Róbert greiddi rúmar 170 milljónir upp í 2,8 milljarða skuldir við Landsbankann

Fjár­festir­inn Róbert Wessman gerði skulda­upp­gjör við Lands­banka Íslands árið 2014. Greiddi rúm­lega 6 pró­sent skulda eign­ar­halds­fé­lags síns við bank­ann með pen­ingum. Róbert hefur efn­ast á liðnum árum og keypti sér meðal ann­ars 3 millj­arða króna íbúð í New York fyrir tveimur árum.

Gerði annan samning við Landsbankann
Gerði annan samn­ing við Lands­bank­ann Róbert Wessman fjár­festir gerði samn­ing við Lands­banka Íslands sem fól í sér greiðslu rúm­lega 170 mlljóna króna upp í 2.8 millj­arða skuld eign­ar­halds­fé­lags í hans eigu.

Fjár­festir­inn Róbert Wessmann, for­stjóri sam­heita­lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Alvogen, greiddi skila­nefnd Lands­banka Íslands rúm­lega 170 millj­ónir íslenskra króna til að kaupa til baka tæp­lega 2,8 millj­arða króna skuldir eign­ar­halds­fé­lags sem hann átti. Þetta gerð­ist í maí árið 2014 og kemur fram í und­ir­rit­uðum samn­ingi á milli eign­ar­halds­fé­lags í lág­skatta­rík­inu Möltu, Alvogen Trading Limited, og skila­nefndar Lands­banka Íslands. Lands­banki Íslands leysti einnig til sín eitt­hvað af eignum félags­ins, sam­kvæmt svari frá tals­manni Róberts, en það stund­aði fast­eigna­við­skipti á Spáni, Brasilíu og í Litháen. 

Þetta þýðir að Róbert greiddi Lands­banka Íslands ein­ungis rúm­lega 6 pró­sent af upp­haf­legri láns­fjár­hæð í pen­ingum. Eft­ir­stöðvar krafna, þegar búið var að gera ráð fyrir pen­inga­greiðsl­unni og virði yfir­tekna eigna, á hendur félagi Róberts voru svo afskrif­aðar í bókum Lands­banka Íslands þar sem fullt verð fékkst ekki fyrir þær. Með samn­ingnum við Lands­banka Íslands fylgir yfir­lýs­ing, und­ir­rituð af Róberti Wessman, þar sem hann seg­ist ekki eiga aðrar eignir en þær …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár