Uppáhaldsdóp Hitlers flæðir um allt

Lyfj­aris­inn Purdue Pharma sam­þykkti á dög­unum að greiða meira en 32 millj­arða íslenskra króna í skaða­bætur vegna þess mikla fjölda sem hefur orðið háður OxyContin og skyldum lyfjum í rík­inu Oklahoma. Fleiri mál­sóknir eru í und­ir­bún­ingi en fyr­ir­tæk­inu er kennt um fíkni­far­aldur sem hefur dregið meira en 200 þús­und Banda­ríkja­menn til dauða og teygir nú anga sína til Íslands.

Uppáhaldsdóp Hitlers flæðir um allt
Hitler Oxycodone var fyrst fundið upp í Þýska­landi á tímum fyrri heims­styrj­aldar og var uppi­staðan í lyfja­blöndu sem var mikið notuð í báðum styrj­öldum til að lina þján­ingar her­manna. Sjálfur Adolf Hitler lét sprauta sig með lyf­inu dag­lega. Mynd: Imagno

Eitt vin­sælasta lyfið meðal íslenskra fíkla í dag heitir OxyContin en áhrif þess eru nán­ast þau sömu og af heróínn­eyslu. Það virkar á allar sömu heila­stöðvar, gefur sömu vímu og er skelfi­lega ávana­bind­andi eins og önnur mor­fín­skyld lyf. Lengst af var neyslan hér á landi tak­mörkuð þar sem erfitt var að fá íslenska lækna til að ávísa OxyContin en það breytt­ist nýlega eftir að stór­felldur inn­flutn­ingur hófst á töfl­unum frá Spáni. Að sögn kunn­ugra hefur fram­boðið aldrei verið meira og verðið fer lækk­andi.

Lyfið heitir í raun oxycodone, OxyContin er vöru­merki fyr­ir­tæk­is­ins Purdue Pharma sem selur forða­töflur af lyf­inu undir því nafni. Ástæðan fyrir að forða­töfl­urnar eru vin­sælar meðal fíkla er að hægt er að brjóta þær niður í duft og taka inn duftið til að fá alla vímuna í einu, í stað þess að efnið fari smám saman út í blóð­straum­inn eins og forða­töflum er ætlað.

Göring …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár