Sakaður um á þriðja tug kynferðisbrota en ætlar að „berjast á móti vindi“

Fyr­ir­tæki manns sem hátt í 30 konur telja hafa brotið gegn sér þakkar við­skipta­vinum fyrir tryggð­ina. „Hlökkum til hvers dags með ykkur.“

Sakaður um á þriðja tug kynferðisbrota en ætlar að „berjast á móti vindi“

Postura, með­höndl­ara­stofa Jóhann­esar Tryggva Svein­björns­sonar, sendir þeim við­skipta­vinum hlýjar kveðjur sem haldið hafa tryggð við fyr­ir­tækið þrátt fyrir að tugir kvenna hafi sakað Jóhannes um kyn­ferð­is­brot. „Við hjá Postura erum virki­lega þakk­lát stuðn­ingi frá öllum þeim við­skipta­vinum sem halda traust og trú við okkur, stundum þegar blæs á móti og þá er tvennt í stöð­unni að fara í skjól eða berj­ast á móti vindi. Hlökkum til hvers dags með ykkur, kv postura Crew,“ segir í færslu sem fyr­ir­tækið birti á Facebook nú í byrjun vik­unnar. 

DV og Frétta­blaðið greindu frá því fyrir jól að tæp­lega 30 konur hefðu leitað sér lög­fræði­að­stoðar vegna meintra brota Jóhann­esar Tryggva gegn þeim. „Ég sér­hæfi mig í losa um við­nám og spennu, leið­rétta lík­ams­stöðu og lag­færa verki í stoð­kerf­inu,“ er haft eftir Jóhann­esi á vef fyr­ir­tæk­is­ins. Hann hefur gefið lítið fyrir ásak­an­irnar, gert lög­manni kvenn­anna upp ann­ar­legar hvatir og hvatt karl­menn til að manna sig upp gagn­vart „crazy bitches þarna úti“. 

Elísabet Ýr Atla­dóttir, femínisti sem hefur látið tals­vert að sér kveða í umræð­unni um mál­efni kynj­anna und­an­farin ár, vekur athygli á til­kynn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins á Facebook. „Maðurinn sem rekur þessa stofu, Jóhannes Tryggvi Svein­björns­son, hefur verið kærður af amk 15 konum fyrir kyn­ferð­is­brot,“ skrifar hún. „Það er greini­lega bara mót­vindur og leið­indi sem þarf smá sam­stöðu gegn. Hann virð­ist rosa­lega þakk­látur fyrir þau sem hunsa það algjör­lega að það er verið að kæra hann marg­falt. Hann hefur gert grín að þessu, gerir lítið úr kon­unum sem ásaka hann, þakkar svo fyrir með­virkni fólks,“ skrifar hún. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynferðisbrot

Kennari misnotaði sérkennslunemanda – Skipaði honum að mæta með byssu og skjóta samstarfsmann
HeimurKynferðisbrot

Kennari mis­not­aði sér­kennslu­nem­anda – Skipaði honum að mæta með byssu og skjóta sam­starfs­mann

Kennari sem beitti 16 ára nem­anda kyn­ferð­is­legu ofbeldi og skip­aði honum að koma með byssu inn í skól­ann til að skjóta sam­starfs­mann hefur verið dæmdur í fjög­urra ára fang­elsi. Imagine Kay Ewer, 28, sat fyrir ung­lingnum, sem nýtur sér­kennslu í námi, og átti „tíð kyn­ferð­is­leg kynni“ með honum í nokkrar vikur. Dómstóll sagði að Ewer hafi verið í trún­að­ar­stöðu, eitt­hvað...
Tilkynningum um kynferðisbrot gegn börnum fjölgar á milli ára
InnlentKynferðisbrot

Til­kynn­ingum um kyn­ferð­is­brot gegn börnum fjölgar á milli ára

Um 10 pró­sent aukn­ing á til­kynn­ingum um kyn­ferð­is­brot varð á milli áranna 2023 og 2024. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu rík­is­lög­reglu­stjóra. Skýrsla rík­is­lög­reglu­stjóra um kyn­ferð­is­brot hefur nú verið birt. Í skýrsl­unni má finna upp­lýs­ingar um fjölda til­kynn­inga til lög­reglu vegna kyn­ferð­is­brota árið 2024. Tilkynnt brot voru 568 tals­ins, sem er 10% aukn­ing til­kynn­inga frá 2023. Lög­reglan skráir bæði hvenær...
Héraðssaksóknari þegir þunnu hljóði um meint kynferðisbrot á þroskahamlaðri konu
InnlentKynferðisbrot

Hér­aðs­sak­sókn­ari þegir þunnu hljóði um meint kyn­ferð­is­brot á þroska­haml­aðri konu

Vara­hér­aðs­sak­sókn­ari svarar ekki hvort hópur manna verði ákærðir vegna gruns um kyn­ferð­is­brot gegn þroska­haml­aðri konu sem starf­aði fyrir einn mann­anna. Sjá einnig: Versl­un­ar­stjóri grun­aður um kyn­ferð­is­brot gegn fatl­aðri starfs­konu sinni Karl Ingi Vil­bergs­son, vara­hér­aðs­sak­sókn­ari, hefur ekki enn svarað spurn­ingum Mannlífs sem hann fékk sendar fyrir ell­efu dögum síðan og ítrekun nokkrum dögum síðar. Þá hefur Mannlíf einnig hringt í emb­ættið...
Myndir af neyðarmóttöku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“
FréttirKynferðisbrot

Myndir af neyð­ar­mót­töku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“

Lögreglu var heim­ilt að senda myndir sem teknar voru af Guðnýju S. Bjarna­dóttur á neyð­ar­mót­töku fyrir þolendur kyn­ferð­is­of­beldis á verj­anda manns sem hún kærði fyrir nauðgun. Þetta er nið­ur­staða Per­sónu­verndar. Guðný segir ótækt að ger­endur í kyn­ferð­is­af­brota­málum geti með þessum hætti fengið aðgang að við­kvæmum myndum af þolendum. „Þetta er bara staf­rænt kyn­ferð­is­of­beldi af hendi lög­regl­unnar.“
Dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot í jólaboði – Kom grátandi og skelkuð á sjúkrahús
InnlentKynferðisbrot

Dæmdur í tveggja ára fang­elsi fyrir kyn­ferð­is­brot í jóla­boði – Kom grát­andi og skelkuð á sjúkra­hús

Í síð­ustu viku var karl­maður dæmdur sekur fyrir hér­aðs­dóm­stól Aust­ur­lands, um gróft og alvar­legt kyn­ferð­is­brot gagn­vart ungri konu. Brotið framdi hann í jóla­boði fyr­ir­tækis í des­em­ber síð­ast­liðnum. Maðurinn var dæmdur í tveggja ára fang­elsi og þarf að greiða miska­bætur. Samkvæmt Aust­ur­frétt kom konan grát­andi og hrædd á sjúkra­húsið í Nes­kaups­stað aðfar­arnótt 16. des­em­ber í fyrra eftir að brotið hafði verið...

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár