Transkona um framgöngu Sigmundar Davíðs: „Ekkert annað en illgirni“

Mið­flokk­ur­inn krafð­ist þess að frum­varp um kyn­rænt sjálf­ræði yrði tekið af dag­skrá Alþingis. Krafan vekur mikla reiði og for­maður Trans Ísland segir að atkvæði með Mið­flokknum séu gegn rétt­indum hinsegin fólk. „Skammastu þín,“ segir Ugla Stefanía.

Transkona um framgöngu Sigmundar Davíðs: „Ekkert annað en illgirni“
Vildi kyn­rænt sjálf­ræði af borð­inu Sig­mundur Davið Gunn­laugs­son, for­maður MIð­flokks­ins, mun hafa kraf­ist þess að frum­varp um kyn­rænt sjálf­ræði yrði tekið af dag­skrá Alþingis, í við­ræðum við for­sæt­is­ráð­herra um þing­lok. Mynd: Pressphotos.biz - (Geirix)

Formaður félags­ins Trans Ísland fer hörðum orðum um Sigmund Davíð Gunn­laugs­son, for­mann Mið­flokks­ins, og ræður fólki gegn því að kjósa flokk­inn. „Á þessu stigi þýðir það ein­fald­lega að kjósa gegn rétt­indum hinsegin fólks.“

Tilefni þess­ara hörðu orða Uglu Stefaníu Krist­jönu­dóttur Jóns­dóttur, for­manns Trans Íslands, er frétt þess efnis að Sig­mundur hafi í við­ræðum við Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra um þing­lok kraf­ist þess að frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar um kyn­rænt sjálf­ræði yrði tekið af dag­skrá þings­ins. Mun Katrín hafa brugð­ist við þeirri kröfu með því að slíta við­ræð­unum.

Ugla er ein þeirra sem kom að vinnu við gerð frum­varps­ins og lýsir því á Facebook að unnið hafi verið að því í fjögur ár. Þessi fram­ganga sýni að Sig­mundur geri sér annað hvort ekki grein fyrir mik­il­vægi máls­ins eða sé ein­fald­lega alveg sama. Hvort tveggja sem er sé skammar­legt enda hafi trans­fólk og inter­sex fólk beðið lengi eftir þess­ari mik­il­vægu rétt­ar­bót.

„Ég vona inni­lega að allt fólk sem ég þekki muni hugsa sig tvisvar um áður en þau kjósa þennan flokk. Á þessu stigi þýðir það ein­fald­lega að kjósa gegn rétt­indum hinsegin fólks. Skammastu þín,“ skrifar Ugla.

Illkvittni gagnvart transfólki

Alex­andra Briem, vara­borg­ar­full­trúi Pírata, er einnig harð­orð og segir þetta útspil Sig­mundar vera ill­girni. Alex­andra, sem er trans­kona, segir að hún hafi í gegnum tíðin getað sagt, með bros á vör, að á Íslandi væri staðan svo góð að meira að segja íhalds­söm­ustu flokk­arnir settu sig ekki upp á móti rétt­indum trans­fólks. Það sé hins vegar aug­ljós­lega ekki rétt.

„Þetta nýjasta útspil hans er ekk­ert annað en ill­girni. Hingað til gat ég trúað því upp á hann að hann væri bara í ein­hverjum eigin heimi með ein­hverja mjög skrítna sýn á eigið ágæti og eigin hug­myndir, en ekki lengur.

Að hann skuli voga sér að ætla að krefj­ast þess að frum­varp um kyn­rænt sjálf­ræði verði tekið af dag­skrá er ekki hægt að skýra með öðrum hætti en ill­kvitni gagn­vart trans­fólki,eða mögu­lega vilj­anum til að ganga í augun á fólki sem fyr­ir­lítur fólk eins og mig.“

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár