Aðili

Landsbank Íslands

Greinar

AfhjúpunPanamaskjölin

Flett ofan af Björg­ólfs­feðgum: Reikn­ingur í skatta­skjóli og banka­hólf opnuð í hrun­inu

Gögn frá lög­manns­stof­unni Mossack Fonseca varpa ljósi á ótrú­lega umfangs­mikil við­skipti feðganna Björg­ólfs Guð­munds­sonar og Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar í skatta­skjólum fyrir og eftir hrunið 2008. Feðgarnir tengdir meira en 50 félögum. Dóttir Björg­ólfs Guð­munds­sonar opn­aði banka­reikn­ing og banka­hólf í Sviss og neitar að segja af hverju. Óþekkt lán­veit­ing upp á 3,6 millj­arða til Tortóla­fé­lags. Félag sem Björgólfur eldri stýrði fékk millj­arð í lán sem aldrei fékkst greitt til baka. Nær öll fyr­ir­tæki Björg­ólfs Thors eru beint eða óbeint í skatta­skjóli.

24 mín. lestur

FréttirPanamaskjölin

Panama-skjölin: Einn rík­asti útgerð­ar­maður lands­ins með hlut í félagi á Tortólu

Útgerð­ar­stjóri og næst­stærsti hlut­hafi Samherja, Kristján Vil­helms­son, var skráður fyrir hlut í fyr­ir­tæk­inu í Hornblow Continental Corp. Kristján og kona hans eiga eignir upp á um sjö millj­arða króna. Annar hlut­hafi í Hornblow, Hörður Jónsson, segir að félagið hljóti að hafa verið stofnað í gegnum Lands­banka Íslands.
FréttirWintris-málið

Lands­bank­inn aug­lýsti ráð­gjöf til að minnka skatt­greiðslur: „Kemur þér bara ekk­ert við“

Kristján Gunnar Valdi­mars­son, skatta­ráð­gjafi Lands­bank­ans fyrir hrun, vill ekki ræða þá ráð­gjöf sem bank­inn veitti við­skipta­vinum sínum. Aug­lýs­ing um ráð­gjöf Krist­jáns Gunnars var ennþá inni á vef Lands­bank­ans eftir hrun. Allir þrír íslensku ráð­herr­arnir sem tengj­ast félögum í skatta­skjólum fengu við­skipta­ráð­gjöf frá Lands­banka Íslands fyrir hrunið árið 2008. Lands­bank­inn hf. segir að hann bjóði ekki lengur upp á skatta­ráð­gjöf.

Mest lesið undanfarið ár