Helgi spenntur fyrir því að efla Fréttablaðið – segir sögusagnir um Hringbraut „þvælu“

Helgi Magn­ús­son er nýr helm­ings­eig­andi Frétta­blaðs­ins. Hann seg­ist áhuga­samur um að styðja við og styrkja fjöl­miðlun á Íslandi. Hann seg­ist ekki hafa valið Davíð Stef­áns­son sem nýjan rit­stjóra. „Ég þekki hins vegar mann­inn alveg og hef mikla trú á honum.“

Helgi spenntur fyrir því að efla Fréttablaðið – segir sögusagnir um Hringbraut „þvælu“

Helgi Magn­ús­son fjár­festir hefur keypt helm­ings­hlut í Torgi ehf., útgáfu­fé­lagi Frétta­blaðs­ins en gengið var frá kaup­unum í gær­morgun. Helgi segir í sam­tali við Stundina að hann hafi áhuga á styðja við og styrkja fjöl­miðlun á Íslandi og því hafi hann gripið tæki­færið og keypt hlut­inn í frí­blað­inu.

Sögur um hugs­an­lega aðkomu Helga að Frétta­blað­inu fóru að kvis­ast út um liðna helgi eftir að til­kynnt var um ráðn­ingu Davíðs Stef­áns­sonar sem rit­stjóra Frétta­blaðs­ins. Ýjað var að því að Davíð hefði verið stillt upp í þann stól sem full­trúa Helga. Þessu hafnar Helgi. „Ég er ekki einu sinni kom­inn inn í stjórn, við gengum frá kaup­unum í gær­morgun og það er sam­komu­lag um að Ingi­björg Pálma­dóttir verði for­maður stjórnar Torgs og ég komi inn í stjórn­ina, við verðum þar tvö. Ég er því ekki far­inn að hafa nein afskipti af rekstr­inum. Hún var þó búin að segja mér af því að Davíð yrði ráð­inn þannig að það kom mér ekki á óvart en það er ekki eins og ég hafi valið hann. Ég þekki hins vegar mann­inn alveg og hef mikla trú á honum.“

Helgi segir að sama skapi að hann stefni ekki að því að koma með nýjar áherslur eða breyt­ingar að borð­inu hvað varðar rekstur eða stefnu Frétta­blaðs­ins, í það minnsta ekki fyrsta kastið. „Ég kem ekki með neina stefnu­skrá að borð­inu.“

Kemur ekki með aukið fé inn í reksturinn

Helgi segir að við­ræður um kaupin hafi staðið í nokkrar vikur. Torg var boðið til sölu í heild síð­ast­liðið haust en ekki varð af söl­unni þá. Helgi segir hlut­ina síðan hafa þró­ast á þann veg að eig­endur Torgs, sem að langstærstu leyti er Ingi­björg Pálma­dóttir, hafi getað hugsað sér að taka inn með­eig­enda til að styrkja stoðir fyr­ir­tæk­is­ins með breið­ara eign­ar­haldi. Helgi hafi látið slag standa.

„Ég hef þær skoð­anir á fjöl­miðlum að þeir gegni ákaf­lega mik­il­vægu hlut­verki og mér finnst áhuga­vert að efla mik­il­vægan fjöl­miðil eins og þennan. Mér finnst skipta miklu máli að reyna að tryggja rekstur þessa útbreiddasta blaðs lands­ins. Mér finnst ekki góð fram­tíð­ar­sýn að ríkið sé í miklu mæli bak­hjarl í fjöl­miðla­rekstri og því er gott að einka­að­ilar komi með sína fjár­muni í svona rekstur.“ Kaup­verðið er trún­að­ar­mál milli aðila að sögn Helga en hann fjár­magnar kaupin með eigin fé.

Helgi segir hugs­an­legt að hann fái fleiri aðila að eign­ar­hald­inu á umræddum helm­ings­hlut, kaup hans hafi farið að kvis­ast út í gær og segir hann að strax þá hafi hann fengið meld­ingar frá ýmsum um hugs­an­lega aðkomu að eign­ar­hlutnum. Ekki standi til að koma með aukið hlutafé inn í rekstur blaðs­ins, enda sé ekki þörf á því. „Ég kaupi þennan helm­ings­hlut af núver­andi eig­endum og það stendur ekki til að koma með frek­ari fjár­muni í rekst­ur­inn. Ég lít á þetta sem spenn­andi fjár­fest­ingu fyrst og fremst. Þetta er mynd­ar­legt fyr­ir­tæki og vel mannað og mér þykir afar áhuga­vert að koma að þessu.“

Því hefur ítrekað verið haldið fram að Helgi hafi lagt fjöl­miðl­inum Hring­braut til fjár­muni til rekstrar. Þegar Davíð Stef­áns­son var ráð­inn rit­stjóri Frétta­blaðs­ins var á það bent að hann hefði verið með sjón­varps­þætti á Hring­braut og það haft til marks um að Davíð væri Helga maður.

Þetta segir Helgi að sé af og frá, hann hafi ekki sett krónu í Hring­braut, hvorki fyrr né síðar. „Ég kann­ast við þá þvælu. Ég á ekki krónu í Hring­braut. Þessi saga er búin að vera lífseig, en hún er ekk­ert nema það: saga og ekki sönn. Ein­hverjir sem er frekar lítið um mig gefið, og mína sam­ferða­menn, hafa verið að halda þessu á lofti, en þetta er ekki rétt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár