„Er hjónabandið ekki Kitchenaid-hrærivél?“

Að mati mynd­list­ar­manns­ins Almars S. Atla­sonar – Almars í kass­anum – er ekk­ert svo alvar­legt eða sorg­legt að ekki megi grín­ast svo­lítið með það. Almar opnar sína fyrstu einka­sýn­ingu, Búskipti, í menn­ing­ar­rým­inu Midpunkt í Kópavogi á laug­ar­dag­inn.

„Er hjónabandið ekki Kitchenaid-hrærivél?“

Almar S. Atlason er með hend­urnar úta­taðar í máln­ingu einmitt þegar blaða­maður Stund­ar­innar ónáðar hann með sím­tali, til að for­vitn­ast um hans fyrstu einka­sýn­ingu sem verður opnuð í menn­ing­ar­rým­inu Midpunkt í Hamra­borg­inni í Kópavogi, laug­ar­dag­inn 6. apríl. Hann biður um að ég hringi örlítið seinna, svo hann hafi tíma til að þvo sér og setja sig í stell­ingar. Fimm mín­útum seinna er hann með hreinar hendur og til­bú­inn að tala um sjálfan sig og list­ina. „Einmitt núna er ég að mála sal­inn og föndra það síð­asta fyrir sýn­ing­una. Þetta gengur bara ljóm­andi vel. Ég nýt mín alltaf vel svona síð­ustu stund­irnar fyrir sýn­ingar, þegar allt er að smella saman,“ segir Almar og seg­ist ekki verða sér­stak­lega tauga­veikl­aður þó að opn­un­ar­stundin nálgist. „Kvíða­kast er status quo-ástand fyrir mig, þannig að ég finn engan mun.“

Þegar hlutir fara í sundur

Sýning Almars ber nafnið Búskipti og á kynn­ing­ar­myndum tengdum sýn­ing­unni …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár