Nauðungaruppboð á eignum Björns Inga og gjaldþrots óskað hjá Kolfinnu Von

Nauð­ung­ar­upp­boð hefur verið aug­lýst á fast­eignum Björns Inga Hrafns­sonar, rit­stjóra Viljans. Knatt­spyrnu­mað­ur­inn Aron Einar Gunn­ars­son hefur farið fram á per­sónu­legt gjald­þrot eig­in­konu hans, Kolfinnu Vonar Arn­ar­dóttur.

Nauðungaruppboð á eignum Björns Inga og gjaldþrots óskað hjá Kolfinnu Von
Kolfinna Von og Björn Ingi Aron Einar Gunn­ars­son hefur farið fram á per­sónu­legt gjald­þrot Kolfinnu.

Sýslu­mað­ur­inn á Vest­ur­landi hefur aug­lýst nauð­ung­ar­upp­boð á fast­eignum Björns Inga Hrafns­sonar, rit­stjóra Viljans og fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúa, að Más­stöðum í Hval­fjarð­ar­sveit. Á sama tíma hefur verið farið fram á per­sónu­legt gjald­þrot eig­in­konu hans, Kolfinnu Vonar Arn­ar­dóttur.

Sýslu­maður býður upp fjórar eignir Björns Inga að Más­stöðum 10. jan­úar næst­kom­andi. Nemur fast­eigna­mat þeirra um 35 millj­ónum króna. Gerð­ar­beið­endur eru Toll­stjóri, Lands­bank­inn, Hval­fjarð­ar­sveit, Vátrygg­inga­fé­lag Íslands og sýslu­mað­ur­inn á Vest­ur­landi.

Fram hefur komið í Stund­inni að áhvílandi lán séu um 95 millj­ónir króna. Toll­stjóri óskaði í apríl eftir kyrr­setn­ingu á einni fast­eign­anna, sem for­eldrar hans eru búsettir í. Ástæðan var tæp­lega 115 millj­óna króna útreikn­ingur skatt­rann­sókn­ar­stjóra á áætl­aðri sekt og skatt­kröfu gagn­vart Birni Inga vegna milli­færslna frá fjöl­miðla­fyr­ir­tækjum hans sem nú eru gjald­þrota. Birni Inga er því óheim­ilt að ráð­stafa eign­inni þar til öll kurl eru komin til grafar í mál­inu.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá skatt­rann­sókn­ar­stjóra telst brot af þess­ari stærð­argráðu „meiri háttar“ og getur varðað fang­elsi allt að 6 árum. Lögmaður Björns Inga, Sveinn Andri Sveins­son, sagði í sam­tali við Stundina í júlí að Björn Ingi hafi veitt tals­vert af lánum til félaga í eigin eigu og geng­ist í ábyrgðir fyrir þau, en á meðal fjöl­miðla­fyr­ir­tækja sem Björn Ingi átti en eru nú komin í gjald­þrot eru DV ehf., Pressan ehf. og Vef­pressan ehf. Sveinn Andri sagði að skýr­ingar væru á greiðsl­unum en að skatta­yf­ir­völd hafi gert ráð fyrir að um óupp­gefnar tekjur væri að ræða.

Áður hefur verið vísað til Másstaða í tengslum við fjár­nám þar sem Björn Ingi hefur verið gerð­ar­þoli. Gert var fjár­nám í eign­unum 7. des­em­ber 2017 vegna 664 þús­und króna kröfu að beiðni sýslu­manns­ins á Vest­ur­landi. Þá benti Björn Ingi einnig á eign­ina til trygg­ingar fyrir fyrr­ver­andi eig­in­konu sína þegar kraf­ist var fjár­náms fyrir 7 millj­óna króna kröfu á hendur henni í lok jan­úar 2018.

Síðasta árang­urs­lausa fjár­nám í búi Björns Inga var gert í júní á vegum sýslu­manns­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Var það fimmta árang­urs­lausa fjár­námið sem beind­ist að honum á einu ári.

Persónulegt gjaldþrot Kolfinnu Vonar

Þá greindi eig­in­kona Björns Inga, Kolfinna Von Arn­ar­dóttir, frá því í dag í færslu á Facebook að Aron Einar Gunn­ars­son knatt­spyrnu­maður hafi farið fram á per­sónu­legt gjald­þrot hennar. Deilur hafa staðið á milli þeirra vegna fjár­fest­ingar í fata­merk­inu JÖR.

„Það er rétt, sem greint hefur verið frá, að lands­liðs­fyr­ir­lið­inn í knatt­spyrnu hefur farið fram á að ég verði gerð gjald­þrota,“ skrifar Kolfinna. „Aron Einar og Krist­björg eig­in­kona hans, sem voru mikið vina­fólk mitt, tók þátt í áhættu­fjár­fest­ingu með mér og fleira fólki, eins og skýrt hefur verið frá.“

Vísir hefur fjallað um málið og fram hefur komið að deil­urnar teng­ist því þegar Aron Einar og eig­in­kona hans fjár­festu í JÖR í sam­starfi við Kolfinnu. Ekkert varð af fjár­fest­ing­unni og var JÖR úrskurðað gjald­þrota í upp­hafi árs 2017.

Kolfinna stað­festir einnig frá­sögn Arons Einars, sem fram kemur í nýút­kominni ævi­sögu hans, að samið hafi verið um að hún myndi kaupa hlut þeirra hjóna af þeim. „Ég bauðst svo til að kaupa af þeim þeirra hlut og um það snýst þetta mál,“ skrifar hún. „Það var aldrei nein skuld — ég fékk enga fjár­muni lán­aða frá þeim — en ég vildi koma til móts við þau með því að kaupa af þeim þeirra hlut, en átti í erf­ið­leikum með að standa við þær greiðslur sem samið var um. Ég reyndi ítrekað að semja um málið við þau, án árang­urs.“

Segist hún ítrekað hafa reynt að bera klæði á vopnin, þar sem þau hafi verið nánir vinir hennar. „Auðvitað hefði ég aldrei átt, eftir á að hyggja, að bjóð­ast til þess að kaupa aftur þeirra hlut, enda jafn sjálf­sagt að þau bæru fjár­hags­lega áhættu af fjár­fest­ingum eins og aðrir. En ég hef alltaf verið svo­lítið gam­al­dags með það að telja vin­átt­una verð­mæt­ari en pen­inga og tók nærri mér að deilur um fjár­muni hefðu áhrif á gamla vin­áttu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár