Stjórnarþingmenn styðja Bergþór Ólason

Situr áfram sem for­maður umhverfis- og sam­göngu­nefndar Alþingis í skjóli þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks­ins sem vís­uðu frá til­lögu um kosn­ingu nýs for­manns.

Stjórnarþingmenn styðja Bergþór Ólason
Varinn af stjórn­ar­þing­mönnum Meiri­hluti umhverfis- og sam­göngu­nefndar auk Klaust­urs­þing­manna vís­aði í morgun frá til­lögu um að setja Bergþór Ólason af sem for­mann umhverfis- og sam­göngu­nefndar.

Þingmenn stjórn­ar­flokk­anna í umhverfis- og sam­göngu­nefnd Alþingis vís­uðu á fundi í morgun frá til­lögu um að for­maður nefnd­ar­innar yrði settur af. Bergþór Ólason mun því sitja sem fast­ast í for­manns­stólnum nú eftir að hann kom til baka úr sjálf­skip­uðu leyfi sínu frá þing­störfum eftir Klaust­ursskandal­inn.

Bergþór sett­ist aftur á þing í síð­ustu viku eftir að hafa farið í leyfi í lok nóv­em­ber í kjöl­far þess að Stundin og DV birtu upp­tökur af sví­virð­ingum sem hann lét frá sér í drykkju­sam­sæti með öðrum þing­mönnum Mið­flokks­ins og tveimur þing­mönnum Flokks fólks­ins.

Meðal þess sem Bergþór lét sérum munn fara var að Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, væri „húrr­andi klikkuð kunta“, að Íris Róberts­dóttir, bæj­ar­stjóri í Vest­manna­eyjum væri „miklu minna hot í ár en hún var bara fyrir tveimur árum“, að Albertína Elí­ast­dóttir, þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar hefði reynt að nauðga sér, um að vilja ríða Lilju Alfreðs­dóttur mennta­mála­ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins og hún væri „skrokkur sem typpið á mér dugði í“ auk ann­arra ógeð­felldra ummæla um konur og kollega sína.

Orðfæri og fram­ganga Bergþórs og hinna Klaust­urs­þing­mann­anna vakti sem þekkt er mikla reiði og andúð. Hópur þing­kvenna sendi frá sér, í kjöl­far birt­ingar á upp­tökum af ummæl­unum, yfir­lýs­ingu þar sem þær for­dæmdu þau og ósk­uðu eftir að málið yrði tekið upp í for­sætis­nefnd. Þá ræddu þing­menn sín á milli ýmsar hug­myndir að aðgerðum til að snið­ganga eða koma Klaust­urs­þing­mönn­unum í skiln­ing um að þeir væru ekki vel­komnir á þingi. Lilja Alfreðs­dóttir sagði yfir­lýs­ingar þing­manna Mið­flokks­ins óaf­sak­an­legar og Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, lýsti því yfir að honum hefði ofboðið virð­ing­ar­leysið sem hefði komið fram í orð­færi þing­mann­anna.

Bergþór hefur setið sem for­maður umhverfis- og sam­göngu­nefndar frá síð­ustu Alþing­is­kosn­ingum og eftir að hafa tekið sæti á þingi aftur í síð­ustu viku mætti hann á fund nefnd­ar­innar í morgun. Þar bar Helga Vala Helga­dóttir, þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar, upp til­lögu um Bergþór yrði settur af, með stuðn­ingi Rósu Bjarkar Brynj­ólfs­dóttur, þing­konu Vinstri grænna, og Hönnu Katrínar Frið­riks­sonar, þing­konu Við­reisnar. Mun hafa verið gerð athuga­semd við til­lög­una inni á fund­inum og því velt upp að mögu­lega stæð­ist það ekki þing­sköp að setja for­mann­inn af án þess að kjósa nýjan í stað­inn. Munu þing­kon­urnar sem stóðu að til­lög­unni þá hafa farið fram á að gert yrði stutt fund­ar­hlé til að hægt yrði að kanna hvort til­lagan stæð­ist þing­skap­ar­lög, og ef vafi léki á því væri mögu­legt að gera breyt­ingar á til­lög­unni, ef þörf kræfi, á þann veg að kos­inn yrði nýr for­maður. Því var hins vegar hafnað. 

Þegar því hafði verið hafnað, að gera hlé á fund­inum, fóru þing­kon­urnar sem stóðu að til­lög­unni um að setja Bergþór af fram á að greidd yrðu atkvæði um hana óbreytta. Jón Gunn­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og 1. vara­for­maður nefnd­ar­innar, lagði þá fram frá­vís­un­ar­til­lögu á til­lög­una og sam­þykktu nefnd­ar­menn stjórn­ar­flokk­anna og Klaust­urs­þing­menn hana. Þetta voru, ásamt Jóni og Bergþóri, þau Ari Trausti Guð­munds­son úr Vinstri grænum, Vil­hjálmur Árnason úr Sjálf­stæð­is­flokki, Líneik Anna Sæv­ars­dóttir úr Fram­sókn­ar­flokki og Karl Gauti Hjalta­son utan flokka en hann sat einmitt á Klaustri umrætt kvöld.

Verja ekki Lilju

Nokkra athygli vekur að sjá þing­menn stjórn­ar­flokk­anna styðja með svo ein­örðum hætti áfram­hald­andi for­mennsku Bergþórs, meðal ann­ars vegna ein­dreg­inna yfir­lýs­inga Lilju Alfreðs­dóttur mennta­mála­ráð­herra um málið. Lilja hefur lýst þeim orðum sem voru látin falla á Klaustri sem árás og sem ofbeldi, að þeir Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, Gunnar Bragi Sveins­son og Bergþór séu ofbeld­is­menn, eins og sjá má í við­tali við hana sem birt er hér að neðan. Nú bregður svo við að meira að segja sam­flokks­kona hennar, Líneik Anna, gengur fram fyrir skjöldu til að verja stöðu Bergþórs.

Þetta er þó ekki í fyrsta skipti sem að þing­menn rík­is­stjórn­ar­flokk­anna hafa tekið upp hansk­ann fyrir Klaust­urs­þing­menn­inna. Þingmenn Mið­flokks­ins hafa lýst því yfir að þeir vilji að Bára Hall­dórs­dóttir, sú sem tók upp sam­skipti þeirra á Klaustri, sæti refs­ingu, greiði þeim miska­bætur og verði sektuð af Per­sónu­vernd vegna ólög­mætrar „njósn­a­að­gerðar“. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar, hefur lýst skiln­ingi á aðgerðum þing­mann­anna gagn­vart Báru. „Ef ég á að segja alveg eins og er þá er ég kom­inn með hund­leið á þessu máli. Ég skil alveg það sem Sig­mundur Davíð er að benda á og tel að vilji menn láta reyna á rétt sinn til þess að kalla fram frek­ari gögn og upp­lýs­ingar þá sé mjög hæpið að menn reyni að leggja stein í götu þeirra,“ sagði hann í Krydd­síld Stöðvar 2 á gaml­árs­dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Bergþór gerður að nefndarformanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá
FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.
Skýringar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli
FréttirKlausturmálið

Skýr­ingar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli

Eftir að siða­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli Gunnars Braga og Bergþórs Ólasonar um Albertínu Frið­björgu Elí­as­dóttur og MeToo væru brot á siða­reglum sögð­ust þing­menn­irnir hafa verið að lýsa erf­iðri reynslu, áreitni og „kyn­ferð­is­broti“. „Hvað við­kemur lýsingu BÓ og GBS á sam­skiptum þeirra við Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur, sbr. kafli 2.5., verður ekki séð að lýsingar þeirra á þeim skipti máli við mat á þeim málavöxtum,“ segir for­sætis­nefnd.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár