Óvinnufær og full vantrausts eftir réttaróvissuna

Kona, sem á börn með manni sem hefur verið dæmdur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn þroska­skertri stúlku, hefur verið óvinnu­fær í tvær vikur, eða allt frá því að Lands­réttur frestaði öllum málum sem voru þar á dag­skrá. Þar átti að taka málið fyrir dag­inn eftir að dómur Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu setti milli­dóm­stigið í upp­nám, með ófyr­ir­séðum afleið­ingum fyrir brota­þola og aðstand­endur þeirra.

Óvinnufær og full vantrausts eftir réttaróvissuna
Lands­réttur Mikil réttaró­vissa skap­að­ist þegar Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu komst að þeirri nið­ur­stöðu að það væri brot á mann­rétt­indum og rétt­látri máls­með­ferð að borg­arar væru dæmdir af þeim dóm­urum sem voru rangt skip­aðir. Mynd: Dómsmálaráðuneytið

Þeirra á meðal er konan sem hér talar. Hún er á fimm­tugs­aldri, þriggja barna móðir, sem bjó með þessum manni þegar hann braut kyn­ferð­is­lega á ungri stúlku. Stúlkan er þroska­skert og hafði verið inni á heim­ili þeirra í þrjú ár frá sextán ára aldri, en í gegnum félags­mála­yf­ir­völd hafði fjöl­skyldan tekið að sér að veita stúlkunni stuðn­ing. 

„Þegar brotin komust upp var hún komin úr vistun hjá okkur og orðin sjálf­stæð­ari. Hún kom enn reglu­lega í heim­sókn, var með okkur og borð­aði með okkur. Mér skilst að hann hafi sagt við hana að við værum að hugsa um að skilja og reynt að selja henni að þetta væri þá í lagi. Hún þorði ekki að segja mér frá þessu því hún var svo hrædd um að hún væri ástæðan fyrir því að við skildum. En það var aldrei þannig.“ 

„Þegar brotin komust upp var hún komin úr vistun …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár