Verðlag einna hæst á Íslandi og heldur áfram að hækka

Verðlag á Íslandi var það hæsta í Evrópu árið 2017 sam­kvæmt gögnum Eurostat og vöru­karfan í Reykja­vík er miklu dýr­ari en í höf­uð­borgum hinna Norð­ur­landa­þjóð­anna sam­kvæmt verð­lags­eft­ir­liti ASÍ. Verð­bólga mun halda áfram að aukast árið 2019 og pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans er við öllu búin.

Verðlag einna hæst á Íslandi og heldur áfram að hækka

Verð­bólga mæld­ist 3,4 pró­sent í jan­úar og horfur eru á að hún haldi áfram að aukast eftir því sem líður á árið. Áhrifin má ekki síst rekja til geng­is­lækk­unar krón­unnar en gengið verður lík­legra lægra á fyrsta fjórð­ungi árs­ins 2019 heldur en spáð var í nóv­em­ber. 

Þetta kemur fram í nýju Pen­inga­mála­hefti Seðla­banka Íslands sem gefið var út sam­hliða vaxta­á­kvörðun pen­inga­stefnu­nefndar í vik­unni.

Bent er á að vaxta­hækkun Seðla­bank­ans í nóv­em­ber hafi skilað sér í hækkun óverð­tryggðra inn- og útláns­vaxta við­skipta­bank­anna auk þess sem óverð­tryggðir og óbreyti­legir vextir líf­eyr­is­sjóða hafi hækkað.

Þótt pen­inga­stefnu­nefnd kjósi að halda vöxtum óbreyttum að sinni sendir hún skýr skila­boð í yfir­lýs­ingu sinni um að hún hafi „bæði vilja og þau tæki sem þarf til að halda verð­bólgu og verð­bólgu­vænt­ingum við mark­mið til lengri tíma litið“. Slíkt geti „kallað á harð­ara taum­hald pen­inga­stefn­unnar á kom­andi mán­uðum“. Þetta er í takt við yfir­lýs­ingar Más Guð­munds­sonar seðla­banka­stjóra – sem hafa farið öfugt ofan í for­ystu­fólk verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar – um að „verk­föll og launa­hækk­anir langt umfram svig­rúm“ yrðu „áfall“ sem þyrfti að mæta með hærri vöxtum.

Samkvæmt upp­færðri töl­fræði Eurostat var verð­lag á Íslandi það hæsta í Evrópu árið 2017. Hag­stofan benti nýlega á þetta og birti eft­ir­far­andi mynd:

Þetta birt­ist skýrt í verði á mat­vælum, en sam­kvæmt nið­ur­stöðum nýrrar verð­könn­unar Verð­lags­eft­ir­lits ASÍ á mat­vöru er vöru­karfan í Reykja­vík miklu dýr­ari en í höf­uð­borgum hinna Norð­ur­land­anna. Vöru­karfa sam­an­sett af algengum mat­vörum úr helstu vöru­flokkum er 67% dýr­ari í Reykja­vík en í Helsinki þar sem hún er ódýr­ust. 

Konráð S. Guð­jóns­son, hag­fræð­ingur Við­skipta­ráðs, hefur þó bent á að myndin sé ekki jafn svört í des­em­ber ef gögn Eurostat um hlut­falls­legt verð­lag frá 2017 eru metin með til­liti til breyt­inga á gengi gjald­miðla.

Verð­bólga var 3,3 pró­sent á fjórða árs­fjórð­ungi síð­asta árs, en þar vó þyngst verð­hækkun inn­fluttrar vöru í kjöl­far geng­is­lækk­unar krón­unnar, einkum verð­hækkun á nýjum bílum, auk þess sem kostn­aður vegna eigin hús­næðis jókst. Verð­bólga var svo 3,4% nú í jan­úar, pró­sentu­stigi hærri en í jan­úar 2018.

Að mati Seðla­bank­ans hafa áhrif geng­is­lækk­unar síð­ast­liðið haust bæst við inn­lendan verð­bólgu­þrýst­ing vegna við­var­andi fram­leiðslu­spennu og und­ir­liggj­andi verð­bólga að sama skapi auk­ist. Má vænta þess að verð­bólga haldi áfram að aukast, nái hámarki í 3,8% á þriðja fjórð­ungi árs­ins 2019 og verði um eða yfir 3% fram á mitt næsta ár en komin í grennd við verð­bólgu­mark­mið Seðla­bank­ans á ný undir lok árs­ins. 

Ef spá Seðla­bank­ans gengur eftir verður hag­vöxtur árið 2019 sá minnsti frá árinu 2012, eða 1,8 pró­sent. Vís­bend­ingar eru um að tölu­vert hafi dregið úr vexti ferða­þjón­ustu og að útflutn­ingur þjón­ustu muni drag­ast saman í ár í fyrsta skipti síðan 2008. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Efnahagsmál

Sósíalistar vilja skera niður ofurlaun ráðamanna: „Eðlilegt að þeir byrji á sjálfum sér“
Innlent

Sós­í­alistar vilja skera niður ofur­laun ráða­manna: „Eðlilegt að þeir byrji á sjálfum sér“

Sós­í­alista­flokk­ur­inn stingur upp á að ríkið hag­ræði með því að skera niður „ofur­laun og sporslur“ til ráða­manna. Kosn­inga­stjórn Sós­í­alista­flokks Íslands var að senda frá sér ályktun um hag­ræð­ing­ar­að­gerðir rík­is­stjórn­ar­innar. Þar segir að ein mik­il­væg­asta hag­ræð­ingin sem hægt er að ráð­ast í sé að „skera niður ofur­laun og sporslur til ráða­manna sem eiga ekki að vera í allt öðru­vísi efna­hags­um­hverfi en...
Ragnar skýtur fast á bankana: „Þetta er allt að koma segir fjármálaráðherra!!“
Innlent

Ragnar skýtur fast á bank­ana: „Þetta er allt að koma segir fjár­mála­ráð­herra!!“

Ragnar Þór Ing­ólfs­son skýtur föstum skotum á fjár­mála­ráð­herra og bank­ana í ljósi vaxta­hækk­ana Arion banka. Verka­lýðs­for­ing­inn Ragnar Þór Ing­ólfs­son er ekki ánægður með Arion banka frekar en margir aðrir eftir að bank­inn til­kynnti um 15 pró­sent vaxta­hækkun. „Þetta er allt að koma segir fjár­mála­ráð­herra!! Bank­arnir eru í óða önn að leggja sitt af mörkum til sam­fé­lags­ins, í að ná niður...
Stéttarfélög boða til mótmæla á Austurvelli: „Hafa neitað að axla ábyrgð á efnahagsástandinu“
Innlent

Stétt­ar­fé­lög boða til mót­mæla á Aust­ur­velli: „Hafa neitað að axla ábyrgð á efna­hags­á­stand­inu“

Nokkur stétt­ar­fé­lög hafa boðað til mót­mæla á Aust­ur­velli á morgun, þriðju­dag­inn 10. sept­em­ber klukkan 16:00. Alþýðu­sam­band Íslands, BSRB og Kenn­ara­sam­band Íslands boða til mót­mæla á Aust­ur­velli á morgun en ætl­unin er að mót­mæla skeyt­inga­leysi stjórn­valda gagn­vart hárri verð­bólgu og vöxtum. „Þrálát verð­bólga og háir vextir hafa haft alvar­legar afleið­ingar á fjölda heim­ila lands­ins vegna síhækk­andi verðs á nauð­synja­vörum og hús­næð­is­kostn­aðar....
Björn lætur ráðherra heyra það: „Heimskulegustu ummæli ársins 2024“
Menning

Björn lætur ráð­herra heyra það: „Heimsku­leg­ustu ummæli árs­ins 2024“

Björn Birg­is­son, sam­fé­lags­rýnir og fyrrum rit­stjóri frá Grinda­vík segir ummæli Sigurðar Inga Jóhanns­sonar fjár­mála­ráð­herra sem hann lét falla á dög­unum, örugg­lega flokk­ast með „heimsku­leg­ustu ummælum árs­ins 2024“. Ummæli Sigurðar Inga Jóhann­es­sonar, fjár­mála­ráð­herra og for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins í Kast­ljósi á dög­unum, féll væg­ast sagt í kramið hjá mörgum Íslend­ingum en þar sagði hann það vera í erfða­efni Íslend­inga að sætta sig við...
Segir ríkisvaldið líta á almenning sem blóðmerar:„Getum ekki lengur lifað undir alræði auðvaldsins“
InnlentEfnahagsmál

Segir rík­is­valdið líta á almenn­ing sem blóð­merar:„Getum ekki lengur lifað undir alræði auð­valds­ins“

Gunnar Smári Egilsson segir að rík­is­valdið líti á almenn­ing sem blóð­merar. Sós­í­alista­for­ing­inn Gunnar Smári Egilsson er síður en svo sáttur við óbreytta stýri­vexti Seðla­bank­ans sem til­kynntir voru í morgun. Segir hann í harð­orðri Facebook-færslu að í fram­tíð­inni verði hugs­an­lega settir upp „gam­anóp­eru“um fundi pen­inga­nefnd Seðla­bank­ans en þangað til sé þetta ekki fyndið. „Kannski verða þessi fundir settir upp sem gam­anóp­erur...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár