Hátt í 800 umsagnir um samgönguáætlun

Hundruð umsagna þar sem and­stöðu við veggjöld er lýst eru því sem næst sam­hljóða. Eiga upp­tök sín af vef­síðu sem Björn Leví Gunn­ars­son útbjó til að aðstoða fólk við að senda inn umsagnir.

Hátt í 800 umsagnir um samgönguáætlun
Vakti athygli á veggjöldum Björn Leví útbjó síðu til að auð­velda fólki að senda inn umsagnir um veggjöld. Mynd: Pressphotos.biz / Geiri

Ríflega 770 umsagnir bár­ust umhverfis- og sam­göngu­nefnd Alþingis vegna sam­göngu­á­ætl­unnar fyrir árin 2019-2033. Þar af voru um eða yfir 700 umsagnir sem sneru beint að fyr­ir­hug­aðri breyt­ing­ar­til­lögu við áætl­un­ina, sem inni­ber upp­töku veggjalda. Óljóst er hversu margar umsagnir bár­ust í heild­ina þar eð enn á eftir að skrá nokkrar þeirra en umsagn­ar­frest­ur­inn er lið­inn.

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, vakti athygli á því í des­em­ber síð­ast­liðnum að til stæði að leggja fram breyt­ing­ar­til­lögu þar sem opnað væri á mögu­leik­ann á upp­töku veggjalda. Jón Gunn­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem tók við for­mennsku í nefnd­inni eftir að Bergþór Ólason, þing­maður Mið­flokks­ins, tók sér frí frá þing­störfum í kjöl­far Klaust­urs­máls­ins, greindi frá því að full sam­staða væri milli rík­is­stjórn­ar­flokk­anna um sam­þykkt sam­göngu­á­ætl­unnar og upp­taka veggjalda væri stórt skref inn í fram­tíð­ina. Björn Leví hefur lýst því að hann og Píratar séu hvorki and­vígir né fylgj­andi upp­töku veggjalda en gagn­rýni hins vegar þá aðferð sem beita átti við að koma heim­ild til upp­töku þeirra inn í sam­göngu­á­ætlun rétt fyrir jóla­frí, án almennrar umræðu.

Fyrirfram gefinn texti í hundruðum tilvika

Af þessum sökum útbjó Björn Leví vef­síðu þar sem fólki var gert kleift að senda inn umsögn um veggjalda­á­ætl­anir meiri­hluta umhverfis- og sam­göngu­nefndar, þar sem hægt var að nálg­ast staðl­aðan texta en einnig að breyta eða bæta við. Mikill fjöldi not­aði síðu Bjarnar Leví, ef marka má töl­fræði­upp­lýs­ingar sem hann hefur birt um heim­sóknir á síð­una auk ann­ars.

Björn Leví greindi frá því í morgun að hann hefði nú farið yfir 644 umsagnir sem lúta að þeim hluta sam­göngu­á­ætl­unar sem snýr að veggjöldum. Af þeim reynd­ust 93 pró­sent and­víg álagn­ingu veggjalda en 7 pró­sent fylgj­andi. Séu umsagnir skoð­aðar kemur í ljós að hund­ruð þeirra eru svohljóð­andi, eða því sem næst: „Ég and­mæli áformum um álagn­ingu veggjalda eins og þær koma fram í for­sendum meiri­hluta Umhverfis- og sam­göngu­nefndar.“ Um er að ræða fyr­ir­fram gef­inn texta sem Björn Leví bauð not­endum síð­unnar að afrita þegar send væri inn umsögn.

Málið verður til umfjöll­unar í nefnd­inni nú á næst­unni og búist er við að nefndin skili til­lögu um veggjöld í þessum mán­uði. Jón Gunn­ars­son hefur lýst því að hann reikni með því að frum­varp um veggjöld verði lagt fram í mars næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár