Verkföllum aflýst og samningar í nánd

Meg­in­línur kjara­samn­inga til 2022 hafa verið sam­þykktar. Öllum verk­föllum nema hjá Strætó hefur verið aflýst.

Bryndís Hlöðversdóttir
Bryndís Hlöðvers­dóttir Rík­is­sátta­semj­ari til­kynnti um að sam­komu­lag væri til­búið í meg­in­dráttum.

Flestum verk­föllum hefur verið aflýst þar sem kjara­samn­ingar virð­ast í nánd. Sátt náð­ist um meg­in­línur kjara­samn­inga í nótt.

Efling til­kynnti í gær­kvöldi að ekk­ert yrði af verk­föllum á hót­elum og í hóp­bif­reiða­fyr­ir­tækjum. Verkfall strætó­bíl­stjóra hjá Almenn­ings­vögnum Kynn­is­ferða stendur enn og því trufl­anir á leiðum Strætó. Lesa má nánar um þær á vef Strætó.

Upp úr mið­nætti var gengið frá yfir­lýs­ingu milli Samtaka atvinnu­lífs­ins ann­ars vegar og félaga versl­un­ar­manna og félaga Starfs­greina­sam­bands­ins hins vegar um meg­in­línur kjara­samn­inga. Samn­ing­unum er ætlað að standa til 1. nóv­em­ber 2022. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Rík­is­sátta­semj­ara.

Samkvæmt til­kynn­ing­unni er sam­komu­lagið gert með fyr­ir­vara um aðkomu stjórn­valda og sam­þykki samn­inga­nefnda aðila, en það verður útfært af samn­ings­að­ilum í dag og kynnt í kjöl­farið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár