Bára hafði betur: Landsréttur staðfestir niðurstöðu héraðsdóms

Tvö dóms­stig hafa nú hafnað kröfu Klaust­urs­manna um gagna­öflun og vitna­leiðslur vegna fyr­ir­hug­aðrar mál­sóknar gegn Báru Hall­dórs­dóttur.

Bára hafði betur: Landsréttur staðfestir niðurstöðu héraðsdóms

Lands­réttur hefur stað­fest úrskurð Hér­aðs­dóms Reykja­víkur er varðar fyr­ir­hug­aða mál­sókn þing­manna Mið­flokks­ins gegn Báru Hall­dórs­dóttur vegna hljóð­rit­unar á sam­skiptum þeirra á veit­inga­staðnum Klaustri. 

Þing­menn­irnir, þau Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, Gunnar Bragi Sveins­son, Bergþór Ólason og Anna Kolbrún Árna­dóttir, fóru fram á að ráð­ist yrði í gagna­öflun og vitna­leiðslur fyrir hér­aðs­dómi í des­em­ber. Þeirri kröfu var hafnað í hér­aði þann 19. des­em­ber en þing­menn­irnir áfrýj­uðu mál­inu til Lands­réttar.

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar kvað Lands­réttur upp úrskurð í dag þar sem nið­ur­staða Hér­aðs­dóms er stað­fest og máls­kostn­aður felldur á þing­menn­ina. 

Bára Hall­dórs­dóttir steig fram í for­síðu­við­tali við Stundina þann 7. des­em­ber síð­ast­lið­inn. „Mér bara brá svo þegar ég heyrði hvernig þing­menn­irnir töl­uðu. Satt best að segja trúði ég ekki mínum eigin skiln­ing­ar­vitum. Svo ég byrj­aði bara að taka upp, án þess að hugsa það neitt lengra,“ sagði hún sem sjálf er hinsegin og öryrki. „Því meira sem ég hlust­aði, því reið­ari varð ég, því þarna voru saman komnir valda­miklir menn að spúa hatri yfir minni­hluta­hópa á almanna­vett­vangi. Ég held að það hafi verið rétt að upp­lýsa almenn­ing um það sem þarna fór fram og eftir á að hyggja er ég stolt af því.“

Af bréfum sem lög­maður þing­manna Mið­flokks­ins hefur sent hér­aðs­dómi og Per­sónu­vernd má ráða að þing­menn­irnir vilji að Bára Hall­dórs­dóttir sæti refs­ingu, greiði þeim miska­bætur og verði sektuð af Per­sónu­vernd vegna ólög­mætrar „njósn­a­að­gerðar“ sem þing­menn­irnir telja sig hafa orðið fyrir.

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra hefur lýst skiln­ingi á þessum aðgerðum þing­mann­anna. „Ef ég á að segja alveg eins og er þá er ég kom­inn með hund­leið á þessu máli. Ég skil alveg það sem Sig­mundur Davíð er að benda á og tel að vilji menn láta reyna á rétt sinn til þess að kalla fram frek­ari gögn og upp­lýs­ingar þá sé mjög hæpið að menn reyni að leggja stein í götu þeirra,“ sagði hann í Krydd­síld Stöðvar 2 á gaml­árs­dag. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár