Kærður fyrir alvarlega líkamsárás og hættir í Babies

Babies-flokk­ur­inn hefur til­kynnt að Zakarías Herman Gunn­ars­son tón­list­ar­maður sé hættur í hljóm­sveit­inni „af per­sónu­legum ástæðum“. Hann var í des­em­ber kærður fyrir alvar­lega lík­ams­árás. Þátttaka hans í Girl Power-tón­leikum í maí var stöðvuð vegna meintrar hegð­unar af sama toga.

Kærður fyrir alvarlega líkamsárás og hættir í Babies
Babies Flokk­ur­inn Zakarías, annar frá hægri, er hættur í hljóm­sveit­inni.

Zakarías Herman Gunn­ars­son, tón­list­ar­maður úr hljóm­sveit­unum Babies-flokknum og Caterpillarmen, hefur verið kærður fyrir alvar­lega lík­ams­árás. Þetta herma heim­ildir Stund­ar­innar.

Babies-flokk­ur­inn til­kynnti um brott­hvarf Zakaríasar úr hljóm­sveit­inni „af per­sónu­legum ástæðum“ 19. des­em­ber síð­ast­lið­inn. „Hans verður sárt saknað en brott­hvarf hans mun ann­ars ekki hafa nein áhrif á starf hljóm­sveit­ar­innar um ókomna tíð,“ sagði í til­kynn­ingu frá hljóm­sveit­inni á Facebook.

Lík­ams­árásin mun hafa átt sér stað í byrjun des­em­ber og Zakarías gist fanga­geymslur í kjöl­far hennar. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hegðun af þessum toga er borin upp á Zakarías. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar var honum meinað að taka þátt með Babies-flokknum í Girl Power-tón­leikum á Húrra í maí, sem söng­konan Salka Sól Eyfeld stóð meðal ann­ars fyrir. Höfðu sögu­sagnir um fyrri hegðun Zakaríasar borist til eyrna stjórn­enda við­burð­ar­ins.

Zakarías Herman Gunn­ars­son

Babies-flokk­ur­inn hefur notið mik­illa vin­sælda sem ball­hljóm­sveit und­an­farin ár. Sveitin spilar helst tök­u­lög á tón­leikum og hefur komið fram á mán­að­ar­legum við­burðum á skemmti­staðnum Húrra und­an­farin ár, auk þess að halda tón­leika í Gamla bíói á tylli­dögum. Fyrstu tón­leikar sveit­ar­innar án Zakaríasar voru sunnu­dags­kvöldið 30. des­em­ber í Gamla bíói. Þá spil­aði hljóm­sveitin á þrett­ánda­balli á Bryggj­unni Brugg­húsi 5. jan­úar síð­ast­lið­inn.

Zakarías er einnig í progg­tón­list­ar­sveit­inni Caterpillarmen. Ekki hefur komið fram frá hljóm­sveit­inni hvort hann starfi enn innan hennar vébanda.

Ekki náð­ist í Zakarías við vinnslu frétt­ar­innar þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár