Róbert greiddi rúmar 170 milljónir upp í 2,8 milljarða skuldir við Landsbankann

Fjár­festir­inn Róbert Wessman gerði skulda­upp­gjör við Lands­banka Íslands árið 2014. Greiddi rúm­lega 6 pró­sent skulda eign­ar­halds­fé­lags síns við bank­ann með pen­ingum. Róbert hefur efn­ast á liðnum árum og keypti sér meðal ann­ars 3 millj­arða króna íbúð í New York fyrir tveimur árum.

Róbert greiddi rúmar 170 milljónir upp í 2,8 milljarða skuldir við Landsbankann
Gerði annan samn­ing við Lands­bank­ann Róbert Wessman fjár­festir gerði samn­ing við Lands­banka Íslands sem fól í sér greiðslu rúm­lega 170 mlljóna króna upp í 2.8 millj­arða skuld eign­ar­halds­fé­lags í hans eigu.

Fjár­festir­inn Róbert Wessmann, for­stjóri sam­heita­lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Alvogen, greiddi skila­nefnd Lands­banka Íslands rúm­lega 170 millj­ónir íslenskra króna til að kaupa til baka tæp­lega 2,8 millj­arða króna skuldir eign­ar­halds­fé­lags sem hann átti. Þetta gerð­ist í maí árið 2014 og kemur fram í und­ir­rit­uðum samn­ingi á milli eign­ar­halds­fé­lags í lág­skatta­rík­inu Möltu, Alvogen Trading Limited, og skila­nefndar Lands­banka Íslands. Lands­banki Íslands leysti einnig til sín eitt­hvað af eignum félags­ins, sam­kvæmt svari frá tals­manni Róberts, en það stund­aði fast­eigna­við­skipti á Spáni, Brasilíu og í Litháen. 

Þetta þýðir að Róbert greiddi Lands­banka Íslands ein­ungis rúm­lega 6 pró­sent af upp­haf­legri láns­fjár­hæð í pen­ingum. Eft­ir­stöðvar krafna, þegar búið var að gera ráð fyrir pen­inga­greiðsl­unni og virði yfir­tekna eigna, á hendur félagi Róberts voru svo afskrif­aðar í bókum Lands­banka Íslands þar sem fullt verð fékkst ekki fyrir þær. Með samn­ingnum við Lands­banka Íslands fylgir yfir­lýs­ing, und­ir­rituð af Róberti Wessman, þar sem hann seg­ist ekki eiga aðrar eignir en þær sem …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár