Fátækustu ríkin greiða skuldir og skera niður í stað þess að byggja upp

Á und­an­förnum árum hafa þró­un­ar­lönd varið æ hærra hlut­falli tekna sinna í að end­ur­greiða erlendar skuldir. Þrjú ríki sem eru á lána­á­ætlun hjá Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðnum skáru niður rík­is­út­gjöld um 20 pró­sent á tíma­bil­inu 2016 til 2018.

Fátækustu ríkin greiða skuldir og skera niður í stað þess að byggja upp
Fátækt og skulda­á­þján Ríki í Afríku sunnan Sahara-eyði­merkur glíma við alvar­legan skulda­vanda en þar hefur jafn­framt komið bakslag í bar­átt­una gegn fátækt. Þessi mynd er tekin í Kamerún. Mynd: Shutterstock

Skulda­byrði þró­un­ar­land­anna hefur þyngst umtals­vert á und­an­förnum árum og fátæk­ustu ríki heims verja í dag um tvö­falt hærra hlut­falli af opin­berum tekjum í end­ur­greiðslu erlendra skulda en árið 2010. Hlut­fallið var 12,2 pró­sent í fyrra og hefur ekki verið hærra síðan árið 2004 (þá var það 13,8 pró­sent), áður en G7-ríkin ákváðu að láta afskrifa tug­millj­arða banda­ríkja­dala af skuldum þró­un­ar­landa við Alþjóða­bank­ann og Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inn.

Penny Mordaunt, þró­un­ar­mála­ráð­herra Bret­lands, lýsti áhyggjum af skulda­byrð­inni á vor­fundi Alþjóða­bank­ans á dög­unum og kall­aði eftir auknu gagn­sæi um lán­veit­ingar. Að mati Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins glíma 24 af 60 tekju­lægstu ríkjum heims við alvar­legan skulda­vanda eða eiga á hættu að lenda í slíkri stöðu. 

Lágt vaxtastig ýtti undir skuldasöfnun

„Umheim­ur­inn verður að vakna til með­vit­undar um þennan sívax­andi skulda­vanda,“ segir Tim Jones, yfir­maður stefnu­mót­unar hjá Jubilee Debt Campaign, breskum sam­tökum sem berj­ast fyrir því að skuldum sé létt af fátæk­ustu ríkjum heims. Haft er eftir honum í The Guardian að ríkin sem glíma við mesta skulda­byrði hafi dregið veru­lega úr opin­berum útgjöldum og þetta grafi undan hvers kyns við­leitni til að ná heims­mark­miðum Sam­ein­uðu þjóð­anna um sjálf­bæra þróun. 

Nýlega létu sam­tökin vinna grein­ingu á skulda­stöðu þró­un­ar­land­anna á grund­velli opin­berra gagna Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins og Alþjóða­bank­ans. Nið­ur­staðan er sú að erlendar skuldir hins opin­bera í þeim ríkjum er telj­ast til þró­un­ar­landa hafa tvö­fald­ast frá 2008 og námu um 424 millj­örðum banda­ríkja­dala árið 2018. Þetta er meðal ann­ars afleið­ing af lækkun hrá­vöru­verðs, styrk­ingu banda­ríkja­dals­ins og loks nýlegum vaxta­hækkun í Banda­ríkj­unum, en und­an­farin ár hefur lágt vaxta­stig í heim­inum ýtt undir skulda­söfnun þró­un­ar­ríkja.

Angóla varði sem nemur 57 pró­sentum af öllum opin­berum tekjum árið 2018 í end­ur­greiðslu skulda, en rík­is­út­gjöld þar í landi dróg­ust saman um 19 pró­sent milli 2016 og 2018. Í Kamerún og Egypta­landi var ráð­ist í meira en 20 pró­senta nið­ur­skurð rík­is­út­gjalda á sama tíma­bili um leið og ríkin stórjuku end­ur­greiðslur á erlendum skuldum. Öll þrjú ríkin eiga það sam­eig­in­legt að hafa þegið lán og geng­ist undir skil­yrði og áætl­anir Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins á und­an­förnum árum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár