Uppljóstrarinn af Klaustri: „Ég er fötluð hinsegin kona og mér blöskraði“

„Ég er þessi Marvin sem rugg­aði bátnum,“ segir Bára Hall­dórs­dóttir, sem var stödd fyrir til­viljun á Klaustri Bar þann 20. nóv­em­ber og varð vitni að ógeð­felldum sam­ræðum þing­manna. „Ég varð bara svo sár og trúði varla því sem ég heyrði.“ Forseti Alþingis hefur beðið fatl­aða, hinsegin fólk og konur afsök­unar á ummælum þing­mann­anna, en Bára til­heyrir öllum þremur hóp­unum. Nú stígur hún fram í við­tali við Stundina, greinir frá atburð­unum á Klaustri og opnar sig um reynsl­una af því að vera öryrki og mæta skiln­ings­leysi og firr­ingu valda­mik­illa afla á Íslandi.

Uppljóstrarinn af Klaustri: „Ég er fötluð hinsegin kona og mér blöskraði“

Þegar hún fékk sér sæti á Klaustri Bar þann 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn og pant­aði sér kaffi hvarfl­aði ekki að henni í hvað stefndi. 

Hverjum hefði svo sem dottið í hug að hún væri í þann mund að hrinda af stað atburða­rás þar sem tveir þing­menn yrðu reknir úr stjórn­mála­flokki, aðrir tveir myndu hrökkl­ast í launa­laust leyfi, haldin yrðu fjölda­mót­mæli á Aust­ur­velli, ráð­herrar yrðu kall­aðir fyrir stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd vegna grun­semda um spill­ingu og for­seti Alþingis fyndi sig knú­inn til að biðja þjóð­ina afsök­unar á ósæmi­legu fram­ferði kjör­inna full­trúa og harma sér­stak­lega hvernig þeir töl­uðu til fatl­aðra, hinsegin fólks og kvenna?

„Þetta var súr­r­eal­ískt. Ég býst enn við að vakna og kom­ast að því að þetta hafi allt verið draumur,“ segir Bára Hall­dórs­dóttir, fötluð hinsegin kona. Það var hún sem sat rétt hjá þing­mönn­unum sex úr Mið­flokknum og Flokki fólks­ins þetta örlaga­ríka kvöld og það var hún sem fann sig knúna til þess nokkrum dögum síðar að senda fjöl­miðlum upp­tök­urnar. 

„Mér bara brá svo þegar ég heyrði hvernig þing­menn­irnir töl­uðu. Satt best að segja trúði ég ekki mínum eigin skiln­ing­ar­vitum. Svo ég byrj­aði bara að taka upp, án þess að hugsa það neitt lengra. En því meira sem ég hlust­aði, því reið­ari varð ég, því þarna voru saman komnir valda­miklir menn að spúa hatri yfir minni­hluta­hópa á almanna­vett­vangi. Ég held að það hafi verið rétt að upp­lýsa almenn­ing um það sem þarna fór fram og eftir á að hyggja er ég stolt af því,“ segir Bára. 

Hingað til hefur hún verið þekkt undir dul­nefni sem hún not­aði þegar hún sendi fjöl­miðlum upp­tök­urnar, nafn­inu Marvin sem er til­vísun í Hitchhiker's Guide to the Galaxy, eina af hennar upp­á­halds­bókum.

En nú hefur hún ákveðið að stíga fram undir sínu raun­veru­lega nafni í við­tali við Stundina, greina frá atburð­unum 20. nóv­em­ber og opna sig um reynsl­una af því að vera öryrki á Íslandi, til­heyra tveimur minni­hluta­hópum og mæta skiln­ings­leysi valda­mik­illa afla í sam­fé­lag­inu. Hún segir að sjaldan hafi þetta skiln­ings­leysi birst sér jafn skýrt og þegar hún hlust­aði á mál­flutn­ing þing­mann­anna á Klaustri. 

Með sjaldgæfan gigtarsjúkdóm

Áður en við víkjum að hinni alræmdu Klaust­urs­upp­á­komu skulum við kynn­ast Báru.

„Sumir hafa kallað mig Marvin. En ég heiti bara Bára Hall­dórs­dóttir og er 42 ára öryrki,“ segir hún. „Ég á son, hund, tvo ketti og konu. Ég sinni fræðslu og rétt­inda­bar­áttu fyrir lang­veika og öryrkja eftir því sem ég get, aðal­lega í gegnum sam­fé­lags­miðla.“ 

„Ég á son, hund, tvo ketti og konu.“

Bára glímir við sjúk­dóm­inn Behcet's, gigt­ar­sjúk­dóm sem leggst á æða­kerfi lík­am­ans. Sjúk­dóm­ur­inn er mjög sjald­gæfur og aðeins sex Íslend­ingar eru greindir með hann. „Þetta er sjálf­só­næmis- og gigt­ar­sjúk­dómur, ólækn­an­legur og krónískur, og lýsir sér í stöð­ugum vöðva­verkjum, sára­myndun og bólgum. Stundum fer melt­ing­ar­kerfið í klessu, stundum koma kvið­verkir og maga­krampi. Ég fékk einu sinni gervi­heila­himnu­bólgu og allt er þetta auð­vitað mjög streitu­vald­andi. Í raun­inni er ég alltaf lasin, rúm­liggj­andi vikum og mán­uðum saman og þarf að vera á sterkum lyfjum til að geta farið á stjá eða gert nokkurn skap­aðan hlut.“ 

Eftir að Bára útskrif­að­ist frá Mennta­skól­anum við Sund skráði hún sig í guð­fræði og þjóð­fræði við Háskóla Íslands. „Ég hélt það ekki út,“ segir hún. Á þrí­tugs­aldri vann hún meðal ann­ars við úthring­ingar og á leik­skóla og bóka­safni. „Ég vann líka einu sinni við for­ritun. Byrjaði svo í námi í raf­einda­virkjun en hafði ekki orku til að klára verk­lega hlut­ann. Fyrir átta árum tók svo sjúk­dóm­ur­inn alveg yfir og ég hætti að geta stundað nám eða unnið að neinu ráði. Síðan hef ég stundum þurft að vera í hjóla­stól og reglu­lega verið lögð inn á spít­ala og farið á slysó í verkja­still­ingu. 

Ég leik mér stundum að því að kalla mig atvinnu­sjúk­ling, því það er það sem ég geri. Ég vinn við að halda góðri heilsu til að geta lifað fjöl­skyldu­lífi. Síðast þegar ég vann hefð­bundna vinnu – það var árið 2007 þegar barnið mitt var sex ára – þá vann ég á frí­stunda­heim­ili. En hélt það ekki út nema nokkra mán­uði, varð aftur veik og hætti að geta unnið.“ 

Fötl­un­ar­for­dóm­arnir sem Bára verður fyrir markast af því að hún er með ósýni­lega fötlun. Fólk sér hana leggja í fatl­aðra­stæði og rekur upp stór augu því hún ber það ekki utan á sér að vera fötluð. „Þegar ég bið um hjálp þá sést ekk­ert endi­lega á mér að ég þurfi hana. Og ég hef upp­lifað að fólk trúi því ekki að ég sé veik, haldi bara að þetta sé leti eða eitt­hvað slíkt,“ segir hún. 

Fyrst drógu læknar þá ályktun að hún ætti við geð­rænan en ekki lík­am­legan sjúk­dóm að stríða og raunar eru ekki nema fimm ár síðan Bára fékk grein­ingu, stað­fest­ingu á því að hún væri með gigt­ar­sjúk­dóm­inn Behcet's. Und­an­farin ár hefur hún haldið fyr­ir­lestra og tekið þátt í vit­und­ar­vakn­ingu um stöðu öryrkja, fátækra og fatl­aðra í gegnum félaga­sam­tökin Tabú og Pepp.

Dauð stund á Klaustri 

Bára til­heyrir hópi fólks sem hefur staðið að menn­ingar- og skemmti­við­burðum undir yfir­skrift­inni Rauða skálda­húsið í Iðnó und­an­farin ár. Þar er dansað, farið með ljóð og sýnd töfra­brögð en Bára hefur verið í hlut­verki spá­konu og dregið Tarot-spil. Kvöldið 20. nóv­em­ber var Bára á leið­inni á æfingu með hópnum en fyrst hafði hún mælt sér mót við vini sína frá útlöndum sem voru staddir á Íslandi. „Það var dauð stund þarna á milli. Eftir síð­ustu æfingu hjá Rauða skálda­hús­inu höfðum við farið á Klaustur Bar, þarna rétt hjá Iðnó, svo ég hugs­aði með mér að það væri fínt að setj­ast þar aðeins niður fram að æfing­unni og fá sér kaffi.“

Eftir að Bára kom sér fyrir á Klaustri varð hún fljót­lega vör við and­lit sem hún kann­að­ist við. Þetta var Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra.

„Fyrst var ég lítið að spek­úlera í þessu, en svo heyrði ég allt í einu að Sig­mundur og menn­irnir sem hann var með voru að tala um að ein­hver „kell­ing“ á þing­fundi hefði „aldrei ætlað að hætta að tala“, eitt­hvað um „kell­ingu í ræðu­stól alveg enda­laust“ eða eitt­hvað í þá átt­ina, og ég varð svo hissa. Svo heyrði ég eitt­hvað enn gróf­ara, ég man ekki nákvæm­lega hvað, en það var eitt­hvað sem sló mig. Mér varð fljót­lega ljóst að þetta voru stjórn­mála­menn, opin­berar per­sónur. Svo ég ákvað bara að prófa aðeins að kveikja á upp­töku­for­rit­inu í sím­anum mínum.“ 

Bára dregur upp úr vas­anum síma, gamlan brot­inn Samsung Galaxy A5, og segir bros­andi: „Þetta er sem­sagt hler­un­ar­bún­að­ur­inn ógur­legi sem Sig­mundur Davíð hefur talað um.“

Litla þúfan„Ég er eig­in­leg stolt af því að vera litla þúfan sem velti þessu þunga hlassi og setti þessa atburða­rás af stað,“ segir Bára.

„Svo hátt að það heyrðist um allt“

Stundin hefur fjallað með ítar­legum hætti um þá for­dóma­fullu orð­ræðu í garð öryrkja, fatl­aðra, hinseg­in­fólks og kvenna sem birt­ist í sam­tölum þing­mann­anna á Klaustri.

Þing­menn­irnir sem skelltu sér á bar­inn voru þau Sig­mundur Davíð, Gunnar Bragi Sveins­son, Bergþór Ólason og Anna Kolbrún Árna­dóttir úr Mið­flokknum, og Ólafur Ísleifs­son og Karl Gauti Hjalta­son úr Flokki fólks­ins. Orð­ljót­astir og klám­fengn­astir voru Bergþór og Gunnar Bragi en Sig­mundur Davíð tók líka virkan þátt í kven­fyr­ir­litn­ingar- og karl­rembutal­inu, hló og tók undir með sam­flokks­mönnum sínum. Þre­menn­ing­arnir töl­uðu með einkar ógeð­felldum hætti um Lilju Alfreðs­dóttur, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, og not­uðu orð sem engan skyldi undra að Lilja hafi fengið áfall við að lesa. „Ég upp­lifi þetta sem ofbeldi. Þeir eru ofbeld­is­menn,“ sagði hún í Kast­ljós­svið­tali nú í vik­unni.

Báru Hall­dórs­dóttur varð brugðið þegar hún heyrði hvernig þing­menn­irnir töl­uðu um konur. „Ég hugs­aði: Ha? Varla tala þeir svona? Ég var ekki búin að hafa kveikt á upp­töku nema í stutta stund þegar þeir eru farnir að tala um að ríða ein­hverjum skrokkum og ég veit ekki hvað – og ég ætl­aði ekki að trúa þessu. Við vorum stödd í opnu rými, á stað sem er opinn almenn­ingi, og þau töl­uðu svo hátt að það heyrð­ist um allt og meira að segja yfir í hitt rýmið á barnum. Ég hugs­aði með mér: Er þetta í alvör­unni eðli­leg hegðun af hálfu þjóð­kjör­inna full­trúa, þing­mann­anna okkar? Er þetta ekki akkúrat sú orð­ræða sem við erum nýbúin að vera að berj­ast gegn með MeToo og svo fram­vegis, og er bara í lagi að valda­miklir menn sitji og tali svona, hátt og skýrt á kaffi­húsi eins og ekk­ert sé?

„Ég vildi óska þess að þetta hefði verið einka­sam­tal, en ég sat undir þessu og satt best að segja trúði ég ekki mínum eigin skiln­ing­ar­vitum“

Þeir tala um þetta sem einka­sam­tal. Ég vildi óska þess að þetta hefði verið einka­sam­tal, en ég sat undir þessu og satt best að segja trúði ég ekki mínum eigin skiln­ing­ar­vitum, mér brá svo. Mér fannst ég ekki geta annað en haldið áfram að taka sam­talið upp. Ég hugs­aði þetta ekk­ert lengra og bjóst í raun ekki við því að þetta yrði notað. En ég varð bara svo sár og trúði varla því sem ég heyrði.“ 

Bára tók þessa mynd af þing­mönn­unum.

Öryrkjar stimplaðir

Bára heyrði hvernig Gunnar Bragi sprell­aði um „smjör á smokknum hans Friðriks Ómars“, lands­þekkts sam­kyn­hneigðs söngv­ara. Síðar átti eftir að renna upp fyrir henni hvernig þing­menn­irnir höfðu hæðst að Freyju Har­alds­dóttur, vin­konu hennar og einni öfl­ug­ustu bar­áttu­konu fyrir rétt­indum fatl­aðra á Íslandi. Á upp­tök­unum er talað um karl­ana í Flokki fólks­ins sem „burða­rás flokks­ins“ meðan Inga Sæland kunni ekki annað en að grenja og sé „húrr­andi klikkuð kunta“ sem muni jafn­vel planta öryrkjum í öll odd­vita­sætin fyrir næstu þing­kosn­ingar. 

„Fyrir mér væri það reyndar bara jákvætt ef ein­hver flokkur gerði það,“ segir Bára, sem er sjálf öryrki og þekkir af sárri reynslu hvernig gengið hefur verið fram hjá öryrkjum í póli­tískri stefnu­mótun og raddir þeirra huns­aðar. „Maður upp­lifir að það sé enda­laust verið að ganga á hlut manns og maður er alltaf í óvissu um hverju þeir skelli á mann næst. Ég held það liggi ekki í illsku heldur í því að fólk veit ekki og skilur ekki í hvaða aðstæðum við erum, hvernig líf okkar er,“ segir hún. „Ég held að það væri af hinu góða ef fleiri öryrkjar ættu sæti á þingi. Við búum í vel­ferð­ar­þjóð­fé­lagi þar sem við eigum að fá stuðn­ing og eigum ekki að þurfa að skamm­ast okkar fyrir það. Mér finnst ekki að ég eigi að skamm­ast mín fyrir að hafa fengið sjúk­dóm. Ég get ekk­ert að því gert.“ 

Bára seg­ist ekki geta annað en velt því fyrir sér hvort for­dóma­full við­horf gagn­vart öryrkjum á borð við þau sem birt­ust á Klaustri eigi þátt í því hve tregur lög­gjaf­inn hafi verið til að bæta kjör þeirra og berja í brest­ina á örorku­bóta­kerf­inu. Sjálf hefur hún orðið fyrir barð­inu á svo­kall­aðri krónu á móti krónu-skerð­ingu, sem lýsir sér þannig að líf­eyr­is­greiðslur eru skertar um krónu fyrir hverja krónu sem líf­eyr­is­þegi vinnur sér inn og tekjur geta þannig hald­ist óbreyttar þrátt fyrir atvinnu­þátt­töku.

„Já, ég hef lent í þessu. Mér var boðin vinna sem ég gat unnið þegar ég var hress. Fékk 100 þús­und krónur og tók út við­bót­ar­sparn­að­inn minn, aðrar 100 þús­und krónur. Svo um haustið fékk ég mínus­reikn­ing frá rík­inu um sirka 100 þús­und krónur og svo kröfu um end­ur­greiðslu upp á 90 þús­und frá Trygg­inga­stofnun. Það var rosa­legt áfall. Ég greiddi 90 pró­sent af þessum pen­ing til baka. Það er ger­sam­lega fárán­legt að hafa ekki svig­rúm á einum né neinum stað til að bæta kjör sín. Enginn lifir svo sómi sé að á rúm­lega 200 þús­und krónum á Íslandi.

„Ég get ekki sagt þér hvað ég myndi 
borga mikið fyrir að geta unnið þótt 
ekki væri nema einn dag í viku.“

Upp­töku­bún­að­ur­innBára not­aði þennan síma til að taka þing­menn­ina upp.

Það er rosa­legur stimp­ill að vera öryrki. Sífellt er dregin upp mynd af öryrkjum sem ein­hverjum dópistum eða let­ingjum, að minnsta kosti ef við­kom­andi er ekki í hjóla­stól eða með aug­ljósa lík­am­lega fötlun, allir sem eru ekki þannig hljóta bara að vera að svíkja kerfið. Ég get ekki sagt þér hvað ég myndi borga mikið fyrir að geta unnið, þótt ekki væri nema einn dag í viku. Þegar ég næ að afkasta ein­hverju, skrifa grein eða eitt­hvað slíkt, þá er ég alltaf him­in­lif­andi. Þegar ég vann mér inn 100 þús­und kall­inn fannst mér ég hafa lagt eitt­hvað til heim­il­is­ins, en svo var hann bara tek­inn af mér vegna krónu á móti krónu-skerð­ing­ar­innar. Það var rosa­legt sjokk.“  

Skýringar Sigmundar hæpnar

Veik­indin lögð­ust þungt á Báru árið 2016 og hún ótt­að­ist að þurfa að vera orku­laus í hjóla­stól fyrir lífs­tíð. „Ég sá ekki fyrir mér neina fram­tíð. En þá fór ég á nám­skeið fyrir fatl­aðar konur og kynnt­ist Freyju Har­alds­dóttur og fleirum. Mér finnst þær eig­in­lega hafa bjargað lífi mínu. Ég varð mikil vin­kona Freyju upp frá þessu og við mynd­uðum sterk tengsl.“

Bára átt­aði sig ekki á því fyrr en hún sá frétt­ina í DV að þing­menn­irnir hefðu verið að gera grín að Freyju Har­alds­dóttur. „Ég heyrði eitt­hvað um Freyju Eyju, hélt kannski að verið væri að tala um ein­hverja Freyju Eyj­ólfs­dóttur. Þegar ég sá þetta í DV og átt­aði 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Bergþór gerður að nefndarformanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá
FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.
Skýringar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli
FréttirKlausturmálið

Skýr­ingar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli

Eftir að siða­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli Gunnars Braga og Bergþórs Ólasonar um Albertínu Frið­björgu Elí­as­dóttur og MeToo væru brot á siða­reglum sögð­ust þing­menn­irnir hafa verið að lýsa erf­iðri reynslu, áreitni og „kyn­ferð­is­broti“. „Hvað við­kemur lýsingu BÓ og GBS á sam­skiptum þeirra við Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur, sbr. kafli 2.5., verður ekki séð að lýsingar þeirra á þeim skipti máli við mat á þeim málavöxtum,“ segir for­sætis­nefnd.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár