Fylgi ríkisstjórnarinnar fellur

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er stærsti stjórn­mála­flokkur lands­ins með 22,1% sam­kvæmt nýrri könnun MMR. Fylgi rík­is­stjórn­ar­innar hefur fallið í 40% og fylgi Fram­sókn­ar­flokks og Vinstri grænna lækkar sömu­leiðis.

Fylgi ríkisstjórnarinnar fellur

Alls 11,3 pró­sent segj­ast mundu kjósa Vinstri græna ef gengið yrði til Alþing­is­kosn­inga nú, sam­kvæmt nýrri könnun MMR. Fylgi flokks­ins lækkar um þrjú pró­sentu­stig milli kann­ana. Þá lækkar fylgi rík­is­stjórn­ar­innar úr 45,5% í lok maí­mán­aðar í 40,2% nú.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist stærstur stjórn­mála­flokk­anna á Alþingi með 22,1% og hækkar lít­il­lega frá síð­ustu könnun. Píratar og Sam­fylk­ingin fylgja á hæla hans með 14,4%. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn tapar tveimur pró­sentum frá síð­ustu könnun og mælist með 7,7%.

Mið­flokk­ur­inn mælist með 10,6% fylgi og Viðreisn með 9,5%. Loks mælist Sós­í­alista­flokkur Íslands með 4,4% og Flokkur fólks­ins með 4,2% fylgi. Könnunin var fram­kvæmd 7. til 14. júní 2019 og var heild­ar­fjöldi svar­enda 988 ein­stak­lingar, 18 ára og eldri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár