru ekki ógnin Það er kúg­unin og spill­ingin í lönd­unum fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs­ins sem ógna öryggi þjóða, segir blaða­mað­ur­inn Imad Alrawashdeh.

Ég held að staðan í Arabalöndum, mínu heima­svæði, hafi ekki breyst mikið hvað varðar frelsi fjöl­miðla, jafn­vel þrátt fyrir arab­íska vorið sem átti að færa okkur frelsi á svo mörgum sviðum. Við getum tekið Egypta­land sem dæmi, þar sem að minnsta kosti 20 blaða­menn sitja í fang­elsi og flestir þeirra við slæmt heilsu­fars­legt ástand. Egypta­land setti lög gegn hryðju­verkum sem þeir nota sem afsökun til þess að brjóta niður fjöl­miðla og ógna fjöl­miðla­fólki með fang­els­is­vist. Í Jórdaníu voru ný lög gegn net­þrjótum notuð í nokkrum til­fellum til að hand­taka frétta­menn og hræða almenn­ing frá því að nota sam­fé­lags­miðla til að tjá skoð­anir sínar á versn­andi efna­hags­á­standi og hina póli­tísku kúgun sem fylgir spill­ingu. Á síð­asta ári fengu að minnsta kosti tveir jórdanskir frétta­menn þriggja mán­aða dóm vegna hinna meintu brota gegn cyber law, aðal­lega 5. grein lag­anna sem segir: „Útgáfa skal virða sann­leik­ann og forð­ast að birta nokkuð í and­stöðu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár