Aðalmálið að gefa börnunum rödd

Rit­höf­unda­skóli fyrir börn tekur fljót­lega til starfa í Gerðu­bergi með styrk frá Vel­ferð­ar­sjóði barna. „Skóla­stjór­inn“ Markús Már Efraím vonar að þetta verði fyrsta skrefið í átt að opnun Barna­menn­ing­ar­húss í Reykja­vík, þar sem rit­list yrði í hávegum höfð.

Aðalmálið að gefa börnunum rödd
Skrifar fyrir börn og hjálpar þeim að skrifa sjálf Markús Már Efraím segir börn betri útgáf­una af mann­eskj­unum. Full­orðið fólk ætti að taka betur eftir því sem þau hafa að segja. Mynd: Heiða Helgadóttir

Sístækk­andi hópur rit- og mynd­höf­unda stendur að baki þeirri hug­mynd að stofnað verði rit­ver, eða Barna­menn­ing­ar­hús, í Reykja­vík. Þeirra á meðal eru Andri Snær Magnason, Sigrún Eldjárn, Linda Ólafs­dóttir og Ævar Þór Bene­dikts­son, svo ein­hver séu nefnd.

Maðurinn sem hefur haldið verk­efn­inu gang­andi, end­ur­tekið knúið dyra hjá borg­ar­yf­ir­völdum, rík­inu og einka­reknum sjóðum, er Markús Már Efraím. Hann hefur á und­an­förnum árum helgað líf sitt skrifum fyrir og með börnum. Hann hefur meðal ann­ars staðið fyrir ritsmiðjum sem að minnsta kosti fimm hund­ruð börn hafa sótt. Það vakti nokkra athygli þegar út kom bókin Eitthvað illt á leið­inni er, en hún er sam­an­safn hryll­ings­sagna eftir börn, en Markús rit­stýrði henni og gaf hana út á eigin kostnað.   

Vinnan hefur nú skilað sér í því að stofn­aður hefur verið Rit­höf­unda­skóli fyrir börn í Gerðu­bergi, með styrk frá vel­ferð­ar­sjóði barna. Öllum börnum verður gef­inn kostur á að skrá sig í skól­ann …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár