Vinstri græn í Suðurkjördæmi segja Sjálfstæðisflokkinn hlífa „arðræningjum“

Telja til­lögur rík­is­stjórn­ar­innar skref í rétta átt fyrir lág­tekju­fólk en aukna skatt­heimtu hárra tekna ólík­lega „meðan Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ræður efna­hags og fjár­mála­ráðu­neyt­inu“.

Vinstri græn í Suðurkjördæmi segja Sjálfstæðisflokkinn hlífa „arðræningjum“
Finnst ekki nóg að gert VG í Suð­ur­kjör­dæmi telja að skatta­til­lögur séu skref í rétta átt meira þurfi að koma til. Mynd: Fjármálaráðuneytið

Skatta­til­lögur rík­is­stjórn­ar­innar eru skref í rétt átt fyrir tekju­lága hópa en „skerð[a] ekki hár á höfði eigna­fólks og arð­ræn­ingja“. 

Þetta full­yrða Vinstri græn í Suð­ur­kjör­dæmi á Facebook, en um er að ræða eins konar upp­lýs­inga­síðu þar sem full­trúar flokks­ins deila efni með fylgj­endum sínum, einkum Ari Trausti Guð­munds­son sem er eini þing­maður Vinstri grænna í kjör­dæm­inu.

„Nokkur skref í átt­ina fyrir tekju­laga hópa en skerðir ekki hár á höfði eigna­fólks og arð­ræn­ingja, enda varla að vænta þess meðan Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ræður efna­hags og fjár­mála­ráðu­neyt­inu,“ segir í færsl­unni um skatta­til­lögur rík­is­stjórn­ar­innar.

Samkvæmt til­lög­unum verður nýju lág­tekju­skatt­þrepi bætt við í tekju­skatts­kerf­inu og fyr­ir­komu­lagi per­sónu­af­sláttar breytt þannig þróun hans mið­ist við nýja vísi­tölu verð­lags og fram­leiðni­aukn­ingar.

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra hefur fagnað því sér­stak­lega að „ekki sé verið að hækka skatt­byrð­ina neins staðar“ en eins og bent er á í frétt Stund­ar­innar í dag eru áform rík­is­stjórn­ar­innar um að girða fyrir samnýt­ingu skatt­þrepa í raun ígildi um 3 millj­arða skatta­hækk­unar sem lendir að mestu á tekju­hæstu fjöl­skyldum lands­ins.

Uppfært kl. 17:

Þor­valdur Örn Árnason hefur geng­ist við því að hafa skrifað umrædd ummæli. „Ég vil taka fram, af gefnu til­efni, að svohljóð­andi færsla í upp­hafi þessa þráðar er mín eigin; "Jú, nokkkur skref í átt­ina fyrir tekju­laga hópa en skerðir ekki hár á höfði eigna­fólks og arð­ræn­ingja, enda varla að vænta þess meðan Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ræður efna­hags og fjár­mála­ráðu­neyt­inu." Ég sjálfur á meira að segja líka prent­vill­una í "nokkkur"! Mér urðu á þau mis­tök að skrifa þetta í nafni síð­unnar, "Vinstri græn í Suð­ur­kjör­dæmi", en þetta er mín prí­vat skoðun - og ég stend við hana hvenær sem er og hvar sem er!“ skrifar hann á Facebook. „Ég get hins vegar ekki mælt fyrir munn allra Vinstrigærnna í Suð­ur­kjör­dæmi, og þykir miður að Stundin hafa skilið færsl­una þannig. Kjör­dæm­is­ráð VG í Suð­ur­kjör­dæmi gæti mælt fyrir munn allra, en það hefur mér vit­andi ekki enn komið saman á þessu ári.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Skattamál

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
5
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár